Charlie
Nafnið er trúlega komið í íslensku úr ensku eða frönsku og er upphaflega dregið af þýsku orði sem merkti „frjáls maður“, skylt fornensku „churl“ „maður“. Það varð vinsælt í Evrópu fyrir áhrif frá Karlamagnúsi Frankakonungi (742/747–814) sem árið 800 lýsti sjálfan sig heilagan keisara Rómaríkis. Latnesk mynd nafns hans var „Carolus Magnus“ sem á ensku varð „Charles the great“, „Karl mikli“. „Charles“, eða upphaflega þýska myndin „Karl“, var notuð af kóngum og fyrirfólki í Evrópu á miðöldum en barst ekki til Englands fyrr en með Maríu Skotadrottningu (1542–1587). Hún var alin upp í Frakklandi og gaf syni sínum nafnið „Charles James“ (1566–1625) sem síðar varð James VI. Skotakonungur og frá 1603 James I. Englandskonungur.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fjöldi með nafn
7
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
7
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: