Urður
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 133 bera nafnið
Nafn þetta er fengið úr goðafræðinni. Urður var ein þriggja örlaganorna sem réðu aldri manna, voru systur og hétu Urður, Verðandi og Skuld. Nafnið er tengt fornsaxneska orðinu "wurth" sem merkir örlagadís.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
127
Fyrsta nafn
9
Annað nafn
136
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
UnnurNafn þetta hefur bæði verið tengt við orðið "unnur" í merkingunni alda, - bára og einnig hefur það verið tengt við sögnina "unna"´sem merkir að elska, - þykja vænt um.AuðurNafnið kemur fyrir í Landnámu en þekktasti nafnberi til forna var „Auður djúpúðga“. „Auður“ er sama orð og nafnorðið „auður“ sem merkir „ríkidæmi, auðæfi“.GerðurNafn þetta er komið úr norrænni goðafræði en Gerður Gymisdóttir, sem var jötnaættar, var kona Freys. Nafn þetta hefur verið tengt orðinu "vernd".HeiðurNafn þetta er myndað af lýsingarorðinu "heiður" sem merkir bjartur, - skær.ÞrúðurNafn þetta er fengið úr goðafræðinni. Þrúður var dóttir Þórs þrumuguðs og merkir nafnið styrkur, - kraftur.FríðurFögur, - falleg, - ást. Algengur viðliður.HildurNafn þetta er fengið af nafnorðinu "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja, - bardagi.HauðurNafn þetta er komið af nafnorðinu "hauður" sem merkir land, - jörð.