Nöfn sem byrja á L
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum L, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 213 nöfn sem byrja á L í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á L
- LindaStúlkaSamþykkt2 atkv.808 sem fyrsta nafn
Ýmsar kenningar eru um uppruna og merkingu. Sumir telja nafn þetta komið af fornháþýska lýsingarorðinu "lind" sem merkir mjúk, aðrir að það sé komið frá spænska lýsingarorðinu "linda" sem merkir fögur og enn aðrir að það sé komið af ítalska lýsingarorðinu "lindo" sem merkir fögur, - hrein.
- LáraStúlkaSamþykkt2 atkv.650 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá latneska nafninu "Laurentia" sem merkir sú sem ber lárviðarkrans.
- LaufeyStúlkaSamþykkt2 atkv.574 sem fyrsta nafn
Laufey var móðir Loka samkvæmt Snorra-Eddu. Nafnið er líklega sett saman af „lauf“ sem merkir plöntublað og viðliðnum „ey“.
- LovísaStúlkaSamþykkt3 atkv.379 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunalega komið af franska nafninu "Louise".
- LenaStúlkaSamþykkt2 atkv.269 sem fyrsta nafn
Nafn þetta var upphaflega stytting á nöfnum sem enda á "-lena" s.s. Helena, - Magdalena o.fl.
- LeaStúlkaSamþykkt2 atkv.144 sem fyrsta nafn
Tvær hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu. Í fyrsta lagi er talið að hér sé um að ræða hebreskt biblíunafn og þá í merkingunni hin þreytta, - magnlausa. Í öðru lagi er talið að nafnið sé komið frá latneska orðinu "lea" sem merkir ljónynja.
- LíneyStúlkaSamþykkt2 atkv.76 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Lín" sem er hliðarmynd nafnsins Hlín sem merkir verndardís og viðliðnum "ey".
- LísbetStúlkaSamþykkt2 atkv.67 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hliðarmynd nafnsins "Elísabet" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.
- LínaStúlkaSamþykkt2 atkv.56 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upphaflega stytting á nöfnum sem enda á "-lín/lína".
- LuciaStúlkaSamþykkt24. apr 20193 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafnið er rómverskt að uppruna og talið leitt af karlmannsnafninu „Lūcius“, sem á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „lūx“ er merkir ljós. „Lucy“ er ensk mynd nafnsins. Heilög Lúsía frá Sýrakúsu, sem dó píslarvættisdauða árið 304, var mjög vinsæll dýrlingur á miðöldum og var m.a. ort um hana í „Heilagra meyja drápu“ á 14. öld. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í ensku- og þýskumælandi löndum, Ítalíu, Spáni og víðar, og „Lúcíumessa“ er haldin 13. desember.
- LaraStúlkaSamþykkt2 atkv.35 sem fyrsta nafn
Nafnið er rússneskt að uppruna en breiddist þaðan til Evrópulanda. Það er talið stytting af „Larissa“. Vinsældir sínar hlaut nafnið vegna Löru í bókinni Doktor Sívagó eftir Boris Pasternak.
- LífStúlkaSamþykkt1 atkv.34 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið hingað frá Norðurlöndum og er það þá skrifað "liv" og merkir það að lifa, - líf.
- LillýStúlkaSamþykkt2 atkv.32 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr ensku og var upphaflega gælunafn á nafninu Elisabeth.
- LailaStúlkaSamþykkt3 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hliðarmynd við arabíska nafnið "Leila" sem merkir nótt.
- LunaStúlkaSamþykkt16. sep 20162 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist bæði á Ítalíu og Spáni en hefur borist þaðan m.a. til Þýskalands. Að baki liggur nafn rómversku mánagyðjunnar „Luna“ og latneska orðið „luna“ sem merkir tungl, máni.
- LúnaStúlkaSamþykkt13. feb 20082 atkv.23 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist bæði á Ítalíu og Spáni en hefur borist þaðan m.a. til Þýskalands. Að baki liggur nafn rómversku mánagyðjunnar „Luna“ og latneska orðið „luna“ sem merkir tungl, máni.
Drengjanöfn á L
- LárusDrengurSamþykkt2 atkv.364 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af latneska orðinu "laurus" sem merkir lárviður.
- LogiDrengurSamþykkt2 atkv.289 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "logi" sem merkir eldur.
- LeifurDrengurSamþykkt2 atkv.231 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "leif" sem merkir það sem skilið er eftir og hefur almennt verið talið tákna arf, - afkomanda.
