Greinar

Nöfn sem byrja á M

Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum M, raðað eftir fjölda.

Samtals eru 336 nöfn sem byrja á M í gagnagrunninum.

Stúlkunöfn á M

  • Margrét
    StúlkaSamþykkt2 atkv.2.748 sem fyrsta nafn

    Nafnið barst upphaflega til Evrópu frá Grikklandi. Gríska myndin er „Margarītēs“, mynduð af nafnorðinu „margaron“ sem merkir „perla“, en það orð er sjálft tökuorð í grísku úr persnesku. Úr grísku barst nafnið í latínu sem „Margarīta“ og þaðan í fornfrönsku sem „Marguerite“, en úr frönsku barst það síðan til enskumælandi landa. Það var einnig vel þekkt í Þýskalandi á miðöldum og var meðal algengustu kvenmannsnafna þar og í evrópskum konungaættum. Þekktasti dýrlingur með þessu nafni var heilög Margrét frá Antíokkíu sem dó píslarvættisdauða snemma á 4. öld.

  • María
    StúlkaSamþykkt3 atkv.1.917 sem fyrsta nafn

    Nafnið er komið af hinni arameísku mynd „Mariam“, hliðarmynd hebreska nafnsins „Miriam“. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning þegar nýtt nefnifall var myndað af þolfallsmyndinni „Mariam“. Merking og uppruni nafnsins er óljós en talið er sennilegt að það sé af egypskum toga, líkt og nafn Miriam úr Gamla testamentinu, systur Móse og Arons. Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi enda tengt Maríu, móður Jesú.

  • Marta
    StúlkaSamþykkt2 atkv.574 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni, fengið af arameíska nafninu "Martá" sem merkir frú, - húsfrú.

  • Maria
    StúlkaSamþykkt5. maí 20063 atkv.486 sem fyrsta nafn

    Nafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.

  • Matthildur
    StúlkaSamþykkt3 atkv.461 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er þýskt að uppruna og er sett saman af nafnorðinu "maht" sem merkir kraftur, - afl og nafnorðinu "hiltiu" sem merkir orrusta.

  • Magdalena
    StúlkaSamþykkt4 atkv.423 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta kemur úr biblíunni, af viðurnefninu "Hé Magdalené" sem merkir kona frá Magdala, en það var þorp við Genesaretvatn

  • Monika
    StúlkaSamþykkt3 atkv.395 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Mónika.

  • Magnea
    StúlkaSamþykkt3 atkv.325 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af karlmannsnafninu "Magnús" sem merkir mikill.

  • Maja
    StúlkaSamþykkt2 atkv.173 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er gælumynd nafnsins María.

  • Móeiður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.156 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Móð" sem merkir baráttuhugur og viðliðnum "heiður" sem merkir björt, - skær.

  • Melkorka
    StúlkaSamþykkt3 atkv.155 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er lagað eftir keltneska nafninu "Mael-Curcaich" sem merkir þjónustukona dýrlingsins Curcaich

  • Marín
    StúlkaSamþykkt2 atkv.123 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Maren.

  • Maríanna
    StúlkaSamþykkt4 atkv.116 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman af kvennöfnunum "María" sem merkir hin fagra og "Anna" sem merkir náð.

  • Máney
    StúlkaSamþykkt2 atkv.113 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er sett saman úr nafnorðinu "máni" og viðliðnum "ey".

  • Mía
    StúlkaSamþykkt2 atkv.100 sem fyrsta nafn

    Nafnið hefur borist til Íslands frá Norðurlöndum þar sem það var upphaflega gælunafn kvenna sem hétu „María“ en er nú notað sem sjálfstætt eiginnafn.

  • Málfríður
    StúlkaSamþykkt3 atkv.93 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mál" sem merkir tungumál og viðliðnum "fríður" sem merkir falleg, - ást.

  • Maren
    StúlkaSamþykkt2 atkv.74 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er stytting danska nafnsins "Mariane" sem merkir af hafi.

  • Mary
    StúlkaSamþykkt2 atkv.66 sem fyrsta nafn

    Nafnið er erlent að uppruna og leitt af „Maria“. Franska myndin „Marie“ varð í miðensku að „Mary“, sem er ritmynd nafnsins „María“.

  • Móey
    StúlkaSamþykkt2 atkv.60 sem fyrsta nafn

    Uppruni nafnsins er óviss, en það er ef til vill sama nafn og „Móeiður“.

  • Marie
    StúlkaSamþykkt3 atkv.56 sem fyrsta nafn

    Ensk mynd nafnsins María.

Drengjanöfn á M

  • Magnús
    DrengurSamþykkt2 atkv.2.225 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska orðinu "magnus" sem merkir mikill.

  • Mikael
    DrengurSamþykkt3 atkv.621 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr biblíunni, komið af nafninu "Mika'el" sem merkir hver er sem guð? Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs.

  • Matthías
    DrengurSamþykkt3 atkv.612 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið úr biblíunni, af hebreska nafninu "Mattathiha" sem merkir gjöf guðs.

  • Máni
    DrengurSamþykkt2 atkv.270 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "máni" sem merkir tungl.

  • Markús
    DrengurSamþykkt2 atkv.250 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af latneska nafninu "Marcus" sem merkir sonur stríðsguðsins Mars.

  • Marinó
    DrengurSamþykkt3 atkv.228 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er hliðarmynd við latneska nafnið "Marinus" sem myndað er af nafnorðinu "mare" sem merkir sjór.

  • Marteinn
    DrengurSamþykkt2 atkv.192 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið af latneska nafninu "Martinus" sem er leitt af nafni stríðsguðs Rómverja sem hét Mars.

  • Michael
    DrengurSamþykkt3 atkv.170 sem fyrsta nafn

    Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.

  • Martin
    DrengurSamþykkt2 atkv.157 sem fyrsta nafn

    Sama/svipað og Marteinn.

  • Magni
    DrengurSamþykkt2 atkv.130 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "magn" sem merkir afl, - orka.

  • Már
    DrengurSamþykkt1 atkv.94 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "már" sem merkir mávur.

  • Maron
    DrengurSamþykkt2 atkv.92 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er fengið af þýska lýsingarorðinu "mari" sem merkir frægur.

  • Mark
    DrengurSamþykkt3. okt 20141 atkv.67 sem fyrsta nafn

    Nafnið er vel þekkt í enskumælandi löndum sem stytting á „Markus“, sem er sama nafn og „Markús“. Frá Bretlandseyjum barst nafnið til Norðurlanda og Þýskalands.

  • Margeir
    DrengurSamþykkt2 atkv.62 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er myndað af forliðnum "Mar" sem merkir sjór, - hestur og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Manuel
    DrengurSamþykkt6. maí 20163 atkv.58 sem fyrsta nafn

    Nafnið er upphaflega spænsk stytting á „Emmanuel“, sem svarar til „Emanúel“.

  • Miguel
    DrengurSamþykkt30. nóv 20223 atkv.56 sem fyrsta nafn

    Michael er ensk og þýsk mynd nafns sem er sótt í Biblíuna og er hebreskt að uppruna, „Mika'el“, og merkir „hver er sem Guð?“. Mikael er nefndur sem verndarengill Ísraels bæði í Gamla og Nýja testamentinu, kenndur við Mikjálsmessu 29. september, og einnig eru nokkrir menn nefndir Mikael í Fyrri og Síðari Kroníkubók. Nafnið þekkist á Norðurlöndum frá 12. öld.

  • Milan
    DrengurSamþykkt16. sep 20242 atkv.56 sem fyrsta nafn

    Nafnið er slavneskt að uppruna. Að baki liggur fornslavneska orðið „mil“ sem merkir ljúfur, kær, og viðskeytið „-an“.

  • Marvin
    DrengurSamþykkt2 atkv.40 sem fyrsta nafn

    Nafnið þekkist á Norðurlöndum, á Englandi og í Þýskalandi og kemur sennilega upphaflega frá Wales sem „Merfyn“, sem tekið var upp í ensku sem „Mervyn“ og „Mervin“. „Marvin“ er síðan gömul hliðarmynd við „Mervyn“ sem varð til þegar „-er-“ breyttist í „-ar-“ í miðensku.

  • Maríus
    DrengurSamþykkt3 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Nafn þetta er komið úr latínu og hefur verið tengt rómverska guðinum Mars sem var stríðsguð Rómverja.

  • Max
    DrengurSamþykkt1 atkv.37 sem fyrsta nafn

    Nafnið er stytting af „Maximilian“, þýsk-rómversku keisaranafni, úr latínu „Maximiliānus“, leitt af latínu „maximus“ sem merkir „hinn stærsti“. Nafnið þekkist í Danmörku og Svíþjóð frá síðustu öldum og hefur einnig verið notað á Englandi og í Þýskalandi.

Skoða nöfn eftir staf:

Algengar spurningar um nöfn á M

Hvaða nöfn byrja á M?

Það eru 336+ íslensk nöfn sem byrja á M, t.d. Margrét og Magnús. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á M?

Samtals eru 336 samþykkt nöfn sem byrja á M í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →