Nöfn sem byrja á I
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum I, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 96 nöfn sem byrja á I í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á I
- IngibjörgStúlkaSamþykkt3 atkv.1.982 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp, - að bjarga.
- IngaStúlkaSamþykkt2 atkv.1.030 sem fyrsta nafn
Nafnið er talið fengið að láni úr austurnorrænum málum og barst þaðan til Noregs um 1200 og síðar til ensku- og þýskumælandi landa. Uppruni þess er óviss en „Inga“ er einnig gælumynd nafna sem hefjast á „Ing-“ eða „Ingi-“.
- IngunnStúlkaSamþykkt2 atkv.482 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ing" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást.
- IðunnStúlkaSamþykkt2 atkv.304 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr norrænni goðafræði en Iðunn var gyðja sem gaf ásunum epli sem viðhéldu æsku þeirra. Nafnið er samsett af forliðnum "Ið" sem merkir endurtekning, -aftur á ný og viðliðnum "unn" sem merkir unnir, - elskar, - ást
- IngveldurStúlkaSamþykkt3 atkv.156 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Íslendinga sögum, ritað „Yngvildur“, og „Yngveldur“ kemur fyrir í fornbréfum frá 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „Ing-“, „Ingi-“ og viðliðnum „-hildur“, sbr. „Hildur“. Í samsetningunni fellur h-ið brott í innstöðu: „*Yngv-hildur“ > „Yngvildur“ > „Yngveldur“. Í Noregi er „Ingvild“ hliðarmynd af „Yngvild“.
- IndíanaStúlkaSamþykkt4 atkv.96 sem fyrsta nafn
Líklegast er talið að nafn þetta sé fengið af fylkisnafninu "Indiana" í Bandaríkjunum.
- IngigerðurStúlkaSamþykkt4 atkv.88 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og í Gísla sögu Súrssonar, auk þess í Sturlungu og víða í fornbréfum. Það er sett saman af forliðnum „Ing-“, „Ingi-“ og viðliðnum „-gerður“, sbr. nafnið „Gerður“.
- IsabellaStúlkaSamþykkt13. nóv 20094 atkv.73 sem fyrsta nafn
Isabella er upphaflega spænsk mynd af nafninu Elísabet. Síðari liðurinn var lagaður að lýsingarorðinu „bella“ sem merkir „fögur“. Frá Spáni barst nafnið til Frakklands og þaðan til Bretlandseyja. Nafnið var notað í mörgum konungafjölskyldum og er það líklegasta skýringin á vinsældum þess erlendis.
- IrenaStúlkaSamþykkt3 atkv.64 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið af gríska orðinu "eirene" sem merkir friður.
- IrmaStúlkaSamþykkt2 atkv.48 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr þýsku og er stytting nafna sem byrja á "Irm-".
- IsabelStúlkaSamþykkt17. des 20083 atkv.39 sem fyrsta nafn
Isabella er upphaflega spænsk mynd af nafninu Elísabet. Síðari liðurinn var lagaður að lýsingarorðinu „bella“ sem merkir „fögur“. Frá Spáni barst nafnið til Frakklands og þaðan til Bretlandseyja. Nafnið var notað í mörgum konungafjölskyldum og er það líklegasta skýringin á vinsældum þess erlendis.
- IngileifStúlkaSamþykkt3 atkv.35 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "leif" sem merkir arfur.
- InnaStúlkaSamþykkt2 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafnið er ungt hérlendis og hugsanlega erlent að uppruna. Það þekkist í þýskumælandi löndum sem tökunafn úr frísnesku en einnig sem rússnesk stytting á ýmsum nöfnum. Í einhverjum tilvikum getur nafnið líka verið íslenskt gælunafn.
- IngerStúlkaSamþykkt2 atkv.28 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er hingað komið frá Norðurlöndunum og er stytting á nafninu "Ingegerd" sem samsvarar Ingigerður á íslensku
- IlmurStúlkaSamþykkt2 atkv.27 sem fyrsta nafn
Mismunandi kenningar eru um uppruna og merkingu. Sumir telja að nafn þetta sé komið úr goðafræðinni en Ilmur var nafn á ásynju eða valkyrju. Aðrir telja að nafnið sé komið af nafnorðinu "ilmur" og merki þá ilmandi. Enn aðrir telja að nafnið sé komið af trjáheitinu "Álmur".
- IreneStúlkaSamþykkt3 atkv.24 sem fyrsta nafn
Nafnið er erlent að uppruna og hefur borist hingað annaðhvort frá Norðurlöndum eða Englandi. Irena var gyðja friðar í grískri trú en „eirēnē“ merkir „friður“. Nafnið varð vinsælt á Bretlandseyjum í lok 19. aldar og vinsældir þess jukust enn þegar „Saga Forsyte ættarinnar“ eftir John Galsworthy kom út 1922, en ein kvenna í sögunni hét Irene. Nafnið þekkist í Svíþjóð frá því á 19. öld og í Noregi frá 18. öld.
- IðaStúlkaSamþykkt2 atkv.18 sem fyrsta nafn
Nafnið er líklega skylt forskeytinu „ið-“ sem merkir eiginlega „aftur, á ný“ og hefur ýmist endurtekningar- eða herðandi merkingu í íslensku. Það er einnig skylt nafnorðinu „iða“ sem merkir „hringstraumur, straumhvirfing“.
Drengjanöfn á I
- IngvarDrengurSamþykkt2 atkv.554 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.
- IngólfurDrengurSamþykkt3 atkv.507 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.
- IngimarDrengurSamþykkt3 atkv.205 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.
- IvanDrengurSamþykkt1. mar 20222 atkv.162 sem fyrsta nafn
Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.
- IngimundurDrengurSamþykkt4 atkv.118 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.
- IndriðiDrengurSamþykkt3 atkv.95 sem fyrsta nafn
Ýmist talið að nafnið sé samsett af töluorðinu "einn" og sögninni "að ríða" og merkir þá sá sem ríður einn, eða þá að það sé samsett af töluorðinu "einn" og sögninni "að ráða" og merkir þá sá hinn einráði.
- IngþórDrengurSamþykkt2 atkv.47 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.
- IngibergurDrengurSamþykkt4 atkv.39 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "bergur" sem merkir bjargvættur.
- IllugiDrengurSamþykkt3 atkv.30 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er samsett af lýsingarorðinu "illur" og nafnorðinu "hugur" og merkir hinn grimmlyndi.
- IanDrengurSamþykkt19. nóv 20252 atkv.26 sem fyrsta nafn
Ian er skosk mynd af nafninu Jóhannes (John), enskuð úr gelíska nafninu Iain. Nafnið er af hebreskum rótum og merkir „Guð er náðugur“.
- IngibjörnDrengurSamþykkt3 atkv.19 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
- IsmaelDrengurSamþykkt22. des 20103 atkv.17 sem fyrsta nafn
Ismael er hebreskt nafn sem merkir „Guð bænheyrir“. Ísmael er nafn á tveimur mönnum í Biblíunni. Annar var sonur Abrahams og Hagar samkvæmt 1Mós., en hinn var herforingi sem drap Gedalja landstjóra í Júda samkvæmt Jeremía.
- IsakDrengurSamþykkt22. mar 20222 atkv.11 sem fyrsta nafn
Ísak er sótt til Biblíunnar en svo hét sonur Abrahams og Söru og faðir Esaú og Jakobs. Nafnið er af hebreskum uppruna, leitt af sögn sem merkir að „hlæja“. Nafnið merkir þá eiginlega „hann (þ.e. Guð) mun hlæja“ eða „megi Guð hlæja“. Ritmyndin „Isak“ hefur verið notuð um öll Norðurlönd um aldir, þekkist í Noregi og Danmörku frá 12. öld en í Svíþjóð frá lokum 13. aldar. Nafnið er einnig notað á Englandi ritað „Isaac“ og í Þýskalandi ritað „Isaak“ og „Isaac“.
- IngibergDrengurSamþykkt3 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.
- IngibjarturDrengurSamþykkt4 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "bjartur" sem merkir bjartur, - skínandi.
- IngvaldurDrengurSamþykkt3 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á.
- IngileifurDrengurSamþykkt4 atkv.5 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á I
Hvaða nöfn byrja á I?
Það eru 96+ íslensk nöfn sem byrja á I, t.d. Ingibjörg og Ingvar. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á I?
Samtals eru 96 samþykkt nöfn sem byrja á I í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →