Greinar

Nöfn sem byrja á C

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum C, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 34 nöfn sem byrja á C í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á C

  • Camilla
    StúlkaSamþykkt3 atkv.89 sem fyrsta nafn

    Önnur ritmynd af nafninu Kamilla.

  • Carmen
    StúlkaSamþykkt2 atkv.63 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega spænskt, ummyndun á nafninu „Carmel“ sem komið er úr hebresku og merkir „garður, aldingarður“. María móðir Jesú var oft kennd við fjallið „Carmel“ og á nafnið „Carmen“ rætur að rekja til þess.

  • Christina
    StúlkaSamþykkt3 atkv.39 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Kristín.

  • Clara
    StúlkaSamþykkt2 atkv.39 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af latneska lýsingarorðinu "clarus" sem merkir tær, - hreinn, - bjartur.

  • Charlotte
    StúlkaSamþykkt3 atkv.31 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Karlotta.

  • Christine
    StúlkaSamþykkt3 atkv.25 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Kristín.

  • Carla
    StúlkaSamþykkt23. mar 20112 atkv.24 sem fyrsta nafn

    Carla er kvenkynsmynd nafnsins Carl (Karl), af germanska orðinu karl sem merkir „frjáls maður“.

  • Cecilia
    StúlkaSamþykkt4 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega latneskt, „Caecilia“, myndað af rómverska ættarnafninu „Caecilius“. Að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ sem merkir „blindur“. Heilög Cecilia dó píslarvættisdauða í Róm á 3. öld og er talin verndari tónlistar, einkum kirkjutónlistar, og er meðal vinsælustu dýrlinga kaþólskra. Elsta íslenska mynd nafnsins var „Cecilía“ og Sesselja Guðmundsdóttir er nefnd í Sturlungu, kona Bárðar Þorkelssonar á Söndum.

  • Charlotta
    StúlkaSamþykkt3 atkv.19 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Karlotta.

  • Christel
    StúlkaSamþykkt16. okt 20132 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna. Það er þýsk gælumynd af „Kristiane“ og „Krista“, sem tengjast „Kristjana“.

  • Celina
    StúlkaSamþykkt24. jún 20253 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Celina er pólsk, portúgölsk og spænsk mynd af Céline, eða stytting á Marcelinu. Uppruni er ekki fyllilega viss; nafnið er ýmist tengt latneska „caelum“ („himinn“) eða nafninu Marcellus.

  • Christa
    StúlkaSamþykkt20. jún 20142 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafnið er einkum notað sem stytting á t.d. „Kristín“ og „Kristjana“. Nafnmyndin „Christa“ er upphaflega stytting á þýska nafninu „Christiane“, sbr. „Kristjana“, en er nú notað víða í Evrópu sem eiginnafn.

  • Cecilía
    StúlkaSamþykkt6. apr 20044 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Kvenkynið af rómverska eftinafninu Caecilius, sem kemur af orðinu caecus í latínu og þýðir "blind/blindur".

  • Chloé
    StúlkaSamþykkt9. mar 20232 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Nafnið er grískt að uppruna og þekkist í Nýja testamentinu í íslenskri þýðingu í myndinni „Klóe“ (1. Kor. 1:11).

  • Caritas
    StúlkaSamþykkt16. maí 20133 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið á rætur að rekja til latneska orðsins „caritas“ sem merkir „kærleikur“, dregið af „carus“ sem merkir „kær“. Í „Heilagra meyja drápu“ frá 14. öld er sagt frá systrunum Fídesi, Spes og Karítas, en nöfn þeirra eru öll latnesk að uppruna og merkja „trú“, „von“ og „kærleikur“. Til er sérstök saga um þær systur, gefin út í Heilagra manna sögum. Nafnið „Charity“ á Englandi er af sama uppruna.

  • Casandra
    StúlkaSamþykkt26. júl 20213 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur úr grísku. „Kassandra“ var trójönsk prinsessa sem hafði til að bera spádómsgáfu en henni fylgdu þær bölbænir að enginn trúði því sem hún sagði.

  • Cleopatra
    StúlkaSamþykkt9. sep 20214 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er grískt að uppruna, sett saman af liðunum „kleos“ sem merkir dýrð, frægð og „patêr“ sem merkir faðir. Nafnið var borið af fjölda tiginna kvenna í Egyptalandi en þekktust þeirra var Kleópatra 7. (69–30 f.Kr.), síðust af ætt Ptolemaja.

  • Chrissie
    StúlkaSamþykkt7. jún 20233 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega ensk og skosk gælumynd af nafninu „Christina“, sem tengist íslenska nafninu „Kristína“.

  • Cathinca
    StúlkaSamþykkt10. feb 20143 atkv.

    Nafnið á rætur að rekja til Austur-Evrópu. Í Ungverjalandi er „Katinka“ gælumynd af „Katharina“, og myndin „Katenka“ er algeng í Rússlandi sem gælumynd af „Katya“. „Katinka“ er lítillega notað sem eiginnafn í Þýskalandi og á Bretlandseyjum en einnig í Noregi.

Drengjanöfn á C

  • Christian
    DrengurSamþykkt8. júl 20093 atkv.96 sem fyrsta nafn

    Ritmynd nafnsins Kristján.

  • Christopher
    DrengurSamþykkt18. júl 20053 atkv.78 sem fyrsta nafn

    Enska myndin af nafninu „Kristófer“, sem þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld og er komið úr grísku „Christóphoros“ og merkir eiginlega „sá sem ber Krist“. Þýska myndin er „Christoffer“.

  • Carl
    DrengurSamþykkt1 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Germönsk mynd af nafninu Karl sem merkir maður.

  • Cesar
    DrengurSamþykkt30. apr 20192 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafnið er rómverskt ættarnafn af óvissum uppruna og merkingu. Það var tekið upp sem heiðursnafn rómverskra keisara og af því er orðið „keisari“ dregið. Frægasti maður með þessu nafni var án efa Gaius Julius Caesar, rómverskur hershöfðingi, stjórnmálamaður og sagnaritari. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 16. öld og í Danmörku frá 18. öld, en er sjaldgæft í Noregi; það tíðkast einnig á Englandi sem „Caesar“ og í Þýskalandi sem „Cäsar“.

  • Charles
    DrengurSamþykkt6. nóv 20192 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafnið er trúlega komið í íslensku úr ensku eða frönsku og er upphaflega dregið af þýsku orði sem merkti „frjáls maður“, skylt fornensku „churl“ „maður“. Það varð vinsælt í Evrópu fyrir áhrif frá Karlamagnúsi Frankakonungi (742/747–814) sem árið 800 lýsti sjálfan sig heilagan keisara Rómaríkis. Latnesk mynd nafns hans var „Carolus Magnus“ sem á ensku varð „Charles the great“, „Karl mikli“. „Charles“, eða upphaflega þýska myndin „Karl“, var notuð af kóngum og fyrirfólki í Evrópu á miðöldum en barst ekki til Englands fyrr en með Maríu Skotadrottningu (1542–1587). Hún var alin upp í Frakklandi og gaf syni sínum nafnið „Charles James“ (1566–1625) sem síðar varð James VI. Skotakonungur og frá 1603 James I. Englandskonungur.

  • Chris
    DrengurSamþykkt13. jan 20221 atkv.6 sem fyrsta nafn

    Nafnið er ein af nafnmyndum „Kristján“ og er komið úr latínu „christiānus“ sem merkir kristinn, sbr. latínu „Christus“ og grísku „Khristós“ sem merkir hinn smurði. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum og í ensku- og þýskumælandi löndum frá fornu fari.

  • Charlie
    DrengurSamþykkt6. ágú 20213 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafnið er trúlega komið í íslensku úr ensku eða frönsku og er upphaflega dregið af þýsku orði sem merkti „frjáls maður“, skylt fornensku „churl“ „maður“. Það varð vinsælt í Evrópu fyrir áhrif frá Karlamagnúsi Frankakonungi (742/747–814) sem árið 800 lýsti sjálfan sig heilagan keisara Rómaríkis. Latnesk mynd nafns hans var „Carolus Magnus“ sem á ensku varð „Charles the great“, „Karl mikli“. „Charles“, eða upphaflega þýska myndin „Karl“, var notuð af kóngum og fyrirfólki í Evrópu á miðöldum en barst ekki til Englands fyrr en með Maríu Skotadrottningu (1542–1587). Hún var alin upp í Frakklandi og gaf syni sínum nafnið „Charles James“ (1566–1625) sem síðar varð James VI. Skotakonungur og frá 1603 James I. Englandskonungur.

  • Carlo
    DrengurSamþykkt19. nóv 20252 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Carlo er ítölsk mynd af nafninu Charles (Karl). Það er dregið af germanska orðinu „karl“ sem merkir „frjáls maður“ eða „maður“.

  • Cýrus
    DrengurSamþykkt19. ágú 20042 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er grísk eða latnesk mynd af persnesku „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.

  • Cyrus
    DrengurSamþykkt16. apr 20242 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er grísk eða latnesk mynd af persneska nafninu „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.

  • Cæsar
    DrengurSamþykkt27. maí 20152 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er rómverskt ættarnafn af óvissum uppruna og merkingu. Það var tekið upp sem heiðursnafn rómverskra keisara og af því er orðið „keisari“ dregið. Frægasti maður með þessu nafni var án efa Gaius Julius Caesar, rómverskur hershöfðingi, stjórnmálamaður og sagnaritari. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 16. öld og í Danmörku frá 18. öld, en er sjaldgæft í Noregi; það tíðkast einnig á Englandi sem „Caesar“ og í Þýskalandi sem „Cäsar“.

  • Cristiano
    DrengurSamþykkt2. nóv 20224 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Cristiano er ítölsk og portúgölsk mynd af nafninu Christian (Kristján). Það er af latneska „christianus“ og merkir „fylgjandi Krists“.

  • Cameron
    DrengurSamþykkt22. apr 20263 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Cameron er komið af skosku ættarnafni, myndað af gelísku „cam“ („boginn“) og „sròn“ („nef“), og merkir „bogið nef“.

  • Cecil
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er trúlega tökunafn úr ensku. „Cecil“ er dregið af eftirnafni ættgöfugrar fjölskyldu af velskum uppruna á 16. öld. Eftirnafnið er ensk mynd velska nafnsins „Seissylt“, sem er bretónsk eða fornvelsk mynd latneska nafnsins „Sextilius“, af „Sextus“ „sjötti“. Á miðöldum var nafnið einnig stundum notað sem ensk mynd latneska nafnsins „Caecilius“, forns rómversks ættarnafns dregið af þorpsnafninu „Caecus“, en að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ „blindur“. „Caecilius“ var nafn á rómverskum dýrlingi sem uppi var á þriðju öld.

  • Celin
    DrengurSamþykkt10. ágú 20222 atkv.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á C

Hvaða nöfn byrja á C?

Það eru 34+ íslensk nöfn sem byrja á C, t.d. Camilla og Christian. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á C?

Samtals eru 34 samþykkt nöfn sem byrja á C í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →