Greinar

Nöfn sem byrja á U

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum U, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 24 nöfn sem byrja á U í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á U

  • Unnur
    StúlkaSamþykkt2 atkv.979 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta hefur bæði verið tengt við orðið "unnur" í merkingunni alda, - bára og einnig hefur það verið tengt við sögnina "unna"´sem merkir að elska, - þykja vænt um.

  • Una
    StúlkaSamþykkt2 atkv.393 sem fyrsta nafn

    Tvær hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu. Annars vegar er talið að nafnið sé skylt sögninni "una" sem merkir að dvelja, - kunna vel við sig, og hinsvegar að nafnið tengist latneska orðinu "unus" sem merkir einn.

  • Urður
    StúlkaSamþykkt2 atkv.125 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr goðafræðinni. Urður var ein þriggja örlaganorna sem réðu aldri manna, voru systur og hétu Urður, Verðandi og Skuld. Nafnið er tengt fornsaxneska orðinu "wurth" sem merkir örlagadís.

  • Ugla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.23 sem fyrsta nafn

    Fuglsheitið ugla.

  • Ursula
    StúlkaSamþykkt2. sep 20193 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Úrsúla.

  • Unndís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Unn-" og viðliðnum "-dís".

  • Undína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið var upphaflega notað um vatnadísir og er komið úr latínu „undine“ sem merkir vatnadís, dregið af „unda“ sem merkir alda. Sagan Undine eftir Friedrich de la Motte-Fouqué, sem kom út 1811, átti sinn þátt í að kynna nafnið, en hún fjallar um vatnadísina Undínu sem gekk að eiga mennskan mann til þess að verða ódauðleg. Steingrímur Thorsteinsson þýddi söguna á íslensku og kom hún út 1861. Lortzing samdi óperu um söguna við texta E.T.A. Hoffmanns, og vesturíslenska skáldkonan Helga Baldvinsdóttir orti undir dulnefninu Undína á 19. öld.

  • Unna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta var upphaflega gælumynd af nafninu Unnur.

  • Unnbjörg
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-björg“.

Drengjanöfn á U

  • Unnar
    DrengurSamþykkt2 atkv.249 sem fyrsta nafn

    Skiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um.

  • Unnsteinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.103 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-steinn“. Einnig eru þess dæmi að kvenmannsnafnið „Steinunn“ liggi að baki nafngjöfinni.

  • Uni
    DrengurSamþykkt2 atkv.16 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er skylt sögninni "una" sem merkir að dvelja, - kunna vel við sig.

  • Uggi
    DrengurSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er tengt nafnorðinu "uggur" sem merkir ótti.

  • Unnþór
    DrengurSamþykkt2 atkv.8 sem fyrsta nafn

    Nafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-þór“, sem vísar til Þórs úr goðafræðinni. Þess eru einnig dæmi að kvenmannsnafnið „Þórunn“ liggi að baki nafngjöfinni.

  • Unndór
    DrengurSamþykkt2 atkv.5 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Unnur" sem merkir hinn elskaði og viðliðnum "dór" í merkingunni Þór þrumuguð úr goðafræðinni.

  • Ulrich
    DrengurSamþykkt2 atkv.2 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega þýskt, komið úr fornháþýsku „Uodalrich“, „Udalric“, „Odalric“ sem er samsett af orðliðunum „uodal“ er merkir erfðafé, óðal og lýsingarorðinu „rihhi“ er merkir ríkur, voldugur. Það var í miðlágþýsku „Ulric“, „Olric“ og barst þaðan til Danmerkur. Nafnið hefur þekkst í Danmörku frá því á 13. öld en er 15. aldar nafn í Svíþjóð, og í Noregi eru heimildir um það frá 17. öld. Nafnið tíðkast á Englandi og í Þýskalandi sem „Ulrich“.

  • Unnbjörn
    DrengurSamþykkt2 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Unnur" sem merkir hinn elskaði og viðliðnum "björn" í merkingunni bjarndýr.

  • Uxi
    DrengurSamþykkt25. sep 20082 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Dýrsheiti. Kemur nokkrum sinnum fyrir að fornu.

  • Ullr
    DrengurSamþykkt17. nóv 20211 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Ullur var guð í norrænni goðafræði, sonur Sifjar og stjúpsonur Þórs. Leiddar hafa verið að því líkur að orðstofninn „*wulþu-“, sem merkir „frægð“, liggi að baki nafninu. Ritmyndin „Ullr“ er forn ritháttur áður en -u- var skotið inn í lokaatkvæði.

  • Ubbi
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Sennilega er um stuttnefni að ræða.

  • Urðar
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafnið er fremur ungt í íslensku og er trúlega myndað af kvenmannsnafninu „Urður“ með viðskeytinu „-ar“.

  • Ugluspegill
    DrengurSamþykkt1. apr 20164 atkv.

    Nafnið er dregið af „Till Eulenspiegel“ („Eule“ = ugla, „Spiegel“ = spegill), þýskum flakkara og hrekkjalómi sem uppi var á fyrri hluta 14. aldar og sagnir um hann hafa lifað allt fram á þennan dag.

  • Ullur
    DrengurSamþykkt14. jan 20202 atkv.

    „Ullur“ var guð í norrænni goðafræði, sonur Sifjar og stjúpsonur Þórs. Leiddar hafa verið að því líkur að orðstofninn „*wulþu-“, sem merkir „frægð“, liggi að baki nafninu. Ritmyndin „Ullr“ er forn ritháttur áður en -u- var skotið inn í lokaatkvæði.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á U

Hvaða nöfn byrja á U?

Það eru 24+ íslensk nöfn sem byrja á U, t.d. Unnur og Unnar. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á U?

Samtals eru 24 samþykkt nöfn sem byrja á U í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →