Nöfn sem byrja á A
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum A, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 382 nöfn sem byrja á A í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á A
- AnnaStúlkaSamþykkt2 atkv.4.692 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.
- AuðurStúlkaSamþykkt2 atkv.1.116 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu en þekktasti nafnberi til forna var „Auður djúpúðga“. „Auður“ er sama orð og nafnorðið „auður“ sem merkir „ríkidæmi, auðæfi“.
- AndreaStúlkaSamþykkt3 atkv.846 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er kvenmynd nafnsins Andreas sem aftur er norræn mynd nafnsins Andrés sem er biblíunafnið Andréas úr grísku og táknar hugrekki.
- AlexandraStúlkaSamþykkt4 atkv.580 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur frá karlmannsnafninu Alexander sem merkir verndari.
- AnítaStúlkaSamþykkt3 atkv.568 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er spænsk smækkunarmynd og merkir Anna litla.
- AðalheiðurStúlkaSamþykkt4 atkv.524 sem fyrsta nafn
Myndað af forliðnum "Aðal-" og viðliðnum -"heiður" Þar sem "Aðal" merkir aðall, - göfugur, - yfirstétt og "heiður" merkir björt, - skær, er merking nafnsins því Göfug og björt. Það er því létt yfir Aðalheiði.
- AgnesStúlkaSamþykkt2 atkv.511 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur að öllum líkindum úr grísku. Þar merkir það hreinn, - skírlífur. Agnes var vinsæll dýrlingur á miðöldum og er Agnesarmessa haldin þann 21. janúar ár hvert í kaþólskum sið. Nafnið Agnes gæti því táknað ljúfmennsku og hið góða.
- AldísStúlkaSamþykkt2 atkv.409 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og er talið hliðarmynd við „Álfdís“. Þriggja kvenna með nafninu er getið í Sturlungu. Nafnið er sett saman af forliðnum „Al-“ og viðliðnum „-dís“.
- ArndísStúlkaSamþykkt2 atkv.389 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Arndís er því heilladís heimilisins.
- AldaStúlkaSamþykkt2 atkv.363 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af orðinu alda (á sjó), bára, bylgja.
- AþenaStúlkaSamþykkt3 atkv.314 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði en Aþena var gyðja skynsemi og handiðnar, auk þess sem hún var stríðsgyðja.
- AlmaStúlkaSamþykkt2 atkv.293 sem fyrsta nafn
Upprunnið af latneska orðinu "almus" sem merkir nærandi, frjósamur, mildur.
- AðalbjörgStúlkaSamþykkt3 atkv.209 sem fyrsta nafn
Myndað af forliðnum "Aðal-" og viðliðnum -"björg" Þar sem "Aðal" merkir aðall, - göfugur, - yfirstétt og "björg" merkir vernd, - hjálp, er merking nafnsins því Göfug vernd eða Göfug hjálp. Aðalbjörg er því sú sem hjálpar og menn geta reitt sig á.
- AnaStúlkaSamþykkt2. júl 20242 atkv.179 sem fyrsta nafn
Nafn þetta virðist eiga sér tvo uppruna, annarsvegar er talið að það sé spænska útgáfan af nafninu Anna sem merkir "náð". Hinsvegar er það talið koma frá Rússlandi en sé þangað komið frá Grikklandi upprunalega og sé þá merking nafnsins "sú sem rís á ný" eða "sú sem stendur aftur upp"
- AnitaStúlkaSamþykkt3 atkv.142 sem fyrsta nafn
Nafnið er spænskt að uppruna, smækkunarmynd af nafninu „Anna“. Það hefur verið notað á Norðurlöndum frá 19. öld og er auk þess algengt í ensku- og þýskumælandi löndum og á Ítalíu.
- ArneyStúlkaSamþykkt2 atkv.140 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "ey".
- AgataStúlkaSamþykkt3 atkv.112 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið af gríska orðinu "agathos" sem merkir góður. Agata er því "hin góða".
Drengjanöfn á A
- ArnarDrengurSamþykkt2 atkv.1.741 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"
- AronDrengurSamþykkt2 atkv.1.494 sem fyrsta nafn
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
- AlexanderDrengurSamþykkt4 atkv.1.240 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari.
- AuðurDrengurSamþykkt29. nóv 20132 atkv.1.116 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu en þekktasti nafnberi til forna var „Auður djúpúðga“. „Auður“ er sama orð og nafnorðið „auður“ sem merkir „ríkidæmi, auðæfi“.
- AtliDrengurSamþykkt2 atkv.843 sem fyrsta nafn
Atli er breyting á germönsku orðunum "Atta" sem merkir faðir/pabbi og "la" sem merkir lítill. Orðið "Attala" gæti því útlagst sem litli faðir/pabbi. Önnur skoðun er sú að orð þetta sé komið úr norrænu og þá dregið af orðinu "atall" sem merkir grimmur/harður.
- AdamDrengurSamþykkt2 atkv.678 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn úr hebresku og táknar bæði mann og jörð.
- AntonDrengurSamþykkt2 atkv.591 sem fyrsta nafn
Nafn af þýskum uppruna, er stytting á latneska ættarnafninu Antönius er merkir ómetanlegur.
- ArnórDrengurSamþykkt2 atkv.589 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr goðafræðinni.
- AxelDrengurSamþykkt2 atkv.523 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er norræn mynd af biblíunafninu "Absalon" sem merkir faðir friðarins, - friðarfaðir.
- AðalsteinnDrengurSamþykkt3 atkv.411 sem fyrsta nafn
Myndað af forliðnum "Aðal-" og viðliðnum -"steinn" þar sem "Aðal" merkir aðall, - göfugur, - yfirstétt og "steinn" merkir steinn.
- AdrianDrengurSamþykkt6. jan 20173 atkv.317 sem fyrsta nafn
Nafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.
- AndrésDrengurSamþykkt2 atkv.266 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni þar sem það er skifað Andréas og er talið merkja hugrakkur eða karlmannlegur.
- AgnarDrengurSamþykkt2 atkv.264 sem fyrsta nafn
Myndað af forliðnum "Agn" sem merkir ógn, - agi og viðskeytinu "ar" sem er stytting eftir hljóðbreytingar á fornnorræna orðinu "harjarr" sem þýðir hermaður. Nafnið gæti því merkt ógnandi hermaður, - agaður hermaður.
- AlbertDrengurSamþykkt2 atkv.243 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upprunnið úr þýsku og samsett úr forliðlnum "Adal" sem merkið göfugur, - yfirstétt og viðliðnum "berht" sem merkir bjartur, - skínandi.
- AuðunnDrengurSamþykkt2 atkv.174 sem fyrsta nafn
Nafnið er algengt á Íslandi frá fornu fari og er m.a. sagt frá manni sem var heitinn eftir Óðni í Heimskringlu. Það er sett saman af forliðnum „Auð-“ og viðliðnum „-un(n)“ sem merkir „vinur“, sbr. fornsænsku „Öþin“ og fornensku „Éadwine“.
- AlmarDrengurSamþykkt2 atkv.171 sem fyrsta nafn
Sett saman af forliðnum "Álf" og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á A
Hvaða nöfn byrja á A?
Það eru 382+ íslensk nöfn sem byrja á A, t.d. Anna og Arnar. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á A?
Samtals eru 382 samþykkt nöfn sem byrja á A í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →