Nöfn sem byrja á S
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum S, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 602 nöfn sem byrja á S í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á S
- SigríðurStúlkaSamþykkt3 atkv.3.072 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "ríður" sem merkir falleg, - umhygglusöm.
- SigrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.2.423 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
- SaraStúlkaSamþykkt2 atkv.1.425 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa.
- SteinunnStúlkaSamþykkt2 atkv.1.080 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.
- SólveigStúlkaSamþykkt2 atkv.952 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur verið notað hér á landi frá upphafi byggðar og kemur fyrir í Íslendinga sögum, Sturlungu og fornbréfum, þá oftast ritað „Solveig“. Uppruni nafnsins er þó óviss: það hefur verið tengt orðinu „salur“ „stórt herbergi, loft í húsi“ og elsta mynd þess talin „Sal-“ eða „Sölveig“, en ritmyndin „Solveig“ í fornum handritum getur í raun staðið fyrir „Sal-“, „Sol-“, „Söl-“ eða „Sólveig“ svo að ekki er hægt að fullyrða með vissu hvað liggi að baki. Talið er óvíst hvort myndin „Sólveig“, tengd nafnorðinu „sól“, komi fram fyrr en í lok 19. aldar eða upphafi þeirrar 20. Í Noregi þekktist nafnið á miðöldum og varð mjög vinsælt á 18. öld en vinsældir þess jukust enn frekar eftir að leikritið „Pétur Gautur“ eftir Ibsen kom út árið 1867, en þar heitir aðalkvenpersónan „Sólveig“. „Söngur Sólveigar“ við tónlist Griegs er afar vinsæll og hefur eflaust orðið kveikjan að mörgum nafngjöfum. Frá Norðurlöndunum barst nafnið síðan til Englands og Þýskalands.
- SandraStúlkaSamþykkt2 atkv.816 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ítalskt að uppruna og er stytting á nafninu "Alessandra" sem á Íslandi mundi útleggjast Alexandra.
- SóleyStúlkaSamþykkt2 atkv.759 sem fyrsta nafn
Nafnið er myndað af forliðnum „Sól-“ og viðliðnum „ey“ og merkir þá „sólareyja“. Hugsanlega gæti jurtarheitið „sóley“ einnig legið að baki sumum nafngiftunum.
- SigurbjörgStúlkaSamþykkt3 atkv.625 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.
- SunnaStúlkaSamþykkt2 atkv.582 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "sunna" sem merkir sól.
- SoffíaStúlkaSamþykkt3 atkv.460 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af gríska nafnorðinu "sopheía" sem merkir viska.
- SigurlaugStúlkaSamþykkt3 atkv.434 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.
- SólrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.377 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sól" sem fenginn er af nafnorðinu "sól" og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
- SvanhildurStúlkaSamþykkt3 atkv.355 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Svan" sem merkir svanur og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.
- SelmaStúlkaSamþykkt2 atkv.347 sem fyrsta nafn
Nafn þetta merkir hin fagra og er komið af örnefninu "Shelma" sem talað er um í þýsku kvæði frá 1765.
- SagaStúlkaSamþykkt2 atkv.322 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er dregið af nafnorðinu "saga" sem merkir frásögn.
- StellaStúlkaSamþykkt2 atkv.295 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af latneska nafnorðinu "stella" sem merkir stjarna.
Drengjanöfn á S
- SigurðurDrengurSamþykkt3 atkv.3.934 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af fornháþýska nafninu "Sigwart" sem er myndað af forliðnum "Sig" sem merkir sigur og viðliðnum "wart" sem merkir vörður, verndari.
- StefánDrengurSamþykkt2 atkv.2.128 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska orðinu "stéphanos" sem merkir kóróna.
- SveinnDrengurSamþykkt1 atkv.975 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "sveinn" sem merkir drengur, - þjónn.
- SigurjónDrengurSamþykkt3 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.
- SindriDrengurSamþykkt2 atkv.706 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "sindur" sem merkir glóandi járnsvarf, - gjall.
- SævarDrengurSamþykkt2 atkv.594 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.
- SnorriDrengurSamþykkt2 atkv.576 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er ýmist talið merkja óstýrlátur maður, eða þá að það sé komið af nafnorðinu "snerra" sem merkir harður bardagi.
- SverrirDrengurSamþykkt2 atkv.549 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af sögninni "að sverra" sem merkir sveifla, - þyrla og getur því þýtt óstýrlátur maður.
- SteinarDrengurSamþykkt2 atkv.502 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Stein" sem fenginn er af nafnorðinu "steinn" og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.
- SölviDrengurSamþykkt2 atkv.398 sem fyrsta nafn
Ýmist er talið að nafn þetta sé leitt af lýsingarorðinu "sölur" sem merkir fölleitur eða þá að það sé myndað af forliðnim "söl" í merkingunni salur og viðliðnum "vér" sem merkir bardagamaður. Sölvi er því annaðhvort fölleitur maður eða sá sem ver híbýli.
- SkúliDrengurSamþykkt2 atkv.363 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af nafnorðinu "skjól" og merkir sá sem skýlir, - verndari.
- StyrmirDrengurSamþykkt2 atkv.318 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af sögninni "að styrma" sem merkir blása, - æða áfram.
- SebastianDrengurSamþykkt4 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafnið er af sumum rakið til gríska nafnsins „Sebastianós“, „maður frá Sebasta“, en Sebasta var borg í Litlu-Asíu. Aðrir telja það leitt af gríska lýsingarorðinu „sebastós“, „tiginn“. Heilagur Sebastian var píslarvottur sem uppi var á þriðju öld.
- SigurbjörnDrengurSamþykkt3 atkv.308 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
- SvavarDrengurSamþykkt2 atkv.300 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur af heiti þjóðflokks í Þýskalandi til forna sem kallaðist "Sváfar" og merkir nafnið svafneskur maður, - maður frá Scwaben/Sváflandi.
- SveinbjörnDrengurSamþykkt2 atkv.287 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Svein" sem fenginn er af nafnorðinu "sveinn" og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
- SæmundurDrengurSamþykkt3 atkv.250 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sæ" sem merkir sær, - sjór og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.
- SigurgeirDrengurSamþykkt3 atkv.234 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.
- SigfúsDrengurSamþykkt2 atkv.226 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "fús" sem merkir viljugur, - ákafur.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á S
Hvaða nöfn byrja á S?
Það eru 602+ íslensk nöfn sem byrja á S, t.d. Sigríður og Sigurður. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á S?
Samtals eru 602 samþykkt nöfn sem byrja á S í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →