Cecilia

Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 38 bera nafnið

Nafnið er upphaflega latneskt, „Caecilia“, myndað af rómverska ættarnafninu „Caecilius“. Að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ sem merkir „blindur“. Heilög Cecilia dó píslarvættisdauða í Róm á 3. öld og er talin verndari tónlistar, einkum kirkjutónlistar, og er meðal vinsælustu dýrlinga kaþólskra. Elsta íslenska mynd nafnsins var „Cecilía“ og Sesselja Guðmundsdóttir er nefnd í Sturlungu, kona Bárðar Þorkelssonar á Söndum.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

22

Fyrsta nafn

27

Annað nafn

49

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

CecilíaKvenkynið af rómverska eftinafninu Caecilius, sem kemur af orðinu caecus í latínu og þýðir "blind/blindur".AmeliaAmelia er upprunnið af germanska nafnliðnum „amal“ sem merkir „ötull, hraustur“, og er skylt nafninu Amalía. Því er stundum ruglað saman við Emilíu, sem er af öðrum rótum.NathaliaNafnið er erlent að uppruna og útbreitt víða um Evrópu. Þangað barst það frá Rússlandi, „Natalya“. Upphaflega er nafnið síðlatneskt, „Natalia“, myndað af „dies natalis“ sem merkir fæðingardagur. Heilög Natalía varð dýrlingur á 4. öld þótt ekki dæi hún píslarvættisdauða.CelinaCelina er pólsk, portúgölsk og spænsk mynd af Céline, eða stytting á Marcelinu. Uppruni er ekki fyllilega viss; nafnið er ýmist tengt latneska „caelum“ („himinn“) eða nafninu Marcellus.VictoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.AheliaNafnið er listamannsnafn söngkonunnar Eddu Erlingsdóttur, sem sjálf segir það vera stafarugl úr eigin nafni. „Ahelia“ er einnig hebreskt orð og merkir „andardráttur, uppspretta lífsins“.ViktoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.CamillaÖnnur ritmynd af nafninu Kamilla.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.