Lucia
Stúlkunafn Samþykkt· 3 atkvæði· 65 bera nafnið
Nafnið er rómverskt að uppruna og talið leitt af karlmannsnafninu „Lūcius“, sem á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „lūx“ er merkir ljós. „Lucy“ er ensk mynd nafnsins. Heilög Lúsía frá Sýrakúsu, sem dó píslarvættisdauða árið 304, var mjög vinsæll dýrlingur á miðöldum og var m.a. ort um hana í „Heilagra meyja drápu“ á 14. öld. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í ensku- og þýskumælandi löndum, Ítalíu, Spáni og víðar, og „Lúcíumessa“ er haldin 13. desember.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
3. maí 2005
Fjöldi með nafn
37
Fyrsta nafn
28
Annað nafn
65
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
LucíaLucía er kvenkynsmynd af latneska nafninu Lucius, dregið af orðinu „lux“ sem merkir „ljós“.LydiaSama/svipað og Lýdía.LucyNafnið er rómverskt að uppruna og talið leitt af karlmannsnafninu „Lūcius“, sem á rætur að rekja til latneska nafnorðsins „lūx“ er merkir ljós. „Lucy“ er ensk mynd nafnsins. Heilög Lúsía frá Sýrakúsu, sem dó píslarvættisdauða árið 304, var mjög vinsæll dýrlingur á miðöldum og var m.a. ort um hana í „Heilagra meyja drápu“ á 14. öld. Nafnið er notað á Norðurlöndum, í ensku- og þýskumælandi löndum, Ítalíu, Spáni og víðar, og „Lúcíumessa“ er haldin 13. desember.LukkaHamingja.LaiaLaia er katalónskt gælunafn af nafninu Eulalia. Það er af grískum rótum og merkir „vel talandi“ eða „málsnjöll“.LunaNafnið er erlent að uppruna og þekkist bæði á Ítalíu og Spáni en hefur borist þaðan m.a. til Þýskalands. Að baki liggur nafn rómversku mánagyðjunnar „Luna“ og latneska orðið „luna“ sem merkir tungl, máni.LovísaNafn þetta er upprunalega komið af franska nafninu "Louise".MariaNafnið varð snemma afar vinsælt í hinum kristna heimi þar sem það var tengt Maríu móður Jesú. Latneska myndin „Maria“ varð til fyrir misskilning úr eldri gerð „Mariam“. Þolfall eintölu kvenkynsorða í latínu endaði á „-am“ og því var myndað nýtt nefnifall „Maria“. „Mariam“ er hins vegar arameísk hliðarmynd við hebreska nafnið „Miriam“. Merking nafnsins og uppruni er óljós. „Miriam“ Gamla testamentisins var systir Móse og Arons og eru nöfn þeirra talin af egypskum toga, svo ekki er ósennilegt að „Miriam“ sé það einnig. Í Heimskringlu eru nefndar þrjár Maríur, meðal annars dóttir Eysteins konungs Magnússonar.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →