Nöfn sem byrja á E
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum E, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 342 nöfn sem byrja á E í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á E
- ElínStúlkaSamþykkt2 atkv.1.584 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er norræn mynd nafnsins Helena sem merkir hin bjarta.
- EvaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.440 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr biblíunni og þýðir það líf, - sú sem gefur líf. Eva er fyrsta konan og hún og Adam eru þau sem allir menn eru komnir af skv. biblíunni.
- ElísabetStúlkaSamþykkt4 atkv.1.276 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.
- ErnaStúlkaSamþykkt2 atkv.795 sem fyrsta nafn
Tvær skýringar eru á þessu nafni. Annarsvegar að nafnið sé komið af orðinu "örn" og hinsvegar að það sé komið af orðinu "ern" sem merkir hress, - hraustur.
- EddaStúlkaSamþykkt2 atkv.766 sem fyrsta nafn
Nafn þetta merkir formóðir, - langamma og er fengið úr goðafræðinni. Sagan segir að Heimdallur hafi verið á ferðalagi og hitt fyrir Áa og Eddu en af þeim er allt mannkyn komið.
- EmilíaStúlkaSamþykkt4 atkv.736 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr latínu og er upprunalega nafnið "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við Amalía.
- EmmaStúlkaSamþykkt2 atkv.558 sem fyrsta nafn
Nafnið barst til Norðurlanda frá Þýskalandi. Það var upphaflega stytting á nöfnum sem hófust á „Erm-“ eða „Ermen-“, til dæmis „Ermgard“, „Ermenhild“ og „Ermtraud“, en sá forliður er skyldur „jörmun-“ í íslensku. Stuttnefnið var þá líklega fyrst „Erma“ en síðar varð til myndin „Emma“, sem einnig var notuð sem stytting á nafninu „Emilia“.
- EmblaStúlkaSamþykkt2 atkv.542 sem fyrsta nafn
Embla er fyrsta konan í norrænni goðafræði, - viðarheiti. Sagan segir að Óðinn og bræður hans hafi gefið tveimur trjám, Aski og Emblu líf og urðu þau fyrstu manneskjurnar og frá þeim á allt mannkyn að vera komið.
- EyrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.462 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
- EydísStúlkaSamþykkt2 atkv.409 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís.
- EyglóStúlkaSamþykkt2 atkv.348 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og sögninni að glóa. Í skáldamáli merkir nafnið sól.
- EsterStúlkaSamþykkt2 atkv.286 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur fyrir í biblíunni en mismunandi skoðanir eru um merkingu þess og uppruna. Sumir telja að persnerska orðið "sitareh" sem merkir stjarna liggi að baki nafninu, aðrir að orðið "ester" sem er hebreska og merkir ung kona sé það orð sem nafnið er dregið af, og enn aðrir vilja meina að það hafi eitthvað að gera með nafnið "Ishtar" sem var babýlönsk ástargyðja.
- EllenStúlkaSamþykkt2 atkv.217 sem fyrsta nafn
Nafn þetta á sér tvenns konar uppruna. Annars vegar er það talið vera hliðarmynd við nafnið "Helen" og hinsvegar er það talið hliðarmynd við nafnið "Elín" en bæði nöfnin merkja hin bjarta.
- ElfaStúlkaSamþykkt2 atkv.177 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er dregið af orðinu "elfur" sem merkir á. Einnig gæti það tengst orðinu "Álfur" í merkingunni huldumaður. Einnig getur það verið stytting nafnsins "Elvira" frá Norðurlöndum og merkir hin hvíta.
- ElínborgStúlkaSamþykkt3 atkv.174 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett úr nafninu Elín og viðliðnum "borg" sem merkir vörn.
Drengjanöfn á E
- EinarDrengurSamþykkt2 atkv.2.328 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji.
- EmilDrengurSamþykkt2 atkv.758 sem fyrsta nafn
Nafnið er tökunafn hérlendis, líklega komið úr dönsku, af latneska ættarheitinu „Aemilius“ sem hugsanlega á rætur í latneska orðinu „aemulus“, er merkir „keppinautur“. Nafnið hefur verið notað víða á Norðurlöndum og í Evrópu; frönsk mynd þess er „Émile“, ítölsk, spænsk og portúgölsk „Emilio“ og slavnesk „Milo“.
- EgillDrengurSamþykkt2 atkv.714 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er af norrænum uppruna, leitt af rótinni agi, - ógn.
- EiríkurDrengurSamþykkt3 atkv.645 sem fyrsta nafn
Tvær hugmyndir um merkingu þessa nafns. Báðar segja að nafnið innihaldi viðliðinn "ríkur" sem merkir auðugur, - voldugur en annarsvegar vilja menn meina að forliður nafnsins sé "Ei" og að nafnið merki þá sívoldugur og hinsvegar að forliðurinn sé "Ein" og að nafnið merki þá mjög voldugur.
- EyþórDrengurSamþykkt2 atkv.525 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.
- ElíasDrengurSamþykkt3 atkv.495 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er biblíunafn, grísk mynd hebreska orðsins "elijah" sem merkir Jahve er minn guð.
- ElmarDrengurSamþykkt2 atkv.418 sem fyrsta nafn
Upphaflega er þetta nafn komið úr fornensku af nafninu Æthelmær sem samsett er af forliðnum "Æthel" sem merkir aðal og viðliðnum "mær" sem merkir frægur.
- EyjólfurDrengurSamþykkt3 atkv.332 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.
- EggertDrengurSamþykkt2 atkv.274 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr þýsku og er sett saman úr orðunum "ecke" sem merkir horn, - oddur, - egg og "harti" sem merkir harður.
- EiðurDrengurSamþykkt2 atkv.244 sem fyrsta nafn
Mismunandi kenningar eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja að það merki eiður, - loforð, - svardagi en aðrir að það sé leitt af gömlu keltnesku sólguðsnafni "Aodh" sem merkir eldur.
- EysteinnDrengurSamþykkt2 atkv.183 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" og viðliðnum "steinn" sem merkir steinn.
- ErlendurDrengurSamþykkt3 atkv.174 sem fyrsta nafn
Nafn þetta gæti bæði þýtt útlendur maður og einnig gæti það verið skylt nafninu "Erlingur" sem merkir sonur/afkomandi jarls.
- ErnirDrengurSamþykkt2 atkv.170 sem fyrsta nafn
Nafn þetta merkir fuglinn örn og er líklega leitt af kvennafninu "Erna".
- ErlingurDrengurSamþykkt3 atkv.164 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af frumnorræna forliðnum "erl" sem merkir jarl og viðliðnum "ingur" og þýðir sonur/afkomandi jarls.
- EllertDrengurSamþykkt2 atkv.126 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr þýsku þar sem það er myndað af forliðnum "Edel" sem merkir aðal og lýsingarorðinu "herti" sem merkir harður.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á E
Hvaða nöfn byrja á E?
Það eru 342+ íslensk nöfn sem byrja á E, t.d. Elín og Einar. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á E?
Samtals eru 342 samþykkt nöfn sem byrja á E í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →