Greinar

Nöfn sem byrja á Ý

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Ý, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 10 nöfn sem byrja á Ý í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á Ý

  • Ýr
    StúlkaSamþykkt1 atkv.32 sem fyrsta nafn

    Ýrr hét dóttir Geirmundar heljarskinns samkvæmt Landnámu, og er einnig getið í Sturlungu. Nafnið er skylt nafnorðinu „úr“, sem merkir „úruxi“, og „ýrr“ í sömu merkingu.

  • Ýrr
    StúlkaSamþykkt1 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Ýr.

  • Ýma
    StúlkaSamþykkt27. maí 20102 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið kemur fyrir í fornaldarsögum sem heiti á tröllkonu. Það er skylt orðinu „íma“ sem merkir skessa eða vargynja.

  • Ýrún
    StúlkaSamþykkt18. apr 20172 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Síðari liður nafnsins er „-rún“ sem tengist nafninu „Rún“, en fyrri liðurinn „Ý-“ er óviss. Ef til vill er um sama nafn að ræða og „Irun“ í norsku, þar sem giskað hefur verið á tengsl við nafnið „Irene“.

  • Ýlfa
    StúlkaSamþykkt20. mar 20182 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Ýlfa er hliðarmynd af nafninu „Ylfa“.

  • Ýda
    StúlkaSamþykkt1. mar 20222 atkv.1 sem fyrsta nafn

    Nafnið er yfirleitt talið þýsk stytting á nöfnum sem hefjast á „Ida-“, „Idu-“, t.d. fornháþýska nafninu „Idaberga“. Forliður þess nafns er talinn sama orð og „íð“ 'verk, starf, iðn' í íslensku. Frá Þýskalandi barst nafnið til Norðurlanda og hefur verið notað í Danmörku frá 12. öld og í Svíþjóð frá 14. öld. Í Noregi varð það vinsælt um aldamótin 1900. Nafnið er einnig gamalt á Bretlandseyjum, en þangað barst það með Normönnum, féll í gleymsku á miðöldum og var tekið í notkun aftur á 19. öld.

  • Ýja
    StúlkaSamþykkt4. apr 20112 atkv.

    Líklega upphaflegt gælunafn af nafninu „Ýr“.

  • Ýri
    StúlkaSamþykkt7. okt 20252 atkv.

Drengjanöfn á Ý

  • Ýmir
    DrengurSamþykkt2 atkv.208 sem fyrsta nafn

    Mismunandi hugmyndir eru uppi um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir vilja meina að það tengist sögninni "ymja" sem merkir að umla, - hljóða en aðrir að það merki jötunn í goðafræðinni. Ýmir var mestur jötna, líkt og Óðinn var æðstur ása. Óðinn og bræður hans drápu Ými og gerðu úr honum heiminn, beinin og tennurnar urðu að fjöllum og firnindum, blóðið að sjónum, hárið að skógi, höfuðkúpan að himinhvolfinu og heilinn að skýjum.

  • Ýrar
    DrengurSamþykkt2 atkv.

    Nafnið er líklegast myndað af kvenmannsnafninu „Ýr“ með viðskeytinu „-ar“.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á Ý

Hvaða nöfn byrja á Ý?

Það eru 10+ íslensk nöfn sem byrja á Ý, t.d. Ýr og Ýmir. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Ý?

Samtals eru 10 samþykkt nöfn sem byrja á Ý í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →