Greinar

Nöfn sem byrja á R

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum R, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 189 nöfn sem byrja á R í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á R

  • Ragnheiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.233 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Rakel
    StúlkaSamþykkt2 atkv.1.027 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er hebreskt biblíunafn sem merkir ær, - gimbur.

  • Ragnhildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.552 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Rósa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.547 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu rós.

  • Rebekka
    StúlkaSamþykkt3 atkv.476 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt.

  • Rannveig
    StúlkaSamþykkt2 atkv.445 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Rann" sem merkir hús, - heimili og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

  • Ragna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.386 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting nafna sem byrja á "Ragn-".

  • Rut
    StúlkaSamþykkt1 atkv.195 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni en merking er ekki þekkt.

  • Ronja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.165 sem fyrsta nafn

    1. Astrid Lindgren fann upp á því fyrir Ronju ræningjadóttur, hún tók það úr nafninu "Juronjaure" sem er stöðuvatn í Lapplandi. 2. Rússneskt gælunafn á t.d. Veronica. 3. Nafnið Ronyah er þekkt í hebresku og þýðir Guðs hamingja.

  • Regína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.149 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska nafnorðinu "régína" sem merkir drottning.

  • Rúna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.121 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er algeng stytting nafna sem enda á "-rún". Einnig er það skylt nafnorðinu "rúna" sem merkir trúnaðarvinkona.

  • Renata
    StúlkaSamþykkt3 atkv.107 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er kvenmynd franska karlmannsnafnsins "René" sem merkir endurborinn, - endurfæddur.

  • Ruth
    StúlkaSamþykkt1 atkv.57 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Rut.

  • Rán
    StúlkaSamþykkt1 atkv.50 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur verið tengt nafnorðinu "ræna" sem merkir skynsemi, - meðvitund. Sumir telja að nafnið sé hingað komið úr norrænni goðafræði og þá frá sjávargyðjunni Rán sem safnaði saman þeim sem höfðu drukknað.

  • Ríkey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.50 sem fyrsta nafn

    Fyrri liður nafnsins er sama orð og lýsingarorðið „ríkur“ sem merkir „voldugur“, en síðari liðurinn „-ey“ er sama viðlið og í nafninu „Ey“. Einhverjar nafngiftanna munu jafnframt sóttar til karlmannsnafnsins „Eiríkur“.

  • Rita
    StúlkaSamþykkt2 atkv.45 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af fuglsheitinu rita.

  • Rós
    StúlkaSamþykkt1 atkv.21 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af jurtaheitinu rós.

  • Röskva
    StúlkaSamþykkt2 atkv.16 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Snorra-Eddu, þar sem Röskva var systir Þjálfa og valdi Þór þau til ferðar með sér til Útgarða-Loka. Nafnið er dregið af lýsingarorðinu „röskur“ sem merkir vaskur, fljótur.

  • Rósalind
    StúlkaSamþykkt3 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af jurtaheitinu rós og viðliðnum "lind" sem merkir tær, - hrein. Önnur hugmynd er sú að nafnið sé komið úr þýsku og sé sett saman af forliðnum "hroth" sem merkir hróður og viðliðnum "lind" sem merkir mildur.

  • Rún
    StúlkaSamþykkt1 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun.

Drengjanöfn á R

  • Ragnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.239 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ragn" sem merkir ýmist goð, - goðmögn eða ráð, - ákvörðun og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Róbert
    DrengurSamþykkt2 atkv.854 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi.

  • Rúnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.759 sem fyrsta nafn

    Nafnið er tiltölulega ungt í íslensku en „Runar“ þekkist í Svíþjóð frá síðari hluta 19. aldar og barst til Noregs í upphafi 20. aldar. Það er sett saman af „rún“ sem merkir „töfrastafur, sérstakt rittákn“ en einnig „leyndardómur, trúnaðarkona“ og viðskeytinu „-ar“.

  • Reynir
    DrengurSamþykkt2 atkv.500 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af tjáheitinu reynir.

  • Robert
    DrengurSamþykkt30. jan 20082 atkv.346 sem fyrsta nafn

    Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá miðöldum, meðal annars sem „Hróðbjartr“, „Róðbertr“ og „Rotbert“. Það er tökunafn úr fornháþýsku „Hruodperht“, „Ruodpert“, „Rodbert“, sett saman af nafnorðinu „hroth“ sem merkir hróður, frægð, og lýsingarorðinu „beraht“ sem merkir bjartur, skínandi.

  • Rafn
    DrengurSamþykkt1 atkv.144 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir hrafn.

  • Rökkvi
    DrengurSamþykkt2 atkv.129 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er ungt í íslensku máli, er fyrst vitað til þess að það hafi verið notað á áttunda áratug síðustu aldar. Það er skylt nafnorðinu "rökkur" og sögninni "að rökkva" og gæti því merkt hinn dökkleiti. Nafnið var einnig notað um sjávarguði í fornum kveðskap.

  • Rögnvaldur
    DrengurSamþykkt3 atkv.121 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af nafnorðinu "rögn" sem merkir goðmögn og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á.

  • Rúrik
    DrengurSamþykkt2 atkv.112 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er þýskt að uppruna, sett saman af nafnorðinu "hroth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "rihhi" sem merkir ríkur, - voldugur.

  • Ríkharður
    DrengurSamþykkt3 atkv.104 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er þýskt að uppruna, kemur af nafninu "Richard" sem sett er saman af lýsingarorðinu "rihhi" sem merkir ríkur, - voldugur og lýsingarorðinu "harti" sem merkir harður, - sterkur.

  • Richard
    DrengurSamþykkt2 atkv.93 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ríkharður.

  • Rafael
    DrengurSamþykkt3 atkv.88 sem fyrsta nafn

    Af Raphael, úr hebresku og merkir Guð hefur læknað.

  • Runólfur
    DrengurSamþykkt3 atkv.83 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af kvennafninu "Rún" sem merkir leyndardómur, dulin, - vinur í raun og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Ríkarður
    DrengurSamþykkt3 atkv.44 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ríkharður.

  • Rafnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafninu "Hrafn" með viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Rudolf
    DrengurSamþykkt2 atkv.18 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Rúdólf.

  • Ronald
    DrengurSamþykkt29. sep 20102 atkv.18 sem fyrsta nafn

    Nafnið er ensk eða skosk hliðarmynd við „Reynold“ og „Reynald“, og svarar til norska nafnsins „Ragnvald“, þýska nafnsins „Reinhold“ og íslenska nafnsins „Rögnvaldur“.

  • Rósant
    DrengurSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta líklega myndað af kvennafninu "Rósa" sem merkir rós.

  • Ríkharð
    DrengurSamþykkt15. apr 20052 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ríkharður.

  • Randver
    DrengurSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af nafnorðinu "rönd" sem merkir skjöldur og viðliðnum "vér" sem merkir bardagamaður.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á R

Hvaða nöfn byrja á R?

Það eru 189+ íslensk nöfn sem byrja á R, t.d. Ragnheiður og Ragnar. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á R?

Samtals eru 189 samþykkt nöfn sem byrja á R í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →