Tómas

Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 1.217 bera nafnið

Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

1.041

Fyrsta nafn

206

Annað nafn

1.247

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

ThomasNafnið er upphaflega hebreskt, „thomas“, leitt af arameísku viðurnefni „te'omā“ sem merkir „tvíburi“. Það sótti vinsældir sínar til Biblíunnar en Tómas var einn af lærisveinum Jesú og er þar nefndur „tvíburi“ í Jóhannesarguðspjalli. Kirkjufaðirinn Tómas af Aquino átti þátt í vinsældum nafnsins á 13. öld en enn meiri áhrif hafði Tómas frá Becket, erkibiskup sem tekinn var af lífi í dómkirkjunni í Kantaraborg á 12. öld og um hann var ort Tómas diktur erkibiskups og rituð Tómas saga erkibiskups. Nafnið hefur verið algengt á Norðurlöndum frá 12. öld og er einnig gamalt í ensku- og þýskumælandi löndum.TóbíasNafn þetta er fengið úr biblíunni, frá hebreska nafninu "Tobiah" sem merkir Guð er góður.JónasNafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "Yonah" sem merkir dúfa.LúkasNafnið er yfirleitt talið stytting úr latínu „lūcānus“ og merkja „íbúi Lucaniu“ á Suður-Ítalíu. Það gæti líka verið gælumynd af latneska karlmannsnafninu „Lūcius“ sem merkir eiginlega „hinn bjarti“, skylt latínu „lūx“ sem merkir ljós. Elsta dæmi um nafnið á Íslandi er Lúkas Guðmundsson, kaupvottur á bréfi frá 1384, en það kemst svo ekki í almenna notkun fyrr en á 20. öld. Lúkasarmessa er 18. október, kennd við Lúkas guðspjallamann.TobíasSama/svipað og Tóbías.AtlasNafnið á rætur að rekja til grískrar goðafræði. Seifur refsaði Títananum Atlasi með því að láta hann bera heiminn á herðum sér.Tóti„Tóti“ er algengt gælunafn karla sem bera nafn sem hefst á „Þór-“, eins og til dæmis „Þórarinn“.LucasEnska og þýska myndin Lucas er yfirleitt talin stytting úr latínu „lūcānus“ og merkja „íbúi Lucaniu á Suður-Ítalíu“. Það gæti líka verið gælumynd af latneska karlmannsnafninu „Lūcius“ sem merkir eiginlega „hinn bjarti“, sbr. latínu „lūx“ „ljós“. Elsta dæmi um myndina Lúkas hér á landi er um kaupvottinn Lúkas Guðmundsson á bréfi frá 1384. Lúkasarmessa er 18. október, kennd við Lúkas guðspjallamann.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.