Nafnalisti

Nöfn á Í: 66+ stúlku- og drengjanöfn

Öll eiginnöfn á mannanafnaskrá sem byrja á Í, flokkuð í stúlkunöfn og drengjanöfn.

Stúlkunöfn

45 nöfn
  • Íris

    Stúlkunafn1.088 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er fengið úr grískri goðafræði þar sem Íris var upphaflega persónugerving regnbogans en varð síðar sendiboði guðanna.

  • Ísabella

    Stúlkunafn437 sem fyrsta nafn · Spænsk mynd af nafninu Elísabet, lagað að lýsingarorðinu "bella" sem merkir fögur.

  • Írena

    Stúlkunafn154 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er latnesk mynd gríska nafnsins Irene sem er komið af gríska orðinu "eirene" sem merkir friður. Irene var gyðja friðar í grískri goðafræði.

  • Ísold

    Stúlkunafn129 sem fyrsta nafn · Nafnið er erlent að uppruna og sótt í söguna um Tristan og Ísold, sem þekkt er af frönsku kvæði Tómasar frá Bretagne frá 12. öld. Tristan var einn af riddurum Arthúrs konungs og felldu þau Ísold hugi saman. Í íslenskri þýðingu frá 1226 var stúlkan nefnd „Ísönd“. Nafnið hefur lítið verið notað á Norðurlöndum en dálítið á Englandi, og í Þýskalandi jukust vinsældir þess eftir að Richard Wagner samdi óperuna „Tristan og Isolde“ árið 1865. Sigurður Breiðfjörð orti rímu um Tristan og Ísold, og tvær endurminningabækur Kristmanns Guðmundssonar nefndust „Ísold hin svarta“ og „Ísold hin gullna“.

  • Ína

    Stúlkunafn73 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er stytting nafna sem enda á "-ína".

  • Ída

    Stúlkunafn64 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er komið úr þýsku og var upphaflega stytting nafna sem byrja á "Ida-/Idu-".

  • Ísey

    Stúlkunafn47 sem fyrsta nafn · Talið er að nafn þetta sé myndað af forliðnum "ís" og viðliðnum "ey" í merkingunni eyja, og að nafnið merki þá í raun Ísland.

  • Ísafold

    Stúlkunafn35 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "fold" sem merkir jörð. Ísafold var notað af rómantískum skáldum sem annað heiti á Íslandi.

  • Ísabel

    Stúlkunafn28 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er ýmist talið vera spænsk mynd af nafninu Elísabet eða þá að það sé dregið af forn semísku nafni og merki dóttir guðsins Baal.

  • Ísól

    Stúlkunafn17 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss. Ef til vill er um sama nafn að ræða og „Íssól“.

  • Ísadóra

    Stúlkunafn8 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss en talið er að það kunni að vera sett saman úr tveimur nöfnum. Hliðarmyndin „Isadora“ var samþykkt á mannanafnaskrá árið 2020.

  • Íva

    Stúlkunafn8 sem fyrsta nafn · Nafnið þekkist í þýsku sem „Iva“ og er ýmist talið myndað eftir karlmannsnafninu „Ivo“ eða vera stytting á nafninu „Ivana“ sem aftur er myndað af „Ívan“.

  • Ísfold

    Stúlkunafn7 sem fyrsta nafn · Sama/svipað og Ísafold.

  • Ísalind

    Stúlkunafn6 sem fyrsta nafn · Nafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“, „Ísa-“ og viðliðnum „-lind“.

  • Íshildur

    Stúlkunafn5 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

  • Ísmey

    Stúlkunafn5 sem fyrsta nafn · Nafnið er sett saman af forliðnum „Ís-“ eða „Ísa-“ og nafnorðinu „mey“ sem merkir stúlka.

  • Ísgerður

    Stúlkunafn4 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "gerður" sem merkir vernd.

  • Ísis

    Stúlkunafn4 sem fyrsta nafn · Nafnið er rakið til nafns egypsku frjósemisgyðjunnar „Isis“. Það hefur verið tekið upp sem eiginnafn víða í Evrópu, m.a. á Spáni og í Þýskalandi.

  • Írunn

    Stúlkunafn3 sem fyrsta nafn · Talið sett saman af forliðnum „Ir-“, sem einnig kemur fyrir í nöfnum eins og „Irene“, og viðliðnum „-unn“. Nafnið þekkist í Noregi frá því fyrir miðja 20. öld og er íslenska myndin hugsanlega mynduð eftir því norska, þótt uppruninn sé að öðru leyti óviss.

  • Íunn

    Stúlkunafn3 sem fyrsta nafn · Uppruni nafnsins er óviss en sennilega er það hliðarmynd við nafnið „Iðunn“.

Sjá öll stúlkunöfn á Í →

Drengjanöfn

18 nöfn
  • Ísak

    Drengjanafn671 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er leitt af hebresku sögninni "sahak" sem merkir að hlæja og þýðir nafnið í raun Guð mun hlæja.

  • Ívar

    Drengjanafn550 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er talið vera víxlmynd við nafnið Ingvar.

  • Ísar

    Drengjanafn83 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðskeytinu "ar" sem merkir broddur.

  • Ísleifur

    Drengjanafn81 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.

  • Ívan

    Drengjanafn50 sem fyrsta nafn · Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.

  • Ísólfur

    Drengjanafn19 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.

  • Ían

    Drengjanafn10 sem fyrsta nafn · Nafnið er erlent að uppruna og er upphaflega skosk afleiðsla af nafninu „John“. Frá Skotlandi barst það til þýskumælandi landa og Norðurlanda. Um merkingu vísast til nafnsins „Jóhannes“.

  • Ísidór

    Drengjanafn10 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er komið úr grísku og er samsett af gyðjunafninu "Isis" og nafnorðinu "doron" sem merkir gjöf.

  • Ísarr

    Drengjanafn10 sem fyrsta nafn · Nafnið kemur fyrir í Sturlungu á 13. öld og í fornbréfum frá 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „Ís-, Ísa-“ og viðliðnum „-ar“ og gæti merkt „ís-spjót, ísabroddur“.

  • Ísmael

    Drengjanafn6 sem fyrsta nafn · Nafnið er hebreskt að uppruna. Sonur Abrahams og Hagar hét „Ísmael“ samkvæmt Fyrstu Mósebók, og það er talið merkja „Guð hlustar“.

  • Ísrael

    Drengjanafn3 sem fyrsta nafn · Nafnið var upphaflega viðurnefni Jakobs, sonar Ísaks og Rebekku, í merkingunni „berst fyrir Guð“. Síðar varð „Ísrael“ notað sem nafn á söfnuði gyðinga eftir herleiðinguna til Babýlon. Nafnið er einkum notað meðal gyðinga en þekkist þó meðal enskumælandi þjóða og á Norðurlöndum.

  • Ísgeir

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ís" sem merkir ís, - klaki og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

  • Ísmar

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafn þetta er sett saman úr nafnorðinu "ís" og viðliðnum "mar" sem merkir haf, - sær.

  • Ígor

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafnið er rússnesk mynd nafnsins „Ingvar“.

  • Íkarus

    Drengjanafn1 sem fyrsta nafn · Nafnið er sótt til grískrar goðafræði. Íkarus flaug með vængjum sem faðir hans gerði honum úr fjöðrum og vaxi of nálægt sólinni þannig að vaxið bráðnaði og Íkarus féll til jarðar og varð það hans bani.

  • Ími

    Drengjanafn · Nafnið kemur fyrir í Sturlungu og í fornbréfum frá 15. og 16. öld. Uppruni nafnsins er óviss, ef til vill skylt „íma“ - orrusta, eða „ím“ - óhreinindi, ryk.

  • Ísbjörn

    Drengjanafn · Nafnið er dregið af dýrsheitinu „ísbjörn“.

  • Íseldur

    Drengjanafn · Nafnið er sett saman af orðunum „ís“ og „eldur“.

Sjá öll drengjanöfn á Í →

Samtals eru 66 nöfn sem byrja á Í í gagnagrunninum.

Heimild: Þjóðskrá Íslands, nafnaskrá og fjöldi nafnbera · sótt 19. nóvember 2026

Algengar spurningar um nöfn á Í

Hvaða nöfn byrja á Í?

Það eru 66+ íslensk nöfn sem byrja á Í, t.d. Íris og Ísak. Sjá fullan lista, merkingu og algengi hér að ofan.

Hversu mörg nöfn byrja á Í?

Samtals eru 66 samþykkt nöfn sem byrja á Í í gagnagrunninum á Veldu nafn.

Þrengdu leitina

Öll nöfn á Í í nafnaleitinni, með síum fyrir lengd og fjölda.

Skoða öll nöfn