Nöfn sem byrja á Y
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum Y, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 21 nöfn sem byrja á Y í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á Y
- YrsaStúlkaSamþykkt2 atkv.85 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er dregið af nafnorðinu "yrsa" sem merkir stygg ær, - óhemja.
- YrjaStúlkaSamþykkt2 atkv.40 sem fyrsta nafn
Að baki liggur nafnorðið „yrja“ sem merkir 'regnúði; hret'. Ef til vill hefur ritverkið „Ísfólkið“ haft einhver áhrif á nafngiftirnar.
- YlvaStúlkaSamþykkt2 atkv.38 sem fyrsta nafn
Nafnið hefur þekkst lengi á Norðurlöndum og var að líkindum upphaflega viðurnefni. Það er sennilega myndað af dýrsheitinu „úlfur“.
- YnjaStúlkaSamþykkt2 atkv.17 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óljós. Það kann að vera sótt til viðskeytisins „-ynja“, sem kemur fyrir sem síðari liður í samsetningum á borð við „ásynja“ og „ljónynja“.
- YljaStúlkaSamþykkt2 atkv.7 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss. Það minnir á rússneska nafnið „Ilja“, sem er þó karlmannsnafn. Einnig má nefna hljómsveitina Ylju.
- YngveldurStúlkaSamþykkt6. maí 20163 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Íslendinga sögum, skrifað „Yngvildur“, en ritmyndin „Yngveldur“ kemur fyrir í fornbréfum frá 15. öld. Í Noregi er „Ingvild“ hliðarmynd af „Yngvild“. Nafnið er sett saman af forliðnum „Ing-“, „Ingi-“ og viðliðnum „-hildur“, sbr. „Hildur“. Í samsetningunni fellur h-ið brott í innstöðu, þ.e. „Yngv-hildur“ > „Yngvildur“ > „Yngveldur“.
- YndaStúlkaSamþykkt7. ágú 20192 atkv.1 sem fyrsta nafn
Að baki nafninu liggur ef til vill nafnorðið „yndi“ sem merkir unaður, sæla, ánægja.
- YndísStúlkaSamþykkt4. maí 20232 atkv.1 sem fyrsta nafn
Yndís er samsett íslenskt kvenmannsnafn úr „yndi“ („unaður, gleði“) og „dís“ („gyðja, kona“).
- YrkjaStúlkaSamþykkt20. feb 20252 atkv.
Yrkja er íslenskt nafn af sögninni „að yrkja“ sem merkir „að semja ljóð“ eða „að rækta jörð“.
Drengjanöfn á Y
- YngviDrengurSamþykkt2 atkv.78 sem fyrsta nafn
Nafnið kemur fyrir í Ynglingatali Þjóðólfs úr Hvini frá 9. öld. Í formála Snorra-Eddu segir að Óðinn hafi haft með sér til Svíþjóðar son sinn er Yngvi hét og að frá honum séu komnar ættir Ynglinga. Í Ynglinga sögu segir að Freyr hafi heitið Yngvi öðru nafni og að nafnið hafi síðan lengi verið haft sem tignarnafn í ætt hans, en ættmenn hans voru kallaðir Ynglingar. Í ritinu „Germaníu“ eftir Tacitus er sagt frá sonum Mannusar en einn þeirra var ættfaðir Ingveóna. Uppruni nafnsins er óviss og umdeildur en það hefur verið tengt gríska orðinu „énchos“ sem merkir „spjót“.
- YlurDrengurSamþykkt14. jan 20042 atkv.7 sem fyrsta nafn
Nafnið er dregið af nafnorðinu „ylur“ sem merkir hlýja, hlý tilfinning.
- YrkirDrengurSamþykkt3. okt 20192 atkv.2 sem fyrsta nafn
Nafnið er dregið af sögninni „yrkja“ sem merkir „semja, skálda“ en einnig „rækta (jörð)“. „Yrkir“ væri þá „sá sem ræktar“.
- YlfingurDrengurSamþykkt27. okt 20173 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er sótt til nafnorðsins „ylfingur“ sem merkir „úlfsungi“.
- YmurDrengurSamþykkt20. feb 20202 atkv.1 sem fyrsta nafn
Nafnið er ef til vill fengið frá nafnorðinu „ymur“ sem merkir „hljómur, niður; hávaði“, og þá skylt sögninni að „ymja“ sem merkir „hljóma, niða; umla, stynja“.
- YrkillDrengurSamþykkt2 atkv.
Nafnið er myndað af sögninni „yrkja“ í merkingunni „rækta“ og viðskeytinu „-ill“ sem notað er til að mynda nafnorð af sögnum. Nafnið er því tengt orðunum „yrkja“, „yrking“ og „yrki“ „verk“.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á Y
Hvaða nöfn byrja á Y?
Það eru 21+ íslensk nöfn sem byrja á Y, t.d. Ylfa og Yngvi. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á Y?
Samtals eru 21 samþykkt nöfn sem byrja á Y í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →