Urðar
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1 ber nafnið
Nafnið er fremur ungt í íslensku og er trúlega myndað af kvenmannsnafninu „Urður“ með viðskeytinu „-ar“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
0
Fyrsta nafn
1
Annað nafn
1
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
UnnarSkiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um.ViðarUm uppruna og merkingu nafnsins fara tvennum sögum. Ef leshátturinn er talinn „Viðarr“ er nafnið samsett af nafnorðinu „viður“ sem merkir „skógur“ og viðskeytinu „-ar“. Sé lesháttinn hins vegar talinn „Víðarr“, er nafnið líklega skylt lýsingarorðinu „víður“ og merkir þá eiginlega „sá sem ræður víðlendu ríki“. Nafnið kemur nokkrum sinnum fyrir í fornum heimildum, meðal annars í Landnámu, og var einnig borið af syni Óðins sem drap Fenrisúlf í ragnarökum.GarðarNafnið er leitt af nafnorðinu „garður“ sem merkir „veggur, girðing; umgirt svæði“ og viðskeytinu „-ar“. Það kemur fyrir í Landnámu en þar segir frá Garðari Svavarssyni hinum sænska sem fann Ísland, og var landið um tíma nefnt Garðarshólmi eftir honum. Eiginnafnið sjálft virðist þó ekki hafa verið notað fyrr en seint á 19. öld. Í Svíþjóð hefur nafnið verið notað frá upphafi 20. aldar, en fornsænsk mynd þess er „Gärdhar“, og í Noregi kemur það fyrir á miðöldum en var tekið upp aftur um 1900.HeiðarNafnið er hugsanlega myndað af kvenmannsnafninu „Heiða“ eða af kvenmannsnafni sem endar á „-heiður“, og viðskeytinu „-ar“.EinarNafn þetta er myndað af forliðnum "Ein" sem merkir einn, - mjög, - afar og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. Einar er því sá sem berst einn, - einherji.VíðarSonur Óðins.ArnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"ÓskarNafn þetta kemur af írska nafninu "Oscara" sem samsett er af forliðnum "Os" sem merkir hjörtur og viðliðnum "cara" sem merkir vinur.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →