Chris

Drengjanafn Samþykkt· 1 atkvæði· 11 bera nafnið

Nafnið er ein af nafnmyndum „Kristján“ og er komið úr latínu „christiānus“ sem merkir kristinn, sbr. latínu „Christus“ og grísku „Khristós“ sem merkir hinn smurði. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum og í ensku- og þýskumælandi löndum frá fornu fari.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

Fjöldi með nafn

7

Fyrsta nafn

6

Annað nafn

13

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

ChristianRitmynd nafnsins Kristján.ChristopherEnska myndin af nafninu „Kristófer“, sem þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld og er komið úr grísku „Christóphoros“ og merkir eiginlega „sá sem ber Krist“. Þýska myndin er „Christoffer“.KrisAð baki liggur líklega stytting á „Chris“, sem er stytt mynd nafnsins „Christopher“, er samsvarar íslenska nafninu „Kristófer“.CharlesNafnið er trúlega komið í íslensku úr ensku eða frönsku og er upphaflega dregið af þýsku orði sem merkti „frjáls maður“, skylt fornensku „churl“ „maður“. Það varð vinsælt í Evrópu fyrir áhrif frá Karlamagnúsi Frankakonungi (742/747–814) sem árið 800 lýsti sjálfan sig heilagan keisara Rómaríkis. Latnesk mynd nafns hans var „Carolus Magnus“ sem á ensku varð „Charles the great“, „Karl mikli“. „Charles“, eða upphaflega þýska myndin „Karl“, var notuð af kóngum og fyrirfólki í Evrópu á miðöldum en barst ekki til Englands fyrr en með Maríu Skotadrottningu (1542–1587). Hún var alin upp í Frakklandi og gaf syni sínum nafnið „Charles James“ (1566–1625) sem síðar varð James VI. Skotakonungur og frá 1603 James I. Englandskonungur.CyrusNafnið er grísk eða latnesk mynd af persneska nafninu „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.CharlieNafnið er trúlega komið í íslensku úr ensku eða frönsku og er upphaflega dregið af þýsku orði sem merkti „frjáls maður“, skylt fornensku „churl“ „maður“. Það varð vinsælt í Evrópu fyrir áhrif frá Karlamagnúsi Frankakonungi (742/747–814) sem árið 800 lýsti sjálfan sig heilagan keisara Rómaríkis. Latnesk mynd nafns hans var „Carolus Magnus“ sem á ensku varð „Charles the great“, „Karl mikli“. „Charles“, eða upphaflega þýska myndin „Karl“, var notuð af kóngum og fyrirfólki í Evrópu á miðöldum en barst ekki til Englands fyrr en með Maríu Skotadrottningu (1542–1587). Hún var alin upp í Frakklandi og gaf syni sínum nafnið „Charles James“ (1566–1625) sem síðar varð James VI. Skotakonungur og frá 1603 James I. Englandskonungur.CýrusNafnið er grísk eða latnesk mynd af persnesku „kuhurush“ sem merkir „sól“, skylt gríska orðinu „kyrios“ sem merkir „herra“. Nafnið hefur þekkst í Svíþjóð frá 19. öld og er einnig notað í Þýskalandi, á Englandi og í Ameríku.CarlGermönsk mynd af nafninu Karl sem merkir maður.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.