Unnar
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 358 bera nafnið
Skiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
262
Fyrsta nafn
112
Annað nafn
374
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
UnnþórNafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-þór“, sem vísar til Þórs úr goðafræðinni. Þess eru einnig dæmi að kvenmannsnafnið „Þórunn“ liggi að baki nafngjöfinni.UnndórNafn þetta er myndað af forliðnum "Unnur" sem merkir hinn elskaði og viðliðnum "dór" í merkingunni Þór þrumuguð úr goðafræðinni.EinarNafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji.ArnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"RúnarNafnið er tiltölulega ungt í íslensku en „Runar“ þekkist í Svíþjóð frá síðari hluta 19. aldar og barst til Noregs í upphafi 20. aldar. Það er sett saman af „rún“ sem merkir „töfrastafur, sérstakt rittákn“ en einnig „leyndardómur, trúnaðarkona“ og viðskeytinu „-ar“.GunnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.UnnsteinnNafnið er sett saman af forliðnum „Unn-“ og viðliðnum „-steinn“. Einnig eru þess dæmi að kvenmannsnafnið „Steinunn“ liggi að baki nafngjöfinni.AgnarMyndað af forliðnum "Agn" sem merkir ógn, - agi og viðskeytinu "ar" sem er stytting eftir hljóðbreytingar á fornnorræna orðinu "harjarr" sem þýðir hermaður. Nafnið gæti því merkt ógnandi hermaður, - agaður hermaður.