Nöfn sem byrja á B
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum B, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 335 nöfn sem byrja á B í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á B
- BryndísStúlkaSamþykkt2 atkv.1.050 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir brynja, - varin og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Kannski er því vakað yfir Bryndísi eða hún vakir yfir og ver aðra.
- BerglindStúlkaSamþykkt2 atkv.1.045 sem fyrsta nafn
Fremur ungt nafn hér á landi sem talið er dregið af nafni flugkappans Charles Lindbergh, sem fyrstum tókst að fljúga yfir Atlantshafið frá New York til Parísar árið 1927. Nafnið er sett saman af forliðnum „Berg“ og viðliðnum „lind“ sem merkir uppspretta.
- BirtaStúlkaSamþykkt2 atkv.540 sem fyrsta nafn
Ýmist talið að hér sé um að ræða íslenska orðið birta, - ljómi, eða þá að nafnið sé komið frá Norðurlöndum og sé leitt af nafninu Birgitta sem merkir hin háa.
- BríetStúlkaSamþykkt2 atkv.390 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið frá Norðurlöndum og er víxlmynd við nöfn eins og Brigit, - Brigitta og tengist því nafninu Birgitta sem merkir hin háa.
- BrynhildurStúlkaSamþykkt3 atkv.347 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir brynja, - varin og viðliðnum "hildur" sem mergir orrusta, - bardagi, - valkyrja.
- BirgittaStúlkaSamþykkt3 atkv.339 sem fyrsta nafn
Nafn þetta merkir hin háa og er komið af dýrlingnum Heilagri Birgittu frá Svíþjóð.
- BarbaraStúlkaSamþykkt3 atkv.195 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið frá gríska orðinu "bárbaros" sem merkir ókunnur, - erlendur.
- BjarneyStúlkaSamþykkt2 atkv.187 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bjarn" sem er björn og viðliðnum "ey".
- BeataStúlkaSamþykkt6. maí 20163 atkv.173 sem fyrsta nafn
Nafnið á rætur að rekja til latneska lýsingarorðsins „beātus“ sem merkir sæll, í kvenkyni „beāta“. Nafnið þekkist víða í Evrópu, meðal annars í Danmörku og Svíþjóð frá 14. öld, og einnig í Noregi, Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu í ýmsum myndum. Heilög Beata dó píslarvættisdauða í Norður-Afríku snemma á miðöldum.
- BergdísStúlkaSamþykkt2 atkv.147 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Berg" sem merkir hjálp, - frelsun og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Bergdís er því bjargvættur.
- BergljótStúlkaSamþykkt2 atkv.123 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Berg" sem merkir hjálp, - frelsun og viðliðnum "ljót" sem merkir björt, - skær.
- BorghildurStúlkaSamþykkt3 atkv.90 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað úr forliðnum "Borg" sem merkir vörn, - hjálp, frelsun og viðliðnum "hildur" sem merkir bardagi, - orrusta, - valkyrja.
- BergrúnStúlkaSamþykkt2 atkv.79 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Berg" sem merkir hjálp, - frelsun og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun. Bergrún er því hjálpsöm vinkona.
Drengjanöfn á B
- BjarkiDrengurSamþykkt2 atkv.1.028 sem fyrsta nafn
Bjarki er þekkt sem viðurnefni kappans „Böðvars bjarka“ í Hrólfs sögu kraka og bar einnig maður að nafni „Þórður bjarki“ á 14. öld. Nafnið er upphaflega norrænt viðurnefni, líklega leitt af forngermönsku „*Berikan“, sbr. fornháþýsku „Bericho“ í merkingunni „litli björninn“, skylt nöfnunum Björn og Bera. Það getur einnig hafa verið leitt af trjáheitinu „björk“ eða „birki“.
- BirgirDrengurSamþykkt2 atkv.1.000 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er skylt sögnunum að birgja, - að bjarga og táknar því bjargvætt eða þann sem bjargar/hægt er að reiða sig á.
- BrynjarDrengurSamþykkt2 atkv.901 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir herklæði og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.
- BenediktDrengurSamþykkt3 atkv.866 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tekið úr latinu, samsvarar latneska orðinu "benedictus" sem þýðir blessaður.
- BaldurDrengurSamþykkt2 atkv.832 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur frá samnefndum guði úr norrænni goðafræði sem kallaður var "hinn hvíti áss". Það er er samsett úr forliðnum "Bald" sem merkir djarfur og viðskeytinu "ur". Nafnið merkir höfðingi, fyrirmaður eða hugrakkur, djarfur
- BjörgvinDrengurSamþykkt2 atkv.664 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Björg" sem merkir hjálp, - að frelsa og viðliðnum "vin" sem merkir vinur, - félagi. Björgvin er vinur í raun.
- BirkirDrengurSamþykkt2 atkv.615 sem fyrsta nafn
Nafn þetta að öllum líkindum leitt af kvennafninu Björk.
- BragiDrengurSamþykkt2 atkv.364 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af orðinu "bragur" sem merkir kveðskapur. Bragi var skáldskaparguð í norrænni goðafræði. Einnig merkir nafnorðið "bragur" fyrirmaður, - höfðingi og telja sumir þá út frá því að nafnið Bragi merki ágætur maður.
- BergurDrengurSamþykkt2 atkv.334 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Berg" sem merkir frelsa, - að hjálpa, - forða og viðskeytinu "ur". Bergur er bjargvættur.
- BenjamínDrengurSamþykkt3 atkv.321 sem fyrsta nafn
Nafn þetta kemur úr biblíunni og er nafn á forföður einna af tólf ættkvíslum Ísraels. Nafnið er talið þýða gæfusonur, - hamingjusonur.
- BaldvinDrengurSamþykkt2 atkv.308 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tökunafn úr forngermönsku og er samsett úr forliðnum "Bald" sem merkir djarfur og viðliðnum "wini" sem merkir vinur. Baldvin er þvi djarfur vinur.
- BrekiDrengurSamþykkt2 atkv.283 sem fyrsta nafn
Ýmist talið að nafn þetta merki brotsjór eða blindsker, eða þá að það merki eldur.
- BaltasarDrengurSamþykkt3 atkv.255 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upphaflega komið úr biblíunni, nánar tiltekið frá konunginum Belshazzar en það nafn merkir "Baal verndi konunginn". Sumir hafa útfært merkingu nafnsins yfir í "verndaður af guði"
- BirnirDrengurSamþykkt2 atkv.206 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er það sama og nafnið Björn en myndað af kvennafninu Birna.
- BergþórDrengurSamþykkt2 atkv.177 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Berg" sem merkir frelsa, - að hjálpa, - forða og viðliðnum "þór" sem er goð úr norrænni goðafræði.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á B
Hvaða nöfn byrja á B?
Það eru 335+ íslensk nöfn sem byrja á B, t.d. Bryndís og Björn. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á B?
Samtals eru 335 samþykkt nöfn sem byrja á B í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →