Áki
Drengjanafn Samþykkt· 2 atkvæði· 147 bera nafnið
Nafn þetta er ýmist talið koma úr fornháþýsku og þá frá orðinu "ano" sem merkir forfaðir, eða þá frá gríska orðinu "agat" sem merkir saklaus.
Ábending eða leiðrétting?Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.
Auglýsing
Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
43
Fyrsta nafn
110
Annað nafn
153
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?
Svipuð nöfn
Önnur drengjanöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
ÁrniEldri mynd nafnsins er „Arni“, skylt nöfnunum „Örn“ og „Ari“. Talið er að nafnið hafi ef til vill borist inn í íslensku úr fornnorrænu sem stytting á nöfnum með forliðnum „Arn-“. Nafnið er kunnugt hérlendis allt frá landnámsöld.ÁsiNafnið kemur fyrir í ættum fornmanna í Landnámu. „Ási“ er algeng stytting á nöfnum sem hefjast á „Ás-“.LákiNafnið er líklega gælumynd af nöfnum sem enda á „-lákur“.BrekiÝmist talið að nafn þetta merki brotsjór eða blindsker, eða þá að það merki eldur.BjarkiBjarki er þekkt sem viðurnefni kappans „Böðvars bjarka“ í Hrólfs sögu kraka og bar einnig maður að nafni „Þórður bjarki“ á 14. öld. Nafnið er upphaflega norrænt viðurnefni, líklega leitt af forngermönsku „*Berikan“, sbr. fornháþýsku „Bericho“ í merkingunni „litli björninn“, skylt nöfnunum Björn og Bera. Það getur einnig hafa verið leitt af trjáheitinu „björk“ eða „birki“.AriFuglinn örn, - sá hraðfleygiLokiLoki var einn af ásum samkvæmt Snorra-Eddu. Uppruni nafnsins er óviss. Sumir tengja hann við sögnina „lúka“ í merkingunni „gera enda á, ljúka við“. Aðrir vilja tengja nafnið við „log“ og „logi“ og telja að Loki hafi upphaflega verið eldvættur.HakiNafnið kemur fyrir sem þrælsnafn í Landnámu og báru tveir menn það í Íslendinga sögum, annar skoskur þræll en hinn tröll í Noregi. Í Heimskringlu er „Haki“ m.a. nafn á sækonungi. Jón Espólín og Gísli Konráðsson ortu báðir „Rímur af Haka og Hagbarði“. Nafnið er annaðhvort myndað af nafnorðinu „haki“, þ.e. „verkfæri; krókur, krókstjaki“, eða er sama nafn og „Hagen“ í þýsku sem þekkist m.a. í „Niflungakvæðinu“ frá 12. öld, en það er leitt af fornháþýska nafnorðinu „hag“, þ.e. „umgirt svæði, hagi“.