Greinar

Nöfn sem byrja á J

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum J, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 170 nöfn sem byrja á J í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á J

  • Jóhanna
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.791 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og er leitt af hebreska orðinu "johanan" sem merkir Drottinn er náðugur.

  • Jóna
    StúlkaSamþykkt2 atkv.778 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Jón

  • Jónína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.610 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af karlmannsnafninu Jón og viðskeytinu "ína".

  • Júlía
    StúlkaSamþykkt3 atkv.592 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Júlíus.

  • Julia
    StúlkaSamþykkt21. ágú 20173 atkv.285 sem fyrsta nafn

    Julia er hliðarmynd nafnsins Júlía og er myndað eftir karlmannsheitinu „Júlíus“ með viðskeytinu „-a“. Nafnið er vel þekkt á öllum Norðurlöndum, í enskumælandi og þýskumælandi löndum og víðar.

  • Jenný
    StúlkaSamþykkt2 atkv.255 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er enskt að uppruna og er gælumynd af nöfnunum "Jane, Jean".

  • Júlíana
    StúlkaSamþykkt4 atkv.192 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Júlíus með viðskeytinu "ana".

  • Jórunn
    StúlkaSamþykkt2 atkv.144 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í Landnámu og víða í Íslendinga sögum, auk þess í Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „jór-“, sem er hliðarmynd við „jöfur“ er merkir „göltur; konungur“, og viðliðnum „-unn“.

  • Jana
    StúlkaSamþykkt2 atkv.105 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Kristjana" sem merkir sú sem fylgir Kristi.

  • Jakobína
    StúlkaSamþykkt4 atkv.85 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Jakob.

  • Jasmín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.61 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.

  • Jensína
    StúlkaSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af nafninu Jens með viðskeytinu "ína".

  • Jófríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.36 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "jór" sem merkir hestur og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást. Sumir telja nafn þetta upphaflega hafa verið Jónfríður og að það hafi síðan styst í að vera Jófríður.

  • Jódís
    StúlkaSamþykkt2 atkv.35 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "jór" sem merkir hestur og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.

  • Jara
    StúlkaSamþykkt2 atkv.33 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Jar" sem merkir orrusta og viðskeytinu "-a"

  • Judith
    StúlkaSamþykkt2 atkv.28 sem fyrsta nafn

    Júdit er biblíunafn sem kemur fyrir í Fyrstu Mósebók og í Júditarbók, einni af apókrýfu bókum Biblíunnar. Hebreska nafnið „Jehūdīth“ er talið merkja „kona frá Júdeu“.

  • Jarþrúður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.24 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Jar" sem merkir orrusta og viðliðnum "þrúður" sem merkir afl, - kraftur.

  • Jökla
    StúlkaSamþykkt2 atkv.24 sem fyrsta nafn

    Nafnið er myndað af nafnorðinu „jökull“ og er skylt karlmannsnafninu „Jökull“.

  • Jenny
    StúlkaSamþykkt21. maí 20142 atkv.22 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Jenný.

  • Josephine
    StúlkaSamþykkt13. ágú 20254 atkv.22 sem fyrsta nafn

    Josephine er ensk, þýsk og hollensk mynd af Joséphine, kvenkynsmynd af nafninu Jósef. Jósef er hebreskt og merkir „hann mun auka við“, af rótinni „yasaf“ („að auka“).

Drengjanöfn á J

  • Jón
    DrengurSamþykkt1 atkv.4.891 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Jóhann
    DrengurSamþykkt2 atkv.1.996 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Jóhannes
    DrengurSamþykkt3 atkv.833 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni af nafninu "Jochanan" sem merkir Drottinn er náðugur.

  • Jónas
    DrengurSamþykkt2 atkv.679 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Yonah" sem merkir dúfa.

  • Jakob
    DrengurSamþykkt2 atkv.610 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Yaakov" sem merkir sá sem heldur um hælinn.

  • Jökull
    DrengurSamþykkt2 atkv.576 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "jökull" sem merkir klaki, - ís.

  • Júlíus
    DrengurSamþykkt3 atkv.361 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er ýmist talið komið af gríska orðinu "jovilios" sem merkir afkomandi Júpíters eða að það sé komið af gríska orðinu "iolus" sem merkir þakinn dúni, - dúnmjúkur.

  • Jan
    DrengurSamþykkt1 atkv.244 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Jens
    DrengurSamþykkt1 atkv.207 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

  • Jóel
    DrengurSamþykkt2 atkv.140 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og er samsett af hebresku orðunum "yah" sem merkir guð og "el" sem merkir guð" Eiginleg merking nafnsins er Jahve er guð.

  • Jónatan
    DrengurSamþykkt3 atkv.116 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni og merkir Guð hefur gefið.

  • John
    DrengurSamþykkt1 atkv.107 sem fyrsta nafn

    „John“ er ensk mynd af nafninu „Jóhannes“ og samsvarar nafninu „Jón“.

  • Jósef
    DrengurSamþykkt2 atkv.82 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Yosef" sem merkir megi Guð auka við öðrum syni.

  • James
    DrengurSamþykkt21. sep 20202 atkv.77 sem fyrsta nafn

    Nafnið „James“ er ensk mynd af nafninu „Jakob“ og á rætur að rekja til latínumyndarinnar „Iacomus“, hliðarmyndar við „Iacobus“. Það hefur verið notað innan bresku konungsfjölskyldunnar frá því á 15. öld þegar James I. Skotakonungur tók við völdum og ríkti frá 1424–1437.

  • Jason
    DrengurSamþykkt2 atkv.54 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af grísku sögninni "iasthai" sem merkir að lækna.

  • Jörundur
    DrengurSamþykkt3 atkv.53 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er samsett af forliðnum "Jör" sem merkir orrusta og sögninni "að vinda" sem merkir að snúa.

  • Júlían
    DrengurSamþykkt3 atkv.50 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska nafninu Julianus, sem dregið var af nafninu Júlíus

  • José
    DrengurSamþykkt17. ágú 20202 atkv.48 sem fyrsta nafn

    Þetta er spænsk mynd af nafninu „Joseph“, sem er sama nafn og „Jósef“.

  • Julian
    DrengurSamþykkt31. ágú 20063 atkv.45 sem fyrsta nafn

    Julian er ensk mynd af latneska nafninu „Juliānus“, leitt af rómverska ættarnafninu „Julius“ sem einnig er notað sem kvenmannsnafn í Englandi.

  • Jörgen
    DrengurSamþykkt2 atkv.43 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er dönsk mynd af nafninu "Georg" sem merkir jarðyrkjumaður, - bóndi.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á J

Hvaða nöfn byrja á J?

Það eru 170+ íslensk nöfn sem byrja á J, t.d. Jóhanna og Jón. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á J?

Samtals eru 170 samþykkt nöfn sem byrja á J í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →