Wilhelm
Nafnið er upphaflega þýskt, í fornháþýsku „Willihelm“, „Willahelm“, sett saman af nafnorðunum „willio“, „willo“ sem merkja vilji, ósk og „helm“ sem merkir hjálmur. Til Englands barst nafnið með Vilhjálmi sigurvegara sem stjórnaði sigurliði Normanna í orrustunni við Hastings 1066 og er þar nú ritað „William“. Í Frakklandi er tíðasta myndin „Guillaume“ en þar voru vinsældir nafnsins upphaflega sóttar til heilags Vilhjálms frá Aquitaníu. Á Ítalíu er nafnið „Guglièlmo“ algengt. Til Norðurlanda barst nafnið með biskupi sem settist að í Hróarskeldu á 11. öld.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
11
Fyrsta nafn
29
Annað nafn
40
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: