Persónuvernd

Síðast uppfært 25. september 2026

Í stuttu máli

  • Engar vafrakökur eru notaðar til að fylgjast með heimsóknum.
  • Við teljum heimsóknir og smelli til að bæta síðuna, en vitum ekki hver þú ert og vistum ekki IP-töluna þína.
  • Það sem þú skrifar í leitina eða í Fullt nafn er ekki sent í vefgreiningu.
  • Uppáhaldsnöfnin þín eru geymd í vafranum þínum og, ef þú vistar nöfn, á nafnlausum aðgangi svo þau haldist á milli heimsókna.
  • Auglýsingar á síðunni fylgjast ekki með þér og engin auglýsinganet eru notuð.

Hver ber ábyrgð?

Veldu nafn er rekið af Hlyni Stefánssyni, sem ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á síðunni. Spurningar og beiðnir um persónuupplýsingar sendist á hallo@veldunafn.is.

Vefgreining

Við notum PostHog til að sjá hvernig síðan er notuð: hvaða síður eru opnaðar, á hvað er smellt, hvaðan fólk kemur (t.d. frá leitarvél), hve langt er skrunað, hve hratt síðan hleðst og hvers konar tæki og vafri eru notuð.

Engin vafrakaka eða önnur gögn eru vistuð í vafranum þínum vegna þessa. PostHog telur einstaka gesti með tölu sem er reiknuð úr IP-tölu og upplýsingum um vafrann ásamt leynilegu gildi sem breytist á hverjum sólarhring. Talan er aðeins nothæf í einn dag og IP-talan sjálf er ekki geymd. Við búum ekki til notendasnið og tengjum gögnin ekki við nafn eða netfang.

Texti sem þú skrifar í leitina eða í reitina á Fullt nafn er fjarlægður áður en nokkuð er sent. Gögnin eru geymd á netþjónum PostHog innan Evrópska efnahagssvæðisins í allt að 7 ár.

Tilgangurinn er að bæta síðuna og að geta sagt auglýsendum hve oft auglýsingar þeirra birtust og hve oft var smellt á þær. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að reka og bæta síðuna.

Auglýsingar

Auglýsingar á Veldu nafn eru seldar beint til íslenskra fyrirtækja. Engin auglýsinganet eða rakningarkóði frá auglýsendum eru á síðunni. Hvaða auglýsing birtist ræðst af tilviljun og ekkert er vistað um það í vafranum þínum.

Við teljum hve oft hver auglýsing birtist, sást og var smellt á hana, og auglýsendur fá aðeins samanteknar tölur. Ef þú smellir á auglýsingu ferðu á vef auglýsandans og þá gildir persónuverndarstefna hans.

Villuskráning

Við notum Sentry til að fá tilkynningar þegar eitthvað bilar. Ef villa kemur upp er sent hvað fór úrskeiðis, á hvaða síðu og í hvaða vafra. Sentry fær líka nafnlausa talningu á heimsóknum til að reikna hlutfall heimsókna án villna. IP-tölur eru ekki geymdar. Gögnin eru geymd á netþjónum Sentry í Þýskalandi í allt að 90 daga. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að halda síðunni gangandi.

Uppáhaldsnöfn og listar

Uppáhaldsnöfn, listar, nýlega skoðuð nöfn og stillingar eins og dökkt útlit eru geymd í vafranum þínum (localStorage). Þetta er nauðsynlegt til að síðan virki eins og þú biður um og fer ekki annað.

Þegar þú vistar nafn í fyrsta sinn er búinn til nafnlaus aðgangur hjá Google Firebase svo listarnir haldist þótt vafrinn hreinsist. Aðgangurinn geymir aðeins nöfnin og listana, ekki nafn þitt eða netfang. Gögnin eru geymd á netþjónum Google í Evrópu. Þú getur tæmt listana hvenær sem er, og ef þú vilt að aðgangnum sé eytt geturðu haft samband.

Hýsing

Síðan er hýst hjá Vercel. Eins og hjá öllum vefþjónum fara IP-tala og upplýsingar um vafra í gegnum þjónana við hverja heimsókn og eru skráðar í skamman tíma vegna reksturs og öryggis.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar um þig eru unnar, að fá þær leiðréttar eða þeim eytt og að andmæla vinnslu. Þar sem vefgreiningin tengist ekki einstaklingum er oftast ekki hægt að finna gögn um einn gest, en við svörum öllum fyrirspurnum. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar.

hallo@veldunafn.is