Nafnalisti

Nöfn á P: 58+ stúlku- og drengjanöfn

Öll eiginnöfn á mannanafnaskrá sem byrja á P, flokkuð í stúlkunöfn og drengjanöfn.

Stúlkunöfn

38 nöfn
  • Pálína

    Stúlkunafn171 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Paulina" sem merkir Pála litla.

  • Petra

    Stúlkunafn137 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er myndað af latneska nafninu "Petrus" sem merkir klettur.

  • Perla

    Stúlkunafn103 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "perla".

  • Petrína

    Stúlkunafn45 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Petra.

  • Patricia

    Stúlkunafn41 sem fyrsta nafn · Nafnið er erlent og leitt af karlmannsnafninu „Patrick“, sem er sömu ættar og „Patrekur“.

  • Petrea

    Stúlkunafn31 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Petra.

  • Pála

    Stúlkunafn24 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Páll.

  • Pamela

    Stúlkunafn17 sem fyrsta nafn · Nafnið er erlent að uppruna og virðist fyrst koma fyrir í ljóði eftir Sir Philip Sidney á 16. öld. Merking þess er óljós.

  • Pia

    Stúlkunafn14 sem fyrsta nafn · Pia er kvenkynsmynd af latneska nafninu Pius. Það er dregið af latneska lýsingarorðinu „pius“ sem merkir „skyldurækinn“ eða „guðrækinn“.

  • Pálmey

    Stúlkunafn13 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Pálmi" sem merkir stólpi og viðliðnum "ey".

  • París

    Stúlkunafn12 sem fyrsta nafn · París, höfuðborg Frakklands, sem fékk nafn sitt frá fornum Keltneskum þjóðflokki er kallaður var Parisii.

  • Petrún

    Stúlkunafn6 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Petra.

  • Páley

    Stúlkunafn4 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Páll" sem merkir lítill og viðliðnum "ey".

  • Pálfríður

    Stúlkunafn4 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Páll" sem merkir lítill og viðliðnum "fríður" sem merkir ást, - falleg.

  • Peta

    Stúlkunafn3 sem fyrsta nafn · „Peta“ er stytting á nafninu „Petrea“. Í einhverjum tilvikum gæti nafnið einnig verið tökunafn úr ensku en þar er „Peta“ gefið sem kvenkynsmynd af „Peter“.

  • Petronella

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Úr latínu, af Petronius.

  • Polly

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Pollý.

  • Páldís

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu "Páll" sem merkir lítill og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Pálín

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Pálína.

  • Petrúnella

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Nafnið er leitt af rómverska ættarnafninu „Petrōnius“ en uppruni þess er óviss. Heilög Petronilla var píslarvottur í Róm á fyrstu öld e.Kr. og var nafn hennar fljótlega tengt nafninu „Petrus“ (sbr. Pétur); ýmsar helgisögur gerðu hana að dóttur Péturs postula. Um hana var ort í „Heilagra meyja drápu“ frá 14. öld. Nafnmyndir á borð við „Petronella“ og „Petronilla“ þekkjast víða í Evrópu, t.d. í Svíþjóð frá 15. öld, en yngri mynd þar er „Pernilla“; í Danmörku hefur „Pernille“ tíðkast frá 14. öld.

Sjá öll stúlkunöfn á P →

Drengjanöfn

20 nöfn
  • Pétur

    Drengjanafn1.338 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er fengið úr biblíunni, er komið af gríska nafninu "Pétros" sem merkir klettur. (Sjá Jóhannesarguðspjall 1:42)

  • Páll

    Drengjanafn946 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er biblíunafn, fengið af lýsingarorðinu "paulus" sem merkir lítill.

  • Pálmi

    Drengjanafn262 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óljós. Sumir telja það sama orð og „pálmi“ - tré af pálmaætt, komið úr latínu „palma“ sem merkir bæði „pálmatré“ og „lófi, hönd“. Aðrir tengja það við forndanska nafnið „Palm“/„Palmir“, dregið af orðinu „pall“ sem merkir „páll; stólpi“. Nafnið kemur fyrir í fornbréfum frá 15. og 16. öld.

  • Patrekur

    Drengjanafn212 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er leitt af latneska nafnorðinu "patricus" sem merkir aðalsmaður. Önnur hugmynd er sú að nafnið sé komið af latneska nafnorðinu "pater" sem merkir faðir.

  • Patrik

    Drengjanafn93 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Patrekur.

  • Pálmar

    Drengjanafn70 sem fyrsta nafn · Nafnið er talið hafa borist frá Noregi, þar sem það þekkist frá síðari hluta 19. aldar í myndinni „Palmar“. Það er talið hugsanleg afleiðsla af kvenmannsnafninu „Palma“, sem líklega er myndað af latneska orðinu „palma“ er getur merkt bæði „lófi, hönd“ og „pálmatré“. Íslenska nafnið „Pálmar“ gæti verið aðlögun að þessu norska nafni.

  • Peter

    Drengjanafn67 sem fyrsta nafn · Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“

  • Patrick

    Drengjanafn50 sem fyrsta nafn · Nafnið er komið úr fornírsku „Pátraic“ og kemur fyrir á dýrlingi sem tókst að kristna mestan hluta Írlands á 5. öld; hans er einnig minnst í örnefninu „Patreksfjörður“. Heilagur Patrekur er í latneskum heimildum skráður „Patricius“ sem merkir eiginlega „aðalsmaður, maður af ætt patricia“, sbr. latínu „pater“ „faðir“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 18. öld og er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.

  • Pjetur

    Drengjanafn18 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Pétur.

  • Per

    Drengjanafn10 sem fyrsta nafn · Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“

  • Paolo

    Drengjanafn9 sem fyrsta nafn · Nafnið er ítalskt að uppruna og merkir „lítill“.

  • Patrek

    Drengjanafn4 sem fyrsta nafn · Nafnið er komið úr fornírsku „Pátraic“ og kemur fyrir á dýrlingi sem tókst að kristna mestan hluta Írlands á 5. öld; hans er einnig minnst í örnefninu „Patreksfjörður“. Heilagur Patrekur er í latneskum heimildum skráður „Patricius“ sem merkir eiginlega „aðalsmaður, maður af ætt patricia“, sbr. latínu „pater“ „faðir“. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 18. öld og er notað bæði í ensku- og þýskumælandi löndum.

  • Parmes

    Drengjanafn2 sem fyrsta nafn · Nafnið er þekkt úr sögupersónunni „Parmesi loðinbirni“ sem rímur voru ortar um frá 1832 og fram til 1871. Sagan af Parmesi loðinbirni eftir séra Jón Bjarnason kom út á prenti í Reykjavík árið 1884.

  • Palli

    Drengjanafn2 sem fyrsta nafn · Algengt gælunafn manna sem heita „Páll“.

  • Petter

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“

  • Príor

    Drengjanafn · Nafnið er erlent að uppruna og notað í enskumælandi löndum. Það er leitt af latneska orðinu „prīmus“ sem merkir „fyrstur“.

  • Pedró

    Drengjanafn · Nafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“

  • Pírati

    Drengjanafn · Orðið „pírati“ er tökuorð úr ensku „pirate“ og merkir „sjóræningi“. „Pírati“ hefur verið notað sem nafn á stjórnmálaflokk hér á landi og erlendis.

  • Patti

    Drengjanafn · Getur verið gælunafn myndað af nafninu „Patrekur“, en einnig gæti nafnorðið „patti“, sem merkir smástrákur eða snáði, legið að baki.

  • Pá

    Drengjanafn · Nafnið er líklega sama orð og „pá“ (fornnorrænt „pái“) sem merkir „páfugl“.

Sjá öll drengjanöfn á P →

Samtals eru 58 nöfn sem byrja á P í gagnagrunninum.

Heimild: Þjóðskrá Íslands, nafnaskrá og fjöldi nafnbera · sótt 22. október 2026

Algengar spurningar um nöfn á P

Hvaða nöfn byrja á P?

Það eru 58+ íslensk nöfn sem byrja á P, t.d. Pálína og Pétur. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á P?

Samtals eru 58 samþykkt nöfn sem byrja á P í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Þrengdu leitina

Öll nöfn á P í nafnaleitinni, með síum fyrir lengd og fjölda.

Skoða öll nöfn