Greinar

Nöfn sem byrja á Á

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Á, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 124 nöfn sem byrja á Á í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á Á

  • Ásta
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.201 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er talið geta bæði verið stytting á nöfnum sem byrja á Ást- og hinsvegar leitt beint af orðinu ást.

  • Ásdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.991 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Kannski guðirnir vaki yfir Ásdísi.

  • Áslaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.517 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Ágústa
    StúlkaSamþykkt3 atkv.498 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta myndað af karlmannsnafninu Ágúst sem er stytting á latneska orðinu "augustus" sem merkir mikill/stórfenglegur

  • Ása
    StúlkaSamþykkt2 atkv.442 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur þekkst allt frá landnámsöld. Það er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðskeytinu "a". Ása merkir því gyðja, goðumlík, goðleg.

  • Ástrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.235 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-rós“.

  • Árný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.224 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ár" sem merkir góðæri og viðliðnum "ný" sem merkir nú, - ung. Árný er því síung og farsæl.

  • Ásthildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.219 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-hildur“.

  • Ásgerður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.201 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd. Ásgerður nýtur verndar guðanna.

  • Ásrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.144 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Áróra
    StúlkaSamþykkt3 atkv.142 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið frá rómversku gyðjunni Aurora sem var gyðja morgunroðans en gríska orðið "aurora" merkir morgunroði.

  • Álfheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.135 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Álf" sem merkir huldumaður, - vættur og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Ástríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.132 sem fyrsta nafn

    Nafnið hefur verið notað allt frá landnámsöld og kemur fram í fornbréfum frá 14., 15. og 16. öld. Það er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-ríður“. Nafnið „Astrid“ er notað í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og hefur einnig verið tekið upp í ensku- og þýskumælandi löndum.

  • Árdís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.95 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ár" sem merkir góðæri og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís, - valkyrja.

  • Álfrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.67 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Álf" sem merkir huldumaður, - vættur og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun. Nafnið er talið merkja leyndardómur.

  • Álfhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.44 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Álf" sem merkir huldumaður, - vættur og viðliðnum "hildur" sem merkir bardagi, - orrusta, - valkyrja.

  • Áshildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.32 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta.

  • Ásbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.29 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð í norrænni goðafræði og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp. Nafnið merkir guðleg hjálp.

  • Ástrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ásrún

  • Ársól
    StúlkaSamþykkt2 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ár-“ í merkingunni „árdegi“ og nafnorðinu „sól“, og merkir eiginlega „morgunsól“.

Drengjanöfn á Á

  • Árni
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.500 sem fyrsta nafn

    Eldri mynd nafnsins er „Arni“, skylt nöfnunum „Örn“ og „Ari“. Talið er að nafnið hafi ef til vill borist inn í íslensku úr fornnorrænu sem stytting á nöfnum með forliðnum „Arn-“. Nafnið er kunnugt hérlendis allt frá landnámsöld.

  • Ágúst
    DrengurSamþykkt2 atkv.894 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á latneska orðinu "augustus" sem merkir mikill/stórfenglegur

  • Ásgeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.804 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "geir" sem merkir spjót. Ásgeir gæti því verið vopn guðanna.

  • Ármann
    DrengurSamþykkt2 atkv.222 sem fyrsta nafn

    Ármann er heiti á fornum verndarvætti, sbr. „ármaður“ sem merkir verndarvættur, eiginlega „sendimaður“, leitt af „ár“ sem merkir sendiboði. Til er Ármanns saga sem gefin var út í Hrappsey 1782 og ortar voru rímur út af henni, meðal annars „Rímur af Ármanni og Helgu“ eftir Símon Dalaskáld. Sagan og rímurnar gætu hafa haft áhrif á nafngiftir í lok 19. aldar.

  • Ásmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.206 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

  • Ásbjörn
    DrengurSamþykkt2 atkv.146 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.

  • Ásgrímur
    DrengurSamþykkt3 atkv.102 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "grímur" sem merkir hulinn. Ásgrímur gæti því verið gríma guðanna, ásýnd guðanna.

  • Ástþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.96 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-þór“.

  • Ársæll
    DrengurSamþykkt2 atkv.87 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ár" sem merkir góðæri og orðinu "sæll". Ársæll er því sá hamingjusami/ánægði.

  • Áki
    DrengurSamþykkt2 atkv.39 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er ýmist talið koma úr fornháþýsku og þá frá orðinu "ano" sem merkir forfaðir, eða þá frá gríska orðinu "agat" sem merkir saklaus.

  • Ástvaldur
    DrengurSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-valdur“.

  • Áskell
    DrengurSamþykkt2 atkv.35 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðskeytinu "kell" sem merkilr hjálmur.

  • Ámundi
    DrengurSamþykkt3 atkv.29 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Á" sem talið er að merki agi, ógn og viðliðnum "mundi" sem merkir vernd, - vörn. Ámundi er því verndari.

  • Ásþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og "þór" sem merkir þrumugiðinn úr norrænni goðafræði.

  • Ásberg
    DrengurSamþykkt2 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur. Nafnið gæti því táknað bjargað af guðunum, bjargvættur guðanna eða álíka.

  • Ástráður
    DrengurSamþykkt3 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-ráður“, sem skyldur er nafnorðinu „ráð“ og sögninni „ráða“.

  • Ástmar
    DrengurSamþykkt2 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Ást-“ og viðliðnum „-mar“.

  • Ásvaldur
    DrengurSamþykkt3 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðunum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði viðliðnum "valdur" sem merkir sá sem ræður yfir, - hefur stjórn á.

  • Álfur
    DrengurSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Huldumaður

  • Álfgrímur
    DrengurSamþykkt3 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett úr forliðnum "Álf" sem merkir álfur/huldumaður og viðliðnum "grímur" sem merkir hulinn, - falinn.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á Á

Hvaða nöfn byrja á Á?

Það eru 124+ íslensk nöfn sem byrja á Á, t.d. Ásta og Árni. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Á?

Samtals eru 124 samþykkt nöfn sem byrja á Á í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →