Walter

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 37 bera nafnið

Nafnið er þýskt, komið úr fornháþýsku „Walthari“, „Waltheri“ og miðlágþýsku „Walter“, samsett af sögninni „waltan“ sem merkir ríkja, stjórna, og nafnorðinu „hari“ sem merkir her. Það þekkist í Noregi frá 14. öld, þá ritað „Valtar(e)“, en í Svíþjóð og Danmörku frá 12. öld, og tíðkast einnig á Englandi. Á Íslandi var nafnið lagað að fornu Óðinsheiti og myndar þannig nafnið Valtýr.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

21

Fyrsta nafn

18

Annað nafn

39

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

WernerNafnið er þekkt í Danmörku og Svíþjóð frá því á 13. öld og hefur einnig verið notað í Noregi og á Englandi, þar sem það er talið tökunafn úr Norðurlandamálunum eða þýsku. Nafnið er upphaflega þýskt og algengt þar í landi, komið úr fornháþýsku „Wernher“, „Werinher“, „Warinheri“, sem er sett saman af sögninni „warjan“ 'verja', sbr. þjóðflokksheitið „Varini“ sem nefnt er í Germaníu Tacitusar, í fornensku „Wærnas“, og í fornháþýsku „Werino-“.PeterNafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“PetterNafnið er ritmynd af „Pétur“ og þekkist á Norðurlöndum og víða um Evrópu. Það er komið úr latínu „Petrus“ en þar var það tekið að láni úr grísku „Pétros“, af grísku „pétra“, „pétros“ „steinhella, klettur“, sem er þýðing á arameíska viðurnefninu „Kefas“. Þekktastur þeirra sem borið hafa nafnið er án efa Pétur postuli. Í Jóhannesarguðspjalli segir frá því er farið var með Símon Jóhannesson til Jesú sem sagði við hann: „Þú skalt heita Kefas (Pétur, það þýðir klettur).“HunterNafnið er enskt að uppruna og merkir „veiðimaður“.ValterNafnið er þýskt, komið úr fornháþýsku „Walthari“, „Waltheri“ og miðlágþýsku „Walter“, samsett af sögninni „waltan“ sem merkir ríkja, stjórna, og nafnorðinu „hari“ sem merkir her. Það þekkist í Noregi frá 14. öld, þá ritað „Valtar(e)“, en í Svíþjóð og Danmörku frá 12. öld, og tíðkast einnig á Englandi. Á Íslandi var nafnið lagað að fornu Óðinsheiti og myndar þannig nafnið Valtýr.FosterNafnið er breskt að uppruna og merkir „sá sem vinnur í skógi, skógarhöggsmaður“.DexterNafnið er fyrst og fremst notað í enskumælandi löndum. Merkingin er sögð vera „sá sem litar föt“ en gæti einnig tengst latneska orðinu „dexter“ sem merkir hægri; rétthentur, sá sem notar hægri hönd.KristerSænsk/dönsk útgáfa af Christer, sem er sama og Christian, sem á latínu þýðir kristinn maður. Sjá Kristján.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.