Greinar

Nöfn sem byrja á W

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum W, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 8 nöfn sem byrja á W í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á W

  • Winter
    StúlkaSamþykkt2. okt 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega amerískt en er nú einnig notað víðar, t.d. í Bretlandi og Þýskalandi. Að baki liggur nafnorðið „winter“ sem merkir vetur.

Drengjanöfn á W

  • William
    DrengurSamþykkt3 atkv.78 sem fyrsta nafn

    Nafnið er ensk mynd af nafninu „Vilhjálmur“.

  • Walter
    DrengurSamþykkt2 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Nafnið er þýskt, komið úr fornháþýsku „Walthari“, „Waltheri“ og miðlágþýsku „Walter“, samsett af sögninni „waltan“ sem merkir ríkja, stjórna, og nafnorðinu „hari“ sem merkir her. Það þekkist í Noregi frá 14. öld, þá ritað „Valtar(e)“, en í Svíþjóð og Danmörku frá 12. öld, og tíðkast einnig á Englandi. Á Íslandi var nafnið lagað að fornu Óðinsheiti og myndar þannig nafnið Valtýr.

  • Wilhelm
    DrengurSamþykkt2 atkv.9 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega þýskt, í fornháþýsku „Willihelm“, „Willahelm“, sett saman af nafnorðunum „willio“, „willo“ sem merkja vilji, ósk og „helm“ sem merkir hjálmur. Til Englands barst nafnið með Vilhjálmi sigurvegara sem stjórnaði sigurliði Normanna í orrustunni við Hastings 1066 og er þar nú ritað „William“. Í Frakklandi er tíðasta myndin „Guillaume“ en þar voru vinsældir nafnsins upphaflega sóttar til heilags Vilhjálms frá Aquitaníu. Á Ítalíu er nafnið „Guglièlmo“ algengt. Til Norðurlanda barst nafnið með biskupi sem settist að í Hróarskeldu á 11. öld.

  • Willum
    DrengurSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Ungt nafn í íslensku. Nafnið „Villum“ þekkist í Danmörku frá 15. öld, einkum á Jótlandi, og er hliðarmynd við „Vilhelm“ og „Vilhjálmur“.

  • Willy
    DrengurSamþykkt28. ágú 20152 atkv.5 sem fyrsta nafn

    „Willy“ (einnig ritað „Villy“) er enskt gælunafn af nafninu „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið hefur verið notað í Noregi frá 18. öld, í Danmörku frá 19. öld og í Svíþjóð frá miðri 19. öld.

  • Willard
    DrengurSamþykkt2 atkv.3 sem fyrsta nafn

    Nafnið er komið úr fornensku „Wilheard“, sett saman af nafnorðinu „wilt“ sem merkir vilji og lýsingarorðinu „heard“ sem merkir harður, sterkur. Í þýsku er samsvarandi nafn „Willhard“/„Willhart“, úr fornháþýsku „Willihart“, myndað af „willio“, „willo“ sem merkir ósk, vilji og lýsingarorðinu „hart“ sem merkir harður. Í Svíþjóð hefur nafnið „Villard“ verið notað frá lokum 19. aldar en eldri eru nafnmyndirnar „Villehard“ og „Vilhard“. Einhverjar nafngjafanna hér á landi eiga rætur að rekja til komu bandaríska bókasafnarans Daniels Willards Fiske, sem ferðaðist um Norðurland og kynnti m.a. skáklistina fyrir mönnum.

  • Werner
    DrengurSamþykkt28. okt 20112 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er þekkt í Danmörku og Svíþjóð frá því á 13. öld og hefur einnig verið notað í Noregi og á Englandi, þar sem það er talið tökunafn úr Norðurlandamálunum eða þýsku. Nafnið er upphaflega þýskt og algengt þar í landi, komið úr fornháþýsku „Wernher“, „Werinher“, „Warinheri“, sem er sett saman af sögninni „warjan“ 'verja', sbr. þjóðflokksheitið „Varini“ sem nefnt er í Germaníu Tacitusar, í fornensku „Wærnas“, og í fornháþýsku „Werino-“.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á W

Hvaða nöfn byrja á W?

Það eru 8+ íslensk nöfn sem byrja á W, t.d. Winter og William. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á W?

Samtals eru 8 samþykkt nöfn sem byrja á W í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →