Nöfn sem byrja á T
Hér eru vinsælustu íslensku nöfnin sem byrja á stafnum T, raðað eftir fjölda.
Samtals eru 116 nöfn sem byrja á T í gagnagrunninum.
Stúlkunöfn á T
- ThelmaStúlkaSamþykkt2 atkv.504 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið frá rithöfundinum Marie Corelli sem bjó það til fyrir samnefnda skáldsögu sem kom út árið 1887. Nafnið er e.t.v. fengið af gríska orðinu "thelema" sem merkir ósk.
- TanjaStúlkaSamþykkt2 atkv.159 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega rússnesk gælumynd af „Tatjana“ en er nú borið sem eiginnafn víða í Evrópu.
- TaraStúlkaSamþykkt2 atkv.120 sem fyrsta nafn
Nafnið er sennilega enskt og hefur verið vinsælt í Ameríku frá því um 1940, líklega vegna sögunnar Á hverfanda hveli og samnefndrar kvikmyndar, en þar er „Tara“ nafn á setri. Það er talið írskt að uppruna og merkja „hæð“. Nafnið hefur einnig notið vinsælda á Englandi frá því um 1960, meðal annars vegna vinsællar persónu í sjónvarpsþætti.
- TeresaStúlkaSamþykkt3 atkv.96 sem fyrsta nafn
Merking nafnsins er ókunn en gæti verið frá grísku orðunum theros sem þýðir sumar eða therizein sem þýðir að uppskera.
- TheódóraStúlkaSamþykkt4 atkv.51 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr grísku og er sett saman af grísku orðunum "theos" sem merkir guð og "doron" sem merkir gjöf. Theódóra er því gjöf guðs. Sjá einnig Dóróthea.
- TatianaStúlkaSamþykkt9. sep 20214 atkv.37 sem fyrsta nafn
Nafnið er rússneskt að uppruna og var nafn á ýmsum heilögum konum innan rétttrúnaðarkirkjunnar (ortódox kirkjunnar).
- TalíaStúlkaSamþykkt3 atkv.34 sem fyrsta nafn
Nafnið er latnesk mynd gríska nafnsins „Tháleia“, myndað af grísku sögninni „thallō“ sem merkir „blómstra“. Gyðja leiklistarinnar hét „Tháleia“ samkvæmt grískri goðafræði.
- TheaStúlkaSamþykkt2 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er tökunafn, fengið frá Norðurlöndunum og var upphaflega stytting á nöfnum eins og Theódóra, - Dóróthea o.fl.
- TerezaStúlkaSamþykkt17. nóv 20213 atkv.31 sem fyrsta nafn
Nafnið er rithátsvarianta af Teresa/Theresa og virðist fyrst borið af grískri konu, eiginkonu heilags Pálínusar frá Nola á 5. öld. Þau hjón dvöldust lengi á Spáni og breiddist nafnið þaðan út, m.a. til Portúgals í myndinni „Tereija“. Það hefur verið tengt eyjarheitinu „Thēra“ (nú Santorini) í Eyjahafinu.
- TanyaStúlkaSamþykkt16. nóv 20043 atkv.27 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega rússnesk gælumynd af „Tatjana“ en er nú borið sem eiginnafn víða í Evrópu.
- TatjanaStúlkaSamþykkt25. mar 20213 atkv.25 sem fyrsta nafn
Nafnið er rússneskt að uppruna og var nafn á ýmsum heilögum konum innan rétttrúnaðarkirkjunnar (ortódox kirkjunnar).
- TorfhildurStúlkaSamþykkt3 atkv.24 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er myndað af karlmannsnafninu "Torfi" sem er leitt af orðinu torf og viðliðnum "hildur" sem merkir bardagi, - orrusta, - valkyrja.
- TeklaStúlkaSamþykkt2 atkv.15 sem fyrsta nafn
Nafnið er upprunalega samandregin mynd úr grísku orðunum „theós“ sem merkir guð og „kléos“ sem merkir frægð, sæmd. Fyrsti kvenpíslarvotturinn, sem uppi var á 1. öld, hét „Thekla“ og var afar vinsæl á miðöldum. Samkvæmt Claris sögu bar einnig þjónustustúlka þetta nafn. Nafnið hefur verið vinsælt í Þýskalandi, en dóttir Wallensteins í samnefndu verki Schillers hét „Thekla“, og lag Weyse við ástarsöng úr verkinu ýtti enn frekar undir vinsældir þess.
- TheresaStúlkaSamþykkt15. sep 20053 atkv.11 sem fyrsta nafn
Merking nafnsins er ókunn en gæti verið frá grísku orðunum theros sem þýðir sumar eða therizein sem þýðir að uppskera.
- TalaStúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið mun vera orðið til við samruna tveggja lágþýskra orða, „Sünt“ og „Alheit“, en það er lágþýska myndin af „Sankt Adelheid“. Nafnið „Tale“, „Thale“ þekkist vel í Þýskalandi og hefur verið notað í Noregi frá því um miðja 16. öld.
- TínaStúlkaSamþykkt2 atkv.10 sem fyrsta nafn
Nafnið er notað á Norðurlöndum sem stytting á nöfnum sem enda á „-tine“, t.d. „Kristine“ og „Martine“, og hefur líklegast borist hingað þaðan.
Drengjanöfn á T
- TómasDrengurSamþykkt2 atkv.1.018 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.
- TryggviDrengurSamþykkt2 atkv.497 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af lýsingarorðinu "tryggur" sem merkir trúr, - traustur.
- TristanDrengurSamþykkt2 atkv.296 sem fyrsta nafn
Nafn þetta hefur verið tengt latneska lýsingarorðinu "tristis" sem merkir dapur.
- ThomasDrengurSamþykkt2 atkv.115 sem fyrsta nafn
Nafnið er upphaflega hebreskt, „thomas“, leitt af arameísku viðurnefni „te'omā“ sem merkir „tvíburi“. Það sótti vinsældir sínar til Biblíunnar en Tómas var einn af lærisveinum Jesú og er þar nefndur „tvíburi“ í Jóhannesarguðspjalli. Kirkjufaðirinn Tómas af Aquino átti þátt í vinsældum nafnsins á 13. öld en enn meiri áhrif hafði Tómas frá Becket, erkibiskup sem tekinn var af lífi í dómkirkjunni í Kantaraborg á 12. öld og um hann var ort Tómas diktur erkibiskups og rituð Tómas saga erkibiskups. Nafnið hefur verið algengt á Norðurlöndum frá 12. öld og er einnig gamalt í ensku- og þýskumælandi löndum.
- TeiturDrengurSamþykkt2 atkv.103 sem fyrsta nafn
Nafn þetta hefur tíðkast hér á landi frá upphafi byggðar og er dregið af lýsingarorðinu "teitur" sem merkir kátur, - hress, - glaður.
- TheódórDrengurSamþykkt3 atkv.99 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr grísku og er sett saman af grísku orðunum "theos" sem merkir guð og "doron" sem merkir gjöf.
- TumiDrengurSamþykkt2 atkv.59 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er upphaflega gælunafn fyrir nöfn sem byrja á "Þór-".
- ThorDrengurSamþykkt1 atkv.32 sem fyrsta nafn
Önnur ritmynd af nafninu "Þór" sem er þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.
- TjörviDrengurSamþykkt2 atkv.32 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af orðinu "tjör" sem í fornu skáldamáli merkir sverð.
- TeodorDrengurSamþykkt13. ágú 20253 atkv.19 sem fyrsta nafn
Teodor er mynd af nafninu Theodór, sem er forngrískt og myndað af liðunum „theos“ (Guð) og „doron“ (gjöf). Merking þess er „gjöf Guðs“.
- TýrDrengurSamþykkt1 atkv.17 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er komið úr norrænni goðafræði en Týr var guð hernaðar.
- TinniDrengurSamþykkt2 atkv.14 sem fyrsta nafn
Uppruni nafnsins er óviss en hugsanlega er það dregið af nafni belgísku teiknimyndapersónunnar „Tinna“, á frönsku „Tintin“. Í einhverjum tilvikum gæti nafnið einnig verið lagað að kvenmannsnafninu „Tinna“.
- TheoDrengurSamþykkt24. feb 20212 atkv.14 sem fyrsta nafn
Talið vera ensk stytting á nafninu „Theodore“, sem tengist íslenska nafninu „Theódór“.
- TyrfingurDrengurSamþykkt3 atkv.13 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er leitt af nafninu "Torfi" og merkir afkomandi/ættingi Torfa.
- TóbíasDrengurSamþykkt3 atkv.11 sem fyrsta nafn
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá hebreska nafninu "Tobiah" sem merkir Guð er góður.
Skoða nöfn eftir staf:
Algengar spurningar um nöfn á T
Hvaða nöfn byrja á T?
Það eru 116+ íslensk nöfn sem byrja á T, t.d. Tinna og Tómas. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.
Hversu mörg nöfn byrja á T?
Samtals eru 116 samþykkt nöfn sem byrja á T í gagnagrunninum á Veldu nafn.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →