Aron
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 2.041 ber nafnið
Biblíunafn en svo hét bróðir Móse sem Guð útnefndi talsmann hans og sem síðar varð fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en talið er líklegra að það sé af egypskum uppruna en hebreskum. Hefðbundin skýring um að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“ og merki „hinn sterki“ er talin líklega alþýðuskýring. Nafnið barst til Íslands líklega á 12. öld og kemur m.a. fyrir í Sturlungu, þar sem nefndir eru „Aron Bárðarson“ í Selárdal og „Aron Halldórsson“ í Ögri.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
1.544
Fyrsta nafn
582
Annað nafn
2.126
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
AranNafnið er hebreskt að uppruna og merkir „villigeit“. Aran var sonur Dísans samkvæmt 1. Mósebók 36:28.AntonNafn af þýskum uppruna, er stytting á latneska ættarnafninu Antönius er merkir ómetanlegur.ArnarNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðskeytinu "ar"ArúnUppruni óviss. Ef til vill sama orð og indverska orðið „arun“ sem merkir „rauðbrúnn“ og er bæði notað sem mannsnafn og örnefni.AriFuglinn örn, - sá hraðfleygiArnórNafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir örn eða heimili og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr goðafræðinni.AaronAron er biblíunafn og hét svo bróðir Móses sem Guð útnefndi talsmann hans; hann varð síðar fyrsti æðstiprestur gyðinga. Uppruni og merking nafnsins er óviss, en trúlega er það fremur af egypskum en hebreskum uppruna. Sú hefðbundna skýring að nafnið sé leitt af hebresku „áhar-on“, „hinn sterki“, er líklega alþýðuskýring. Nafnið samsvarar arabíska nafninu „Harun“ og er vel þekkt meðal gyðinga. Í ensku og þýsku er „Aaron“ algengasta mynd nafnsins en í Norðurlandamálunum „Aron“; það þekkist í Danmörku frá 13. öld og í Noregi og Svíþjóð frá 14. öld. Á Íslandi var nafnið líklega tekið upp á 12. öld og kemur m.a. fram í Sturlungu, þar sem sagt er frá Aroni Bárðarsyni í Selárdal og Aroni Halldórssyni í Ögri. Ritmyndin „Aaron“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2013.ArinArin er afbrigði af nöfnunum Erin eða Aaron og er notað fyrir bæði kyn. Uppruni þess er óviss.