Nöfn sem byrja á Í
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Í, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 66 nöfn sem byrja á Í í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á Í
- ÍrisStúlkaSamþykkt2 atkv.1.088 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði þar sem Íris var upphaflega persónugerving regnbogans en varð síðar sendiboði guðanna.
- ÍsabellaStúlkaSamþykkt4 atkv.437 sem fyrsta nafn
Spænsk mynd af nafninu Elísabet, lagað að lýsingarorðinu "bella" sem merkir fögur.
- ÍrenaStúlkaSamþykkt3 atkv.154 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er latnesk mynd gríska nafnsins Irene sem er komið af gríska orðinu "eirene" sem merkir friður. Irene var gyðja friðar í grískri goðafræði.
- ÍsoldStúlkaSamþykkt2 atkv.129 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og sótt í söguna um Tristan og Ísold, sem þekkt er af frönsku kvæði Tómasar frá Bretagne frá 12. öld. Tristan var einn af riddurum Arthúrs konungs og felldu þau Ísold hugi saman. Í íslenskri þýðingu frá 1226 var stúlkan nefnd „Ísönd“. Nafnið hefur lítið verið notað á Norðurlöndum en dálítið á Englandi, og í Þýskalandi jukust vinsældir þess eftir að Richard Wagner samdi óperuna „Tristan og Isolde“ árið 1865. Sigurður Breiðfjörð orti rímu um Tristan og Ísold, og tvær endurminningabækur Kristmanns Guðmundssonar nefndust „Ísold hin svarta“ og „Ísold hin gullna“.
- ÍdaStúlkaSamþykkt2 atkv.64 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr þýsku og var upphaflega stytting nafna sem byrja á "Ida-/Idu-".
- ÍseyStúlkaSamþykkt2 atkv.47 sem fyrsta nafn
Talið er að nafn þetta sé myndað af forliðnum "ís" og viðliðnum "ey" í merkingunni eyja, og að nafnið merki þá í raun Ísland.
- ÍsafoldStúlkaSamþykkt3 atkv.35 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "fold" sem merkir jörð. Ísafold var notað af rómantískum skáldum sem annað heiti á Íslandi.
- ÍsabelStúlkaSamþykkt3 atkv.28 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ýmist talið vera spænsk mynd af nafninu Elísabet eða þá að það sé dregið af forn semísku nafni og merki dóttir guðsins Baal.
- ÍsólStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Ef til vill er um sama nafn að ræða og „Íssól“.
- ÍsadóraStúlkaSamþykkt4 atkv.8 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss en talið er að það kunni að vera sett saman úr tveimur nöfnum. Hliðarmyndin „Isadora“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2020.
- ÍvaStúlkaSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn
Nafnið þekkist í þýsku sem „Iva“ og er ýmist talið myndað eftir karlmannsnafninu „Ivo“ eða vera stytting á nafninu „Ivana“ sem aftur er myndað af „Ívan“.
- ÍsalindStúlkaSamþykkt16. nóv 20043 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og viðliðnum „-lind“.
- ÍshildurStúlkaSamþykkt3 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
- ÍsmeyStúlkaSamþykkt4. mar 20052 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“ eða „Ísa-“ og nafnorðinu „mey“ sem merkir stúlka.
- ÍsgerðurStúlkaSamþykkt3 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.
- ÍsisStúlkaSamþykkt2 atkv.4 sem fyrsta nafn
Nafnið er rakið til nafns egypsku frjósemisgyðjunnar „Isis“. Það hefur verið tekið upp sem eiginnafn víða í Evrópu, m.a. á Spáni og í Þýskalandi.
- ÍrunnStúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Talið sett saman af forliðnum „Ir-“, sem einnig kemur fyrir í nöfnum eins og „Irene“, og viðliðnum „-unn“. Nafnið þekkist í Noregi frá því fyrir miðja 20. öld og er íslenska myndin hugsanlega mynduð eftir því norska, þótt uppruninn sé að öðru leyti óviss.
- ÍunnStúlkaSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss en sennilega er það hliðarmynd við nafnið „Iðunn“.
Drengjanöfn á Í
- ÍsakDrengurSamþykkt2 atkv.671 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af hebresku sögninni "sahak" sem merkir að hlæja og þýðir nafnið í raun Guð mun hlæja.
- ÍsarDrengurSamþykkt2 atkv.83 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðskeytinu "ar" sem merkir broddur.
- ÍsleifurDrengurSamþykkt3 atkv.81 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.
- ÍvanDrengurSamþykkt2 atkv.50 sem fyrsta nafn
Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.
- ÍsólfurDrengurSamþykkt3 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.
- ÍanDrengurSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og er upphaflega skosk afleiðsla af nafninu „John“. Frá Skotlandi barst það til þýskumælandi landa og Norðurlanda. Um merkingu vísast til nafnsins „Jóhannes“.
- ÍsidórDrengurSamþykkt3 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr grísku og er samsett af gyðjunafninu "Isis" og nafnorðinu "doron" sem merkir gjöf.
- ÍsarrDrengurSamþykkt2. feb 20072 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Sturlungu á 13. öld og í fornbréfum frá 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „Ís-, Ísa-“ og viðliðnum „-ar“ og gæti merkt „ís-spjót, ísabroddur“.
- ÍsmaelDrengurSamþykkt3 atkv.6 sem fyrsta nafn
Nafnið er hebreskt að uppruna. Sonur Abrahams og Hagar hét „Ísmael“ samkvæmt Fyrstu Mósebók, og það er talið merkja „Guð hlustar“.
- ÍsraelDrengurSamþykkt23. des 20093 atkv.3 sem fyrsta nafn
Nafnið var upphaflega viðurnefni Jakobs, sonar Ísaks og Rebekku, í merkingunni „berst fyrir Guð“. Síðar varð „Ísrael“ notað sem nafn á söfnuði gyðinga eftir herleiðinguna til Babýlon. Nafnið er einkum notað meðal gyðinga en þekkist þó meðal enskumælandi þjóða og á Norðurlöndum.
- ÍsgeirDrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.
- ÍsmarDrengurSamþykkt11. okt 20062 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman úr nafnorðinu "ís" og viðliðnum "mar" sem merkir haf, - sær.
- ÍkarusDrengurSamþykkt19. okt 20203 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til grískrar goðafræði. Íkarus flaug með vængjum sem faðir hans gerði honum úr fjöðrum og vaxi of nálægt sólinni þannig að vaxið bráðnaði og Íkarus féll til jarðar og varð það hans bani.
- ÍmiDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið kemur fyrir í Sturlungu og í fornbréfum frá 15. og 16. öld. Uppruni nafnsins er óviss, ef til vill skylt „íma“ - orrusta, eða „ím“ - óhreinindi, ryk.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á Í
Hvaða nöfn byrja á Í?
Það eru 66+ íslensk nöfn sem byrja á Í, t.d. Íris og Ísak. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á Í?
Samtals eru 66 samþykkt nöfn sem byrja á Í í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →