Werner

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 14 bera nafnið

Nafnið er þekkt í Danmörku og Svíþjóð frá því á 13. öld og hefur einnig verið notað í Noregi og á Englandi, þar sem það er talið tökunafn úr Norðurlandamálunum eða þýsku. Nafnið er upphaflega þýskt og algengt þar í landi, komið úr fornháþýsku „Wernher“, „Werinher“, „Warinheri“, sem er sett saman af sögninni „warjan“ 'verja', sbr. þjóðflokksheitið „Varini“ sem nefnt er í Germaníu Tacitusar, í fornensku „Wærnas“, og í fornháþýsku „Werino-“.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

2

Fyrsta nafn

12

Annað nafn

14

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

WalterNafnið er þýskt, komið úr fornháþýsku „Walthari“, „Waltheri“ og miðlágþýsku „Walter“, samsett af sögninni „waltan“ sem merkir ríkja, stjórna, og nafnorðinu „hari“ sem merkir her. Það þekkist í Noregi frá 14. öld, þá ritað „Valtar(e)“, en í Svíþjóð og Danmörku frá 12. öld, og tíðkast einnig á Englandi. Á Íslandi var nafnið lagað að fornu Óðinsheiti og myndar þannig nafnið Valtýr.LútherNafn þetta er komið af þýska nafninu "Luther" sem er samsett af forliðnum "liut" sem merkir fólk, - þjóð og viðliðnum "heri" sem merkir her, - hermaður.HlöðverNafnið kemur fyrir í Íslendinga sögum og Fornaldarsögum Norðurlanda, auk „Guðrúnarkviðu II“ og fornra lausavísna, en var ekki tekið upp sem eiginnafn fyrr en um aldamótin 1900. Það er trúlega af vesturgermönskum uppruna, skylt franknesku „Chlodowich“, fornensku „Hloðwig“ og fornháþýsku „Hludwig“/„Hluotwig“, og merkir líklega „frægur vígamaður“ - sömu rót og nafnið Lúðvík.HolgerNafnið hefur verið notað í Danmörku og Svíþjóð frá fornu fari, en fornsænsk mynd þess er „Holmger“ og þaðan hefur það borist hingað til lands. Það er upphaflega sett saman af nafnliðnum „Holm-“, sbr. íslensku „hólmur“ (hólmi, eyja), og viðliðnum „-ger“, sbr. íslensku „geir“ (spjót), sbr. Hólmgeir.GunnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.KasperNafnið þekkist á Norðurlöndum sem „Kaspar“ og „Kasper“ frá 15. öld og tíðkast einnig á Englandi sem „Caspar“ og í Þýskalandi sem „Kaspar“. Samkvæmt miðaldaheimildum hét einn vitringanna frá Austurlöndum, sem færðu Jesúbarninu gjafir, „Kasper“. Nafnið er talið af persneskum uppruna og merkja upphaflega „féhirðir“. Nafnið „Jesper“ er norræn mynd af þýska nafninu „Jaspar“ sem aftur er hliðarmynd af „Kasper“.PeterNafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“JesperNafnið er trúlega tökunafn hérlendis úr dönsku, hliðarmynd af „Kasper“. Svo hét einn af vitringunum þremur frá Austurlöndum sem færðu Jesúbarninu gjafir samkvæmt miðaldaheimildum. Nafnið hefur tíðkast í Danmörku frá 13. öld, í Svíþjóð frá 15. öld og í Noregi frá 17. öld. Samsvarandi nafn á Englandi er „Jasper“ og „Jesper“ er tökunafn í Þýskalandi úr dönsku.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.