Skilmálar
Skilmálar fyrir kaup á passanum · síðast uppfært 13. nóvember 2026
Seljandi
Veldu nafn (veldunafn.is) er rekið af Hlynur Stefánsson, kt. 070488-2569, Barmahlíð 33, 105 Reykjavík. Netfang: hallo@veldunafn.is.
Passinn
Passinn opnar verkfærin í Saman: Mót, Já eða nei, neitunarvald, leynilega röðun, Nafnasmiðju og fjölskyldukosningu.
Passinn fylgir aðganginum sem keypti hann. Maki sem þú tengist á síðunni fær aðgang að öllu í Saman á meðan þið eruð tengd. Ef þið slítið tengingunni heldur sá sem keypti passanum. Nafnasmiðja, Já eða nei og fjölskyldukosning virka líka fyrir þann sem er ekki tengdur maka.
Allt sem er ókeypis á síðunni verður það áfram: nafnasíður, leit, uppáhaldsnöfn, sameiginlegir listar og leikurinn.
Verð og greiðsla
Verð passans er 1.990 kr., eitt verð fyrir ykkur bæði, greitt einu sinni. Þetta er ekki áskrift og ekkert er rukkað aftur. Enginn íslenskur virðisaukaskattur er lagður á, þar sem seljandi er undir veltumörkum virðisaukaskatts. Tekið er við greiðslukortum útgefnum á Íslandi.
Greitt er með greiðslukorti í íslenskum krónum á öruggri greiðslusíðu myPOS. Við fáum aldrei kortanúmerið, aðeins síðustu fjóra stafina, sem standa á kvittuninni.
Kvittun er send á netfang aðgangsins og er líka alltaf aðgengileg undir Passinn í aðgangsvalmyndinni.
Afhending
Passinn opnast um leið og greiðslan er staðfest, yfirleitt innan nokkurra sekúndna. Ef staðfestingin tefst opnast hann sjálfkrafa þegar hún berst. Ef passinn hefur ekki opnast innan sólarhrings, hafðu samband og við komum honum í lag eða endurgreiðum.
Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum um neytendasamninga hefur þú 14 daga frá kaupum til að falla frá þeim. Passinn er stafrænt efni sem er afhent strax. Við kaupin samþykkir þú því sérstaklega, með því að haka í reit, að rétturinn falli niður þegar þú eða maki þinn byrjið að nota passann, það er opnið verkfæri í Saman sem passinn opnar.
Hafi hvorugt ykkar byrjað að nota passann geturðu fallið frá kaupunum innan 14 daga með því að senda póst á hallo@veldunafn.is frá netfangi aðgangsins, með númeri kvittunarinnar. Við endurgreiðum þá allt verðið á sama kort innan 14 daga.
Endurgreiðslur
Ef passinn virkar ekki eins og honum er lýst og við getum ekki lagað það, eða ef greitt var tvisvar fyrir sama par, endurgreiðum við. Skrifaðu okkur á hallo@veldunafn.is og segðu frá hvað gerðist.
Endurgreiðslur eru gerðar handvirkt. Við endurgreiðslu lokast passinn, bæði hjá þeim sem keypti hann og hjá maka. Sameiginlegu listarnir ykkar og allt sem er ókeypis helst óbreytt.
Persónuupplýsingar
Hvaða upplýsingar eru geymdar um kaupin og hve lengi stendur í persónuverndarstefnunni.
Lög og ágreiningur
Um kaupin gilda íslensk lög. Ef upp kemur ágreiningur sem við leysum ekki saman geturðu leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Breytingar á þessum skilmálum gilda ekki um passa sem þegar hafa verið keyptir, nema þær séu kaupanda í hag.