Willum
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 7 bera nafnið
Ungt nafn í íslensku. Nafnið „Villum“ þekkist í Danmörku frá 15. öld, einkum á Jótlandi, og er hliðarmynd við „Vilhelm“ og „Vilhjálmur“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
7
Fyrsta nafn
0
Annað nafn
7
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
WilliamNafnið er ensk mynd af nafninu „Vilhjálmur“.Willy„Willy“ (einnig ritað „Villy“) er enskt gælunafn af nafninu „William“, sem samsvarar íslenska nafninu „Vilhjálmur“. Nafnið hefur verið notað í Noregi frá 18. öld, í Danmörku frá 19. öld og í Svíþjóð frá miðri 19. öld.WillardNafnið er komið úr fornensku „Wilheard“, sett saman af nafnorðinu „wilt“ sem merkir vilji og lýsingarorðinu „heard“ sem merkir harður, sterkur. Í þýsku er samsvarandi nafn „Willhard“/„Willhart“, úr fornháþýsku „Willihart“, myndað af „willio“, „willo“ sem merkir ósk, vilji og lýsingarorðinu „hart“ sem merkir harður. Í Svíþjóð hefur nafnið „Villard“ verið notað frá lokum 19. aldar en eldri eru nafnmyndirnar „Villehard“ og „Vilhard“. Einhverjar nafngjafanna hér á landi eiga rætur að rekja til komu bandaríska bókasafnarans Daniels Willards Fiske, sem ferðaðist um Norðurland og kynnti m.a. skáklistina fyrir mönnum.WilhelmNafnið er upphaflega þýskt, í fornháþýsku „Willihelm“, „Willahelm“, sett saman af nafnorðunum „willio“, „willo“ sem merkja vilji, ósk og „helm“ sem merkir hjálmur. Til Englands barst nafnið með Vilhjálmi sigurvegara sem stjórnaði sigurliði Normanna í orrustunni við Hastings 1066 og er þar nú ritað „William“. Í Frakklandi er tíðasta myndin „Guillaume“ en þar voru vinsældir nafnsins upphaflega sóttar til heilags Vilhjálms frá Aquitaníu. Á Ítalíu er nafnið „Guglièlmo“ algengt. Til Norðurlanda barst nafnið með biskupi sem settist að í Hróarskeldu á 11. öld.JochumRitháttur nafnsins hefur verið á reiki, ýmist ritað „-ch-“ eða „-kk-“. „Jochum“ er víxlmynd við „Jóakim“.WalterNafnið er þýskt, komið úr fornháþýsku „Walthari“, „Waltheri“ og miðlágþýsku „Walter“, samsett af sögninni „waltan“ sem merkir ríkja, stjórna, og nafnorðinu „hari“ sem merkir her. Það þekkist í Noregi frá 14. öld, þá ritað „Valtar(e)“, en í Svíþjóð og Danmörku frá 12. öld, og tíðkast einnig á Englandi. Á Íslandi var nafnið lagað að fornu Óðinsheiti og myndar þannig nafnið Valtýr.WernerNafnið er þekkt í Danmörku og Svíþjóð frá því á 13. öld og hefur einnig verið notað í Noregi og á Englandi, þar sem það er talið tökunafn úr Norðurlandamálunum eða þýsku. Nafnið er upphaflega þýskt og algengt þar í landi, komið úr fornháþýsku „Wernher“, „Werinher“, „Warinheri“, sem er sett saman af sögninni „warjan“ 'verja', sbr. þjóðflokksheitið „Varini“ sem nefnt er í Germaníu Tacitusar, í fornensku „Wærnas“, og í fornháþýsku „Werino-“.VilhelmSama/svipað og Vilhjálmur.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →