Greinar

Nöfn sem byrja á V

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum V, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 215 nöfn sem byrja á V í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á V

  • Valgerður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.677 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.

  • Viktoría
    StúlkaSamþykkt4 atkv.531 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr latínu og er leitt af orðinu "victoria" sem merkir sigur. Viktoría er því hin sigursæla.

  • Vigdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.468 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Víg" sem merkir bardagi, - orrusta og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Valdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.350 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Valdís er heilladís látinna.

  • Vilborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.341 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er þýskt að uppruna og er myndað af forliðnum "Wil" sem merkir vilji og viðliðnum "burg" sem merkir vörn, - kastali. Vilborg er hin hjálpfúsa.

  • Vala
    StúlkaSamþykkt2 atkv.202 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upphaflega stytting nafna sem byrja á "Val-", þýðir einnig lítill steinn, (sbr. steinvala) og gæti verið tengt spákonum(?)sbr. völuspá.

  • Vera
    StúlkaSamþykkt2 atkv.128 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr rússnesku og merkir trú.

  • Veronika
    StúlkaSamþykkt4 atkv.126 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er latnesk ummyndun nafnsins "Berenice" og merkir sú sem veitir sigur.

  • Vaka
    StúlkaSamþykkt2 atkv.112 sem fyrsta nafn

    Sú sem vakir.

  • Védís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.103 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Vé" sem merkir helgidómur og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Valborg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.83 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Val-“ í merkingunni „valda, ríkja“ og viðliðnum „-borg“. Eina konan sem talið er að hafi borið nafnið í fornum bókmenntum var Valborg, dóttir Jórunnar Ósvaldsdóttur og móðir Valgerðar Runólfsdóttur í Njálu. Nafnið hefur verið notað í Noregi frá 14. öld og í Svíþjóð og Danmörku frá 13. öld. Í Þýskalandi er skylt nafn, „Walburg“, þekkt en lítið notað nú - það naut mikilla vinsælda á miðöldum meðal annars vegna heilagrar Walburg, engilsaxneskrar abbadísar og trúboða í Heidenheim á 8. öld.

  • Victoria
    StúlkaSamþykkt29. maí 20174 atkv.80 sem fyrsta nafn

    Viktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.

  • Victoría
    StúlkaSamþykkt4 atkv.46 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Viktoría.

  • Viktoria
    StúlkaSamþykkt12. maí 20104 atkv.44 sem fyrsta nafn

    Viktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.

  • Veronica
    StúlkaSamþykkt7. mar 20244 atkv.35 sem fyrsta nafn

    Nafnið er talin latnesk ummyndun á nafninu „Berenice“ úr eldra „Berenike“ sem mun vera makedónsk mynd gríska nafnsins „Pherenike“, „sá sem stuðlar að sigri“. Ástæðan til þess að „Berenice“ varð „Veronica“ er að nafnið blandaðist latneska orðasambandinu „vere icon“, „sönn ímynd“. Átrúnaður á heilaga Veróniku frá Jerúsalem á miðöldum varð til þess að nafnið var tekið upp víða. Hún var sögð ein af fylgjendum Jesú og á að hafa strokið andlit hans með svitadúk sínum á leið til krossfestingarinnar, en þá sást andlitsmynd Jesú í dúknum.

  • Vilhelmína
    StúlkaSamþykkt4 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Vilhjálmur.

  • Vilma
    StúlkaSamþykkt2 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna, talið þýskt, og er stytting á nafninu „Wilhelma“.

  • Viðja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.27 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sennilega dregið af trjáheitinu „viðja“ sem er nýyrði um víðitegund. Í eldra máli merkti „viðja“ „víðigrein, víðitág; flækjukjarr“.

  • Vordís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett úr árstíðaheitinu "Vor" og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Vordís er því heilladís vorsins.

  • Valentína
    StúlkaSamþykkt4 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af latneska nafninu "Valentinus" sem merkir sterkur, - hraustur.

Drengjanöfn á V

  • Viktor
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.101 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "victor" sem merkir sigurvegari.

