Caritas

Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 3 bera nafnið

Nafnið á rætur að rekja til latneska orðsins „caritas“ sem merkir „kærleikur“, dregið af „carus“ sem merkir „kær“. Í „Heilagra meyja drápu“ frá 14. öld er sagt frá systrunum Fídesi, Spes og Karítas, en nöfn þeirra eru öll latnesk að uppruna og merkja „trú“, „von“ og „kærleikur“. Til er sérstök saga um þær systur, gefin út í Heilagra manna sögum. Nafnið „Charity“ á Englandi er af sama uppruna.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.