Tekla

Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 31 ber nafnið

Nafnið er upprunalega samandregin mynd úr grísku orðunum „theós“ sem merkir guð og „kléos“ sem merkir frægð, sæmd. Fyrsti kvenpíslarvotturinn, sem uppi var á 1. öld, hét „Thekla“ og var afar vinsæl á miðöldum. Samkvæmt Claris sögu bar einnig þjónustustúlka þetta nafn. Nafnið hefur verið vinsælt í Þýskalandi, en dóttir Wallensteins í samnefndu verki Schillers hét „Thekla“, og lag Weyse við ástarsöng úr verkinu ýtti enn frekar undir vinsældir þess.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.