  • Vilhjálmur
    DrengurSamþykkt3 atkv.463 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upprunnið úr þýsku og er sett saman af nafnorðinu "willo" sem merkir vilji, - ósk og nafnorðinu "helm" sem merkir hjálmur.

  • Valdimar
    DrengurSamþykkt3 atkv.432 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af rússneska nafninu "Vladimir" sem er myndað af forliðnum "vladetb" sem merkir ríkja, ráða yfir og viðliðnum "mir" sem merkir heimur. Valdimar er því voldugur höfðingi.

  • Viðar
    DrengurSamþykkt2 atkv.376 sem fyrsta nafn

    Um uppruna og merkingu nafnsins fara tvennum sögum. Ef leshátturinn er talinn „Viðarr“ er nafnið samsett af nafnorðinu „viður“ sem merkir „skógur“ og viðskeytinu „-ar“. Sé lesháttinn hins vegar talinn „Víðarr“, er nafnið líklega skylt lýsingarorðinu „víður“ og merkir þá eiginlega „sá sem ræður víðlendu ríki“. Nafnið kemur nokkrum sinnum fyrir í fornum heimildum, meðal annars í Landnámu, og var einnig borið af syni Óðins sem drap Fenrisúlf í ragnarökum.

  • Valur
    DrengurSamþykkt2 atkv.345 sem fyrsta nafn

    Fuglsheitið valur.

  • Vignir
    DrengurSamþykkt2 atkv.286 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Víg" sem merkir bardagi, - orrusta. Vignir gæti því táknað stríðsmann.

  • Valgeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.220 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Víkingur
    DrengurSamþykkt3 atkv.198 sem fyrsta nafn

    Víkingur, - norrænn sjóræningi.

  • Victor
    DrengurSamþykkt2 atkv.174 sem fyrsta nafn

    Ritmynd af Viktor.

  • Víðir
    DrengurSamþykkt2 atkv.154 sem fyrsta nafn

    Trjáheitið víðir.

  • Vigfús
    DrengurSamþykkt2 atkv.134 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Víg" sem merkir bardagi, - orrusta og viðliðnum "fús" sem merkir ákafur, - viljugur.

  • Valtýr
    DrengurSamþykkt2 atkv.100 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "týr" sem merkir guðinn Týr úr norrænni goðafræði.

  • Vilhelm
    DrengurSamþykkt2 atkv.96 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Vilhjálmur.

  • Veigar
    DrengurSamþykkt2 atkv.93 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir sem sverðsheiti í þulum en sem eiginnafn er það líklega myndað af kvenmannsnöfnum sem enda á „-veig“.

  • Viggó
    DrengurSamþykkt2 atkv.75 sem fyrsta nafn

    Nafnið „Viggo“ kemur fyrir í ritum danska sagnaritarans Saxo Grammaticus og er líklega latnesk mynd austurnorræna nafnsins „Vigge“, sem var stuttmynd af nöfnum sem hófust á „Vig-“. Frá ritum Saxos breiddist nafnið út á 19. öld og er þekkt á Norðurlöndum, Englandi og í Þýskalandi. Í einhverjum tilvikum gæti „Viggó“ verið stuttmynd af „Viktor“.

  • Vésteinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.60 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Vé" sem merkir helgidómur og viðliðnum "steinn" sem merkir steinn, - harður.

  • Vilberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.56 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Vilbergur.

  • Valdemar
    DrengurSamþykkt3 atkv.46 sem fyrsta nafn

    Ritmynd af Valdimar.

  • Valgarður
    DrengurSamþykkt3 atkv.40 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Val" sem merkir afbragð, - úrval, - kosning, - vopnbitinn, - stjórna og viðliðnum "garður" sem merkir vörn.

  • Vilmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.39 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Vil" sem merkir vilji og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á V

Hvaða nöfn byrja á V?

Það eru 215+ íslensk nöfn sem byrja á V, t.d. Valgerður og Viktor. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á V?

Samtals eru 215 samþykkt nöfn sem byrja á V í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →