Nafnalisti

Nöfn á Ó: 40+ stúlku- og drengjanöfn

Öll eiginnöfn á mannanafnaskrá sem byrja á Ó, flokkuð í stúlkunöfn og drengjanöfn.

Stúlkunöfn

14 nöfn
  • Ólöf

    Stúlkunafn1.043 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er lagað eftir karlmannsnafninu Ólafur.

  • Ólafía

    Stúlkunafn263 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er kvenmynd karlmannsnafnsins Ólafur.

  • Ósk

    Stúlkunafn133 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "ósk".

  • Ólína

    Stúlkunafn122 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er líklegast sett saman úr karlmannsnafninu Óli og viðskeytinu "ína". Önnur tilgáta er sú að nafn þetta sé tökunafn sem hefur upphaflega verið stytting á erlendum nöfnum sem enda á "-oline".

  • Ólavía

    Stúlkunafn19 sem fyrsta nafn · Ritmynd nafnsins Ólafía

  • Óla

    Stúlkunafn17 sem fyrsta nafn · Annarvegar er nafn þetta kvenmynd karlmannsnafnsins Óli og hinsvegar er það stytting á nöfnum eins og Ólafía, - Ólöf o.fl.

  • Ólivía

    Stúlkunafn11 sem fyrsta nafn · Nafnið er erlent að uppruna og elsta heimild um það er í leikritinu „Þrettándakvöld“ eftir Shakespeare frá lokum 16. aldar. Talið er að höfundur hafi annaðhvort leitt það af nafninu „Oliver“ eða beint af latneska orðinu „oliva“ sem merkir ólífutré. Nafnið barst til Norðurlanda á 18. öld.

  • Ólafína

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Ólafur og viðskeytinu "ína".

  • Ótta

    Stúlkunafn2 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss. Það gæti verið sama orð og „ótta“ sem merkir tíminn milli þrjú og sex að næturlagi. Það gæti einnig verið skylt forna árheitinu „Ótta“ sem tengt hefur verið við nafnorðið „ótti“ - hræðsla. Þá gæti það einnig verið tökunafn, til dæmis úr norsku „Otte“ sem er afleiðsla af „Ottar“ og „Otto“.

  • Ósa

    Stúlkunafn1 sem fyrsta nafn · Uppruni nafns er óviss, líklega stytting.

  • Ófelía

    Stúlkunafn1 sem fyrsta nafn · Shakespeare notaði nafnið „Ophelia“ á eina af persónunum í leikriti sínu „Hamlet“. Þótt illa færi fyrir Ófelíu í leikritinu hefur nafnið nokkuð verið notað á Bretlandseyjum. Nafnið fékk Shakespeare að láni frá Ítalanum Jacopo Sannazzaro sem hugsaði það líklega sem kvenkynsmynd að gríska nafninu „Ōphelos“ sem merkir „hjálp“.

  • Óda

    Stúlkunafn · „Oda“ er upphaflega gömul þýsk stytting nafna sem hefjast á „Ot-“, t.d. fornþýsku nafnanna „Otberga“, „Otburga“ og „Othild“. Í fornháþýsku merkir „ōt“ „eign, auður“ og er skylt íslenska orðinu auður. Átrúnaður á heilaga Odu um 600 e.Kr. stuðlaði að vinsældum nafnsins. „Oda“ er nafn á nokkrum konum í Þiðreks sögu af Bern og barst frá Þýskalandi til Norðurlanda, þar sem það hefur lengi verið notað í Danmörku og frá 19. öld í Svíþjóð.

  • Ósklín

    Stúlkunafn · Nafnið er líklega sett saman af kvenmannsnafninu „Ósk“ eða karlmannsnafninu „Óskar“ og viðliðnum „-lín“, sbr. „Lín“.

  • Óðný

    Stúlkunafn · Nafnið er hugsanlega sett saman af karlmannsnafninu „Óðinn“ og viðliðnum „-ný“.

Sjá öll stúlkunöfn á Ó →

Drengjanöfn

22 nöfn
  • Ólafur

    Drengjanafn2.616 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er víxlmynd við fornnorræna nafnið "Áleifur" sem er samsett af forliðnum "Anu" sem merkir forfaðir og viðliðnum "laibar" sem merkir afkomandi, - erfingi.

