Ísold
Nafnið er erlent að uppruna og sótt í söguna um Tristan og Ísold, sem þekkt er af frönsku kvæði Tómasar frá Bretagne frá 12. öld. Tristan var einn af riddurum Arthúrs konungs og felldu þau Ísold hugi saman. Í íslenskri þýðingu frá 1226 var stúlkan nefnd „Ísönd“. Nafnið hefur lítið verið notað á Norðurlöndum en dálítið á Englandi, og í Þýskalandi jukust vinsældir þess eftir að Richard Wagner samdi óperuna „Tristan og Isolde“ árið 1865. Sigurður Breiðfjörð orti rímu um Tristan og Ísold, og tvær endurminningabækur Kristmanns Guðmundssonar nefndust „Ísold hin svarta“ og „Ísold hin gullna“.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
133
Fyrsta nafn
91
Annað nafn
224
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir: