Greinar

Nöfn sem byrja á D

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum D, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 173 nöfn sem byrja á D í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á D

  • Dagný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.529 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dag" sem merkir dagur og viðliðnum "ný" sem merkir ný.

  • Dagbjört
    StúlkaSamþykkt2 atkv.413 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dag" sem merkir dagur og viðliðnum "björt" sem merkir björt, - skær.

  • Dóra
    StúlkaSamþykkt2 atkv.279 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á lengri nöfnum sem borist hafa hingað til lands frá Norðurlöndum aðallega, s.s. Dorothea og Theodora. Einnig er það notað sem stytting á íslenskum nöfnum eins og Halldóra.

  • Díana
    StúlkaSamþykkt3 atkv.249 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr rómverskri goðafræði en Díana var gyðja veiða auk þess sem hún var mánagyðja. Giskað hefur verið á að nafnið sé af sama stofni og orðið "deus" sem merkir guð.

  • Dagmar
    StúlkaSamþykkt2 atkv.208 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er dönsk ummyndun fornslavneska nafnsins Dragomir sem er sett saman úr forliðnum "Dragi" sem merkir kær og viðliðnum "mir" sem merkir friður.

  • Diljá
    StúlkaSamþykkt2 atkv.187 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upprunnið úr grískri goðafræði en "Delia" var annað nafn gyðjunnar Artemisar. Artemis á að hafa tekið þetta nafn frá sínum fæðingarstað sem var eyjan Delos.

  • Drífa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.134 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta merkir snjór. Nafn þetta kemur fyrir í Fornaldarsögum Norðurlanda en dætur Snæs konungs hétu Mjöll, Drífa og Fönn. Einnig kemur þetta nafn fyrir í Andrésblöðum en frænkur Andrésínu heita einmitt Mjöll, Drífa og Fönn.

  • Dagrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.76 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dag" sem merkir dagur og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Dröfn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.71 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr fornsögunum. Ein af dætrum Ægis sjávarkonungs og Ránar konu hans hét einmitt Dröfn og merkir nafnið alda, - bára.

  • Dýrleif
    StúlkaSamþykkt2 atkv.58 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Dýr" sem merkir verðmæt, - kær og viðliðnum "leif" sem merkir arfur.

  • Dóróthea
    StúlkaSamþykkt4 atkv.51 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr grísku og er sett saman af grísku orðunum "doron" sem merkir gjöf og "theos" sem merkir guð. Dóróthea er því gjöf guðs.

  • Dögg
    StúlkaSamþykkt1 atkv.46 sem fyrsta nafn

    Áfall, náttfall. Nafn þetta er einnig vinsæll viðliður kvennafna.

  • Daníela
    StúlkaSamþykkt4 atkv.45 sem fyrsta nafn

    Kvenmynd karlmannsnafnsins Daníel.

  • Dalía
    StúlkaSamþykkt18. des 20033 atkv.36 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna, talið hebresk stytting á biblíunafninu „Gedalja“ sem var karlmannsnafn í merkingunni „Guð hefur gert mikið“. Það var síðan ummyndað í kvenmannsnafnið „Dalia“. Nafnið þekkist sem tökunafn í Þýskalandi.

  • Dana
    StúlkaSamþykkt2 atkv.34 sem fyrsta nafn

    Ýmsar kenningar eru um uppruna þessa nafns. Dana getur átt að merkja hin danska, nafnið er af sumum talið koma úr biblíunni og enn aðrir telja það vera styttingu á öðrum nöfnum s.s. Daníela.

  • Dísa
    StúlkaSamþykkt2 atkv.29 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafninu "Dís" sem merkir heilladís, með viðskeytinu "a" fyrir aftan. Einnig er það notað sem stytting á nöfnum sem enda á "dís" s.s. Hjördís, Vigdís o.fl.

  • Dalrós
    StúlkaSamþykkt2 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dal" sem fenginn er af nafnorðinu "dalur" og viðliðnum "rós" sem merkir blómið rós.

  • Dögun
    StúlkaSamþykkt28. maí 20042 atkv.22 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur sömu merkingu og nafnorðið sem það er dregið af.

  • Droplaug
    StúlkaSamþykkt2 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman úr orðinu "dropi" og viðliðnum "laug" sem merkir tær, - hrein.

  • Dísella
    StúlkaSamþykkt3 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Ungt nafn en uppruni þess er ekki fullljós. Það er þekkt sem gælunafn frá því fyrir miðja 20. öld, meðal annars leitt af nöfnum á borð við „Herdís Elín“.

Drengjanöfn á D

  • Daníel
    DrengurSamþykkt3 atkv.1.429 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er ættað úr hebresku og þýðir Guð er minn dómari.

  • Davíð
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.025 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur úr hebresku og biblíunni og merkir hinn elskaði.

  • Dagur
    DrengurSamþykkt2 atkv.651 sem fyrsta nafn

    Dagur.

  • Daniel
    DrengurSamþykkt18. júl 20053 atkv.524 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Daníel.

  • Daði
    DrengurSamþykkt2 atkv.327 sem fyrsta nafn

    Séríslenskt nafn, þekkt allt frá 10. öld. Uppruni þess er óviss en ýmsar kenningar á lofti um merkingu þess, s.s. að nafnið merki dáð eða að það hafi upphaflega orðið til upp úr barnamáli fyrir orðið faðir.

  • Dominik
    DrengurSamþykkt21. des 20123 atkv.176 sem fyrsta nafn

    Nafnið er dregið af latneska orðinu „dominicus“ í merkingunni „herrans (ef.), sem heyrir til Drottni“ og var fyrr á öldum gjarnan gefið drengjum sem fæddust á sunnudegi. Heilagur Dominicus (1170–1221) stofnaði reglu dóminikana. Nafnið er algengt í Evrópu og er ritháttur breytilegur, t.d. „Dominic“, „Dominick“, „Dominique“.

  • Darri
    DrengurSamþykkt2 atkv.120 sem fyrsta nafn

    Ýmsar kenningar eru til um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það komið frá norska orðinu "darre" sem merkir letingi og aðrir vilja meina að það geti verið tengt nafnorðinu "darr" sem merkir spjót.

  • Dagbjartur
    DrengurSamþykkt3 atkv.73 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Dag" sem kemur frá orðinu dagur og viðliðnum "bjartur" sem merkir bjartur, - skínandi.

  • Diego
    DrengurSamþykkt20. sep 20183 atkv.26 sem fyrsta nafn

    Nafnið er spænskt að uppruna, stytting á „San Diego“ (heilagur Jakob), nafni pílagríms frá 12. öld sem meðal annars kemur fram í borgarheitinu Santiago de Compostela á Spáni.

  • Dan
    DrengurSamþykkt1 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Danskur. Dan konungur, sem Danmörk heitir eftir, skv. Snorra.

  • Dennis
    DrengurSamþykkt27. apr 20112 atkv.20 sem fyrsta nafn

    Dennis er komið úr frönsku eða ensku sem stytting af gríska nafninu Díónýsíusi, „vígður Díónýsíusi (guði víns og lífsgleði í grísku goðafræðinni)“. Það er skylt frönsku og rússnesku Denis. Nafnið er þekkt á Norðurlöndum, í Þýskalandi, Ameríku og á Englandi.

  • Diðrik
    DrengurSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur úr þýsku og þýðir bæði þjóð og sá sem ræður.

  • Draupnir
    DrengurSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er skylt sögninni að drjúpa. Það var einnig nafn á hring Óðins, sem var æðstur allra goða í norrænni goðafræði, en af Draupni drupu aðrir hringar.

  • Dylan
    DrengurSamþykkt26. jan 20222 atkv.13 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent og rakið til Wales. Í Bandaríkjunum er það kynhlutlaust, þ.e. bæði notað sem nafn á drengi og stúlkur. Nafnið er talið merkja „haf, sjór“.

  • Dofri
    DrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Djúpur dalur, - gil.

  • Dýri
    DrengurSamþykkt2 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Dýrmætur, - máttugur.

  • Danival
    DrengurSamþykkt3 atkv.10 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss og finnst það ekki í nálægum málum. Hugsanlega er það sett saman af „Daníel“ og nafni sem hefst á „Val“-. Endingin „-val“ gæti einnig verið mynduð með hliðsjón af nafni kappans „Parsivals“, en þar er „-val“ úr fornfrönsku, sbr. latínu „vallis“, „dalur“.

  • Dexter
    DrengurSamþykkt22. sep 20172 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafnið er fyrst og fremst notað í enskumælandi löndum. Merkingin er sögð vera „sá sem litar föt“ en gæti einnig tengst latneska orðinu „dexter“ sem merkir hægri; rétthentur, sá sem notar hægri hönd.

  • Damjan
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Sennilega sama nafn og „Damian“ sem er vel þekkt í enskumælandi löndum og Póllandi. Það á rætur í gríska nafninu „Damianos“ sem aftur er líklega skylt gríska orðinu „damazein“ sem merkir að temja.

  • Dúi
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er upphaflega gælunafn af ýmsum nöfnum.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á D

Hvaða nöfn byrja á D?

Það eru 173+ íslensk nöfn sem byrja á D, t.d. Dagný og Daníel. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á D?

Samtals eru 173 samþykkt nöfn sem byrja á D í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →