Cecil

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 4 bera nafnið

Nafnið er trúlega tökunafn úr ensku. „Cecil“ er dregið af eftirnafni ættgöfugrar fjölskyldu af velskum uppruna á 16. öld. Eftirnafnið er ensk mynd velska nafnsins „Seissylt“, sem er bretónsk eða fornvelsk mynd latneska nafnsins „Sextilius“, af „Sextus“ „sjötti“. Á miðöldum var nafnið einnig stundum notað sem ensk mynd latneska nafnsins „Caecilius“, forns rómversks ættarnafns dregið af þorpsnafninu „Caecus“, en að baki þess liggur latneska lýsingarorðið „caecus“ „blindur“. „Caecilius“ var nafn á rómverskum dýrlingi sem uppi var á þriðju öld.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

1

Fyrsta nafn

3

Annað nafn

4

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

CesarNafnið er rómverskt ættarnafn af óvissum uppruna og merkingu. Það var tekið upp sem heiðursnafn rómverskra keisara og af því er orðið „keisari“ dregið. Frægasti maður með þessu nafni var án efa Gaius Julius Caesar, rómverskur hershöfðingi, stjórnmálamaður og sagnaritari. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 16. öld og í Danmörku frá 18. öld, en er sjaldgæft í Noregi; það tíðkast einnig á Englandi sem „Caesar“ og í Þýskalandi sem „Cäsar“.EmilNafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.JamilNafnið er arabískt og merkir „fagur“.EgillNafn þetta er af norrænum uppruna, leitt af rótinni agi, - ógn.AdilNafnið er arabískt og talið merkja „heiðarlegur“. Það hefur eitthvað verið notað á Norðurlöndum.CýrusNafnið er grísk eða latnesk mynd af persnesku „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.CarlGermönsk mynd af nafninu Karl sem merkir maður.CyrusNafnið er grísk eða latnesk mynd af persneska nafninu „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.