Petrúnella

Stúlkunafn Samþykkt· 4 atkvæði· 2 bera nafnið

Nafnið er leitt af rómverska ættarnafninu „Petrōnius“ en uppruni þess er óviss. Heilög Petronilla var píslarvottur í Róm á fyrstu öld e.Kr. og var nafn hennar fljótlega tengt nafninu „Petrus“ (sbr. Pétur); ýmsar helgisögur gerðu hana að dóttur Péturs postula. Um hana var ort í „Heilagra meyja drápu“ frá 14. öld. Nafnmyndir á borð við „Petronella“ og „Petronilla“ þekkjast víða í Evrópu, t.d. í Svíþjóð frá 15. öld, en yngri mynd þar er „Pernilla“; í Danmörku hefur „Pernille“ tíðkast frá 14. öld.

Ábending eða leiðrétting?
Prófa fullt nafn