Sölvi
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 613 bera nafnið
Ýmist er talið að nafn þetta sé leitt af lýsingarorðinu "sölur" sem merkir fölleitur eða þá að það sé myndað af forliðnim "söl" í merkingunni salur og viðliðnum "vér" sem merkir bardagamaður. Sölvi er því annaðhvort fölleitur maður eða sá sem ver híbýli.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
405
Fyrsta nafn
224
Annað nafn
629
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
SölvarÝmist er talið að nafn þetta sé leitt af lýsingarorðinu "sölur" sem merkir fölleitur eða þá að það sé myndað af forliðnim "söl" í merkingunni salur og viðliðnum "var" sem merkir gætinn,- varkár.SörliSonur Guðrúnar Gjúkadóttur hét Sörli samkvæmt fornum kvæðum og nafnið kemur einnig fyrir í Landnámu, Íslendinga sögum og Sturlungu. Það samsvarar fornháþýsku og fornsaxnesku „Sarulo“, „Sarilo“, „Serilo“, sbr. gotnesku „Sarus“ og fornensku „Serlo“, og virðist tengt orðinu „sörvi“ „hálsband, men“ og gotnesku „sarwa“ „vopnabúnaður, hlífar (í orrustu)“. Nafnið virðist því upphaflega merkja „herklæddur maður, vígbúinn“, sbr. „serlar“ „hermenn“ og „Sörvi“ „sækonungsheiti“.SkúliNafn þetta er komið af nafnorðinu "skjól" og merkir sá sem skýlir, - verndari.SmáriNafn þetta er fengið af jurtaheitinu smári.SörenNafn þetta er norræn mynd af nafninu "Severin" sem er dregið af latneska lýsingarorðinu "severus" sem merkir alvarlegur.SindriNafn þetta er leitt af nafnorðinu "sindur" sem merkir glóandi járnsvarf, - gjall.SnorriNafn þetta er ýmist talið merkja óstýrlátur maður, eða þá að það sé komið af nafnorðinu "snerra" sem merkir harður bardagi.IngviNafn þetta er hliðarmynd við nafnið Yngvi.