Greinar

Nöfn sem byrja á Ö

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Ö, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 27 nöfn sem byrja á Ö í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á Ö

  • Ösp
    StúlkaSamþykkt1 atkv.17 sem fyrsta nafn

    Trjáheitið Ösp

  • Örk
    StúlkaSamþykkt1 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er dregið af nafnorðinu "örk" sem merkir kista, - skip.

  • Ögn
    StúlkaSamþykkt1 atkv.4 sem fyrsta nafn

    Sennilega hliðstætt Agnar, af sömu rót og agi, ógn eða: agnarsmá.

  • Ölrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

  • Ögmunda
    StúlkaSamþykkt3 atkv.

    Kvenmynd af karlmannsnafninu Ögmundur.

  • Ölveig
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

  • Örbrún
    StúlkaSamþykkt2 atkv.

    Nafn þetta merkir ör á auga.

  • Öxi
    StúlkaSamþykkt3. feb 20252 atkv.

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „öxi“ sem merkir verkfæri, vopn.

Drengjanöfn á Ö

  • Örn
    DrengurSamþykkt1 atkv.533 sem fyrsta nafn

    Fuglsheitið örn.

  • Örvar
    DrengurSamþykkt2 atkv.160 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss en það er líklega myndað af nafnorðinu eða lýsingarorðinu „ör“ með hliðsjón af nafninu „Ævar“. Ef til vill var fornkappinn „Örvar-Oddur“ kveikjan að nafngiftinni. Nafnið er fremur ungt hérlendis og kemur fyrst fyrir á 20. öld.

  • Örlygur
    DrengurSamþykkt3 atkv.65 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er að öllum líkindum tengt "örlygi" sem merkir orrusta, - ófriður.

  • Ögmundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.51 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ög" sem sem skylt er nafninu Agnar og merkir agi, - ógn og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn.

  • Örnólfur
    DrengurSamþykkt3 atkv.33 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Örn" og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Össur
    DrengurSamþykkt2 atkv.22 sem fyrsta nafn

    Líklegast þykir að nafn þetta sé komið af sænska orðinu "antsuar" sem merkir andsvar, situr fyrir svörum, - veitir svör.

  • Ölver
    DrengurSamþykkt2 atkv.12 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Öl" sem er skylt forna orðinu "alu" sem merkir töfravald, - vernd og viðliðnum "vér" sem merkir bardagamaður.

  • Önundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.11 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ön" sem ýmist er talið að komið sé af fornháþýska orðinu "ano" sem merkir ái, - afi, - forfaðir, eða þá að talið er að hann tengist sögninni "ano" sem merkir að æða áfram eða þá að hann tengist forliðnum "and" í merkingunni á móti. Viðliðurinn "undur" er talið koma af sögnunni "vindur" og er e.t.v. skylt sögninni "vinna" í merkingunni sigur.

  • Ölvir
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ölver.

  • Ögri
    DrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er fremur ungt í íslensku. Líklegra er að það sé dregið af „ögur“ sem merkir smávogur eða vík milli kletta, sbr. örnefnið „Ögur“, en af sögninni að „ögra“ sem merkir eggja eða espa.

  • Öxar
    DrengurSamþykkt16. maí 20082 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Að baki nafninu liggur líklega nafnorðið „öxi“ ásamt viðliðnum „-ar“.

  • Özur
    DrengurSamþykkt25. ágú 20232 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Össur.

  • Ölnir
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir að fornu sem dvergsheiti og sem nafn á einum af sonum Óðins. Uppruni er óviss en nafnið hefur verið tengt sögninni „ala“ eða orðinu „alu-“ sem er eins konar töfraorð á rúnaristu.

  • Örlaugur
    DrengurSamþykkt3 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ör" sem merkir skjótur og viðliðnum "laugur" sem merkir hreinn, - tær.

  • Öndólfur
    DrengurSamþykkt3 atkv.

    Fyrirmynd nafnsins er hugsanlega lýsingarorðið „öndóttur“ sem merkir harðlegur, hvass, illilegur, en það kemur fyrir sem nafn í Landnámu og í bæjarnafninu „Öndóttsstaðir“ í Þingeyjarsýslu, sem nú er venjulega ritað „Öndólfsstaðir“. Nafnið er sett saman af nafnorðinu „önd“ sem merkir áhyggja, raun, og viðliðnum „-ólfur“ sem merkir úlfur.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á Ö

Hvaða nöfn byrja á Ö?

Það eru 27+ íslensk nöfn sem byrja á Ö, t.d. Ösp og Örn. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Ö?

Samtals eru 27 samþykkt nöfn sem byrja á Ö í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →