William
Drengjanafn Samþykkt· 3 atkvæði· 168 bera nafnið
Nafnið er ensk mynd af nafninu „Vilhjálmur“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
78
Fyrsta nafn
90
Annað nafn
168
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
WillumUngt nafn í íslensku. Nafnið „Villum“ þekkist í Danmörku frá 15. öld, einkum á Jótlandi, og er hliðarmynd við „Vilhelm“ og „Vilhjálmur“.WillardNafnið er komið úr fornensku „Wilheard“, sett saman af nafnorðinu „wilt“ sem merkir vilji og lýsingarorðinu „heard“ sem merkir harður, sterkur. Í þýsku er samsvarandi nafn „Willhard“/„Willhart“, úr fornháþýsku „Willihart“, myndað af „willio“, „willo“ sem merkir ósk, vilji og lýsingarorðinu „hart“ sem merkir harður. Í Svíþjóð hefur nafnið „Villard“ verið notað frá lokum 19. aldar en eldri eru nafnmyndirnar „Villehard“ og „Vilhard“. Einhverjar nafngjafanna hér á landi eiga rætur að rekja til komu bandaríska bókasafnarans Daniels Willards Fiske, sem ferðaðist um Norðurland og kynnti m.a. skáklistina fyrir mönnum.WilhelmNafnið er upphaflega þýskt, í fornháþýsku „Willihelm“, „Willahelm“, sett saman af nafnorðunum „willio“, „willo“ sem merkja vilji, ósk og „helm“ sem merkir hjálmur. Til Englands barst nafnið með Vilhjálmi sigurvegara sem stjórnaði sigurliði Normanna í orrustunni við Hastings 1066 og er þar nú ritað „William“. Í Frakklandi er tíðasta myndin „Guillaume“ en þar voru vinsældir nafnsins upphaflega sóttar til heilags Vilhjálms frá Aquitaníu. Á Ítalíu er nafnið „Guglièlmo“ algengt. Til Norðurlanda barst nafnið með biskupi sem settist að í Hróarskeldu á 11. öld.Willy„Willy“ (einnig ritað „Villy“) er enskt gælunafn af nafninu „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið hefur verið notað í Noregi frá 18. öld, í Danmörku frá 19. öld og í Svíþjóð frá miðri 19. öld.VilliamNafnið er ensk mynd af nafninu „Vilhjálmur“.AbrahamNafn þetta er komið úr biblíunni og merkir faðir margra, - faðir margra þjóða. (Gen. 17:5)LiamNafnið er upphaflega írsk stytting á „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið er nú notað víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.BertramNafnið er þýskt að uppruna. Að baki liggur fornháþýska orðið „beraht“ sem merkir glansandi og „hraban“ sem merkir hrafn.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →