Rannveig

Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 537 bera nafnið

Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Rann" sem merkir hús, - heimili og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn

Uppáhaldsnöfn vistast í vafranum þínum — enginn aðgangur nauðsynlegur.

Auglýsing

Úrskurður mannanafnanefndar

engin dagsetning

Fallbeyging

Sjá fallbeygingu í smáatriðum

Fjöldi með nafn

441

Fyrsta nafn

97

Annað nafn

538

Samtals

Fjöldi einstaklinga óháð kyni. Hve margir heita öðrum nöfnum?

Þróun í gegnum tíðina

Þróun í gegnum ár

FyrstaAnnað
20042026

Gögn: Þjóðskrá

Svipuð nöfn

Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:

RannvaNafnið er stytting á „Rannveig“ og þekkist sem „Rannvá“ í Færeyjum, en þaðan hefur nafnið hugsanlega borist.SólveigNafnið hefur verið notað hér á landi frá upphafi byggðar og kemur fyrir í Íslendinga sögum, Sturlungu og fornbréfum, þá oftast ritað „Solveig“. Uppruni nafnsins er þó óviss: það hefur verið tengt orðinu „salur“ „stórt herbergi, loft í húsi“ og elsta mynd þess talin „Sal-“ eða „Sölveig“, en ritmyndin „Solveig“ í fornum handritum getur í raun staðið fyrir „Sal-“, „Sol-“, „Söl-“ eða „Sólveig“ svo að ekki er hægt að fullyrða með vissu hvað liggi að baki. Talið er óvíst hvort myndin „Sólveig“, tengd nafnorðinu „sól“, komi fram fyrr en í lok 19. aldar eða upphafi þeirrar 20. Í Noregi þekktist nafnið á miðöldum og varð mjög vinsælt á 18. öld en vinsældir þess jukust enn frekar eftir að leikritið „Pétur Gautur“ eftir Ibsen kom út árið 1867, en þar heitir aðalkvenpersónan „Sólveig“. „Söngur Sólveigar“ við tónlist Griegs er afar vinsæll og hefur eflaust orðið kveikjan að mörgum nafngjöfum. Frá Norðurlöndunum barst nafnið síðan til Englands og Þýskalands.RandýNafn þetta er ýmist notað sem gælunafn fyrir "Rannveig" eða þá að talið er að það sé tökunafn frá Norðurlöndunum af nafninu "Randíður"RandíðurTalið er að nafnið sé yngri mynd af „Ragnfríður“ en myndin „Randíður“ hefur sennilega verið tengd nafnorðinu „rönd“ sem merkir skjöldur. Síðari liðurinn er upprunalega „-ríður“. Randíður Bjarnadóttir frá Hvassafelli í Eyjafirði er nefnd í Annálum 1400–1800 og skáldsagan „Randíður á Hvassafelli“ eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili hefur ef til vill haft áhrif á nafngiftir í Eyjafjarðarsýslu.RandíSama/svipað og Randý.HallveigNafn þetta er myndað af forliðnum "Hall" sem merkir steinn og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.RankaNafnið kemur fyrir í manntali 1703 þar sem stúlka í Árnessýslu var skráð „Ranka Sveinsdóttir“. Hún var niðursetningur og hefur nafnið hugsanlega verið stuttnefni hennar.HeiðveigNafn þetta er myndað af forliðnum "Heið" sem merkir ýmist sæmd, - tign, - bjartur, - skær og viðliðnum "veig" sem merkir afl, - kraftur.

Finndu fleiri nöfn

Skoðaðu þúsundir íslenskra mannanafna með leit og síum.