  • Óskar

    Drengjanafn1.051 sem fyrsta nafn · Nafn þetta kemur af írska nafninu "Oscara" sem samsett er af forliðnum "Os" sem merkir hjörtur og viðliðnum "cara" sem merkir vinur.

  • Ómar

    Drengjanafn583 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er ungt í íslensku, berst hingað til lands á þriðja áratug síðustu aldar. Nafnið kemur fyrir í biblíunni en er talið rekja uppruna sinn til arabísku.

  • Óðinn

    Drengjanafn434 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er komið úr goðafræðinni en Óðinn var æðstur allra guða. Það er skylt orðinu "óður" sem merkir skáldskapur.

  • Óliver

    Drengjanafn400 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Oliver.

  • Óli

    Drengjanafn291 sem fyrsta nafn · Nafn þetta var upphaflega stytting á nafninu Ólafur.

  • Óttar

    Drengjanafn166 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er samsett af orðinu "ótti" og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.

  • Ófeigur

    Drengjanafn48 sem fyrsta nafn · Nafn þetta merkir langlífur maður.

  • Ólíver

    Drengjanafn35 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Oliver.

  • Óttarr

    Drengjanafn13 sem fyrsta nafn · Ritmynd af nafninu Óttar.

  • Ósvald

    Drengjanafn4 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Ósvaldur.

  • Ósvaldur

    Drengjanafn3 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Ásvaldur.

  • Óríon

    Drengjanafn3 sem fyrsta nafn · Nafnið merkir „veiðimaðurinn“ eða „risinn“ og er jafnframt heiti stjörnumerkis við miðbaug himins. Í grískri goðafræði var Óríon veiðimaðurinn mikli, sonur Póseidons og drottningarinnar Eruyale.

  • Ónarr

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Ónarr var dvergsheiti til forna og nafn á föður jarðar. Nafnið er líklega leitt af „Án“.

  • Óbi

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss en talið er að um upphaflegt gælunafn sé að ræða.

  • Óri

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óvís en ef til vill er um gælunafn að ræða.

  • Ómi

    Drengjanafn · Uppruni nafnsins er óviss en hugsanlega er um upprunalegt gælunafn að ræða.

  • Ósvífur

    Drengjanafn · Nafnið kemur fyrir til forna og tengist lýsingarorðinu „ósvífinn“, sem merkir óskammfeilinn, frekur.

  • Ólaf

    Drengjanafn · Nafnið er víxlmynd við „Áleifur“, komið af fornnorrænu „Anu-laibaR“ sem er samsett af „Anu-“ er merkir forfaðir og „-laibaR“ er merkir afkomandi, erfingi, sbr. „Leifur“. Kvenmannsnafnið „Ólöf“ samsvarar þessu nafni. „Ólafur“ kemur fyrir í Landnámu og víða í fornum bókmenntum og fornbréfum. Frægir menn með þessu nafni voru t.d. Ólafur Tryggvason Noregskonungur sem kristnaði Noreg og Ísland og Ólafur helgi Haraldsson Noregskonungur. Nafnið hefur verið notað á Norðurlöndum frá því á miðöldum og hefur verið tekið að láni þaðan á Englandi og í Þýskalandi. Danskar myndir eru „Olaf“, „Olav“ og yngri myndin „Ole“. Norskar myndir nafnsins eru „Olav“, yngri myndir „Ola“ og „Ole“. Sænskar myndir eru „Olof“ eða „Olov“ en einnig þekkjast „Ola“, „Olav“ og „Ole“.

  • Ónar

    Drengjanafn · Ónarr var dvergsheiti til forna og nafn á föður jarðar. Nafnið er líklega leitt af „Án“.

Sjá öll drengjanöfn á Ó →

Samtals eru 40 nöfn sem byrja á Ó í gagnagrunninum.

Heimild: Þjóðskrá Íslands, nafnaskrá og fjöldi nafnbera · sótt 19. nóvember 2026

Algengar spurningar um nöfn á Ó

Hvaða nöfn byrja á Ó?

Það eru 40+ íslensk nöfn sem byrja á Ó, t.d. Ólöf og Ólafur. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Ó?

Samtals eru 40 samþykkt nöfn sem byrja á Ó í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Þrengdu leitina

Öll nöfn á Ó í nafnaleitinni, með síum fyrir lengd og fjölda.

Skoða öll nöfn