Sebastian
Drengjanafn Samþykkt· 4 atkvæði· 432 bera nafnið
Nafnið er af sumum rakið til gríska nafnsins „Sebastianós“, „maður frá Sebasta“, en Sebasta var borg í Litlu-Asíu. Aðrir telja það leitt af gríska lýsingarorðinu „sebastós“, „tiginn“. Heilagur Sebastian var píslarvottur sem uppi var á þriðju öld.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fjöldi með nafn
369
Fyrsta nafn
150
Annað nafn
519
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
SebastíanNafnið hefur lengi verið notað í Englandi, Þýskalandi og á Norðurlöndum. Heilagur Sebastian var píslarvottur sem uppi var á þriðju öld. Nafnið er af sumum rakið til gríska nafnsins „Sebastianós“ sem merkir „maður frá Sebasta“, en Sebasta var borg í Litlu-Asíu. Aðrir telja það leitt af gríska lýsingarorðinu „sebastós“ sem merkir „tiginn“.ChristianRitmynd nafnsins Kristján.KristianNafnið er ein af nafnmyndum „Kristján“ og er komið úr latínu „christiānus“ sem merkir kristinn, sbr. latínu „Christus“ og grísku „Khristós“ sem merkir hinn smurði. Nafnið er alþekkt í ýmsum myndum á Norðurlöndum og í ensku- og þýskumælandi löndum frá fornu fari.StefanNafnið er komið úr grísku „Stéphanos“ sem myndað er af nafnorðinu „stéphanos“ er merkir kóróna, höfuðsveigur. Nafnið er alþekkt á Norðurlöndum frá 12. öld, meðal annars sem danskar og sænskar myndir „Stefan“. Einn fyrsti píslarvottur kristinnar trúar hét Stefán og segir frá honum í Postulasögu Nýja testamentisins.SigurjónNafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "jón" sem merkir drottinn er náðugur.AdrianNafnið er leitt af latnesku nafnmyndinni „Hadrianus“ og merkir „maður frá Hadria“, borg á Norður-Ítalíu. Það er vinsælt í enskumælandi löndum og hefur þekkst í Danmörku frá 15. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 16. öld.SigurbjörnNafn þetta er myndað af forliðnum "Sigur" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.SveinbjörnNafn þetta er myndað af forliðnum "Svein" sem fenginn er af nafnorðinu "sveinn" og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.