Viktoria

Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 53 bera nafnið

Viktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Úrskurður mannanafnanefndar

Fjöldi með nafn

44

Fyrsta nafn

9

Annað nafn

53

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042025

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

ViktoríaNafn þetta er komið úr latínu og er leitt af orðinu "victoria" sem merkir sigur. Viktoría er því hin sigursæla.VictoriaViktoría var nafn sigurgyðjunnar hjá Rómverjum, leitt af nafnorðinu „victōria“ sem merkir sigur. Nafnið hefur þekkst lengi víða um Evrópu, á Ítalíu sem „Vittoria“ og í Frakklandi sem „Victoire“. Það var lítið notað á Englandi fyrr en á 19. öld þegar Viktoría drottning komst til valda, en móðir hennar, Mary Louise Victoria, var þýsk. Nafnberum fjölgaði einnig á dögum Viktoríu og átti skáldsagan „Victoria“ eftir Knut Hamsun, sem kom út 1898, mikinn þátt í vinsældum nafnsins. Hún var þýdd á íslensku af Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi og gefin út 1912 og hefur ugglaust haft áhrif á nafngiftir hér á landi.VictoríaSama/svipað og Viktoría.VilhelmínaNafn þetta er leitt af karlmannsnafninu Vilhjálmur.VeronikaNafn þetta er latnesk ummyndun nafnsins "Berenice" og merkir sú sem veitir sigur.VeronicaNafnið er talin latnesk ummyndun á nafninu „Berenice“ úr eldra „Berenike“ sem mun vera makedónsk mynd gríska nafnsins „Pherenike“, „sá sem stuðlar að sigri“. Ástæðan til þess að „Berenice“ varð „Veronica“ er að nafnið blandaðist latneska orðasambandinu „vere icon“, „sönn ímynd“. Átrúnaður á heilaga Veróniku frá Jerúsalem á miðöldum varð til þess að nafnið var tekið upp víða. Hún var sögð ein af fylgjendum Jesú og á að hafa strokið andlit hans með svitadúk sínum á leið til krossfestingarinnar, en þá sást andlitsmynd Jesú í dúknum.VíólettaNafnið er erlent að uppruna. Í ensku er notuð myndin „Violet“, í frönsku „Violetta“, leidd af fornfranska jurtarheitinu „violette“ sem aftur er fengið að láni úr síðlatínu „violetta“, smækkunarmynd af „viōla“. Íslenska jurtarheitið er „fjóla“.VeróníkaNafn þetta er latnesk ummyndun nafnsins "Berenice" og merkir sú sem veitir sigur.
Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.