- LeóDrengurSamþykkt2 atkv.194 sem fyrsta nafn
Nafn þetta ef fengið af latneska orðinu "leo" sem merkir ljón.
- LúkasDrengurSamþykkt2 atkv.108 sem fyrsta nafn
Nafnið er yfirleitt talið stytting úr latínu „lūcānus“ og merkja „íbúi Lucaniu“ á Suður-Ítalíu. Það gæti líka verið gælumynd af latneska karlmannsnafninu „Lūcius“ sem merkir eiginlega „hinn bjarti“, skylt latínu „lūx“ sem merkir ljós. Elsta dæmi um nafnið á Íslandi er Lúkas Guðmundsson, kaupvottur á bréfi frá 1384, en það kemst svo ekki í almenna notkun fyrr en á 20. öld. Lúkasarmessa er 18. október, kennd við Lúkas guðspjallamann.
- LofturDrengurSamþykkt2 atkv.86 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tengt orðinu "loft". Í goðafræðinni var Loftur annað nafn fyrir Loka Laufeyjarson sem einnig var kallaður hinn fleygi. Líkleg merking þessa nafns er hinn fleygi, - upphafni.
- LeonardDrengurSamþykkt3 atkv.42 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman úr orðunum "leon" sem merkir ljón og "hard" í merkingunni harður, hugrakkur og gæti nafnið þá útlaggst hraust ljón, hraustur sem ljón, hugrakkur sem ljón.
- LukaDrengurSamþykkt13. mar 20242 atkv.39 sem fyrsta nafn
Nafnið er ítalskt, notað bæði fyrir karla og konur, og merkir „persóna frá Lucania“ á Ítalíu.
- LiamDrengurSamþykkt24. apr 20192 atkv.38 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega írsk stytting á „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið er nú notað víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
- LokiDrengurSamþykkt2 atkv.32 sem fyrsta nafn
Loki var einn af ásum samkvæmt Snorra-Eddu. Uppruni nafnsins er óviss. Sumir tengja hann við sögnina „lúka“ í merkingunni „gera enda á, ljúka við“. Aðrir vilja tengja nafnið við „log“ og „logi“ og telja að Loki hafi upphaflega verið eldvættur.
- LýðurDrengurSamþykkt2 atkv.30 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af þýska nafninu "Luitger" sem er samsett af forliðnum "liut" sem merkir fólk, - þjóð og viðliðnum "ger" sem merkir spjót.
- LucasDrengurSamþykkt24. feb 20212 atkv.29 sem fyrsta nafn
Enska og þýska myndin Lucas er yfirleitt talin stytting úr latínu „lūcānus“ og merkja „íbúi Lucaniu á Suður-Ítalíu“. Það gæti líka verið gælumynd af latneska karlmannsnafninu „Lūcius“ sem merkir eiginlega „hinn bjarti“, sbr. latínu „lūx“ „ljós“. Elsta dæmi um myndina Lúkas hér á landi er um kaupvottinn Lúkas Guðmundsson á bréfi frá 1384. Lúkasarmessa er 18. október, kennd við Lúkas guðspjallamann.
- LeonardoDrengurSamþykkt17. nóv 20214 atkv.26 sem fyrsta nafn
Spænsk-ítölsk mynd nafnsins, en að baki liggur væntanlega þýska nafnið „Leonhard“, samsett af „leō“ sem merkir ljón, í aukaföllum „leōn-“, og fornháþýska lýsingarorðinu „hart“ sem merkir sterkur, harður. Nafnið mun upphaflega hafa verið tekið upp í ensku úr fornfrönsku á dögum Normanna.
- LucaDrengurSamþykkt30. mar 20232 atkv.25 sem fyrsta nafn
Nafnið er ítalskt, notað bæði fyrir karla og konur, og merkir „persóna frá Lucania“ á Ítalíu.
- LarsDrengurSamþykkt1 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er norræn stytting á latneska nafninu "Laurentius" sem merkir maður frá Laurentium.
- LíamDrengurSamþykkt24. apr 20152 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega írsk stytting á „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið er nú notað víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
- LevíDrengurSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn
Nafnið er fengið úr Gamla testamentinu og merkir „sá sem er hændur að“. Lea gaf þriðja syni sínum þetta nafn þar sem hún taldi að bóndi sinn myndi þá hænast að sér.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á L
Hvaða nöfn byrja á L?
Það eru 213+ íslensk nöfn sem byrja á L, t.d. Lilja og Lárus. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á L?
Samtals eru 213 samþykkt nöfn sem byrja á L í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →