Judith
Stúlkunafn Samþykkt· 2 atkvæði· 37 bera nafnið
Júdit er biblíunafn sem kemur fyrir í Fyrstu Mósebók og í Júditarbók, einni af apókrýfu bókum Biblíunnar. Hebreska nafnið „Jehūdīth“ er talið merkja „kona frá Júdeu“.
Ábending eða leiðrétting?Úrskurður mannanafnanefndar
engin dagsetning
Fallbeyging
Fjöldi með nafn
28
Fyrsta nafn
9
Annað nafn
37
Samtals
Fjöldi einstaklinga óháð kyni
Svipuð nöfn
Önnur stúlkunöfn með svipaðan hljóm, lengd eða vinsældir:
EdithNafnið er erlent að uppruna og komið úr ensku til Norðurlanda, Þýskalands og víðar. Það þekkist allt frá fornensku „Eadgyth“ og er sett saman af „ēad“ sem merkir auður og „gyð“ sem merkir orrusta. „Ēad“ er af sama stofni og „auður“ og „gyð“ er sama orðið og „gunnur“, „guðr“ sem merkir orrusta, og myndi því samsvara íslenska kvenmannsnafninu „Auðgunnur“ væri það til.LilithSamkvæmt miðaldatrú var „Lilith“ nafn á konu Adams sem hann átti á undan Evu. Sagt er að henni hafi verið breytt í næturpúka þegar hún vildi ekki hlýðnast Adam. Í Biblíunni er „Lilith“ aðeins nefnd í Jesaja (34:14) í upptalningu á ýmsum skepnum.JuliaJulia er hliðarmynd nafnsins Júlía og er myndað eftir karlmannsheitinu „Júlíus“ með viðskeytinu „-a“. Nafnið er vel þekkt á öllum Norðurlöndum, í enskumælandi og þýskumælandi löndum og víðar.JasmínNafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.JórunnNafnið kemur fyrir í Landnámu og víða í Íslendinga sögum, auk þess í Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld. Það er sett saman af forliðnum „jór-“, sem er hliðarmynd við „jöfur“ er merkir „göltur; konungur“, og viðliðnum „-unn“.LisbethNafnið er hliðarmynd við „Elísabet“. „Lisebet“ kemur fyrir í sænskum heimildum frá 15. öld, „Lisbet“ þekkist í Danmörku frá 16. öld og var mikið notað í Noregi á 18. öld.JennýNafn þetta er enskt að uppruna og er gælumynd af nöfnunum "Jane, Jean".JasminNafnið er erlent að uppruna og notað víða í Evrópu í ýmsum myndum. Að baki liggur jurtarheitið „jasmine“ sem upphaflega er persneskt, „yāsaman“. Það varð á arabísku „yāsamīn“, barst þaðan um spænsku „jazmín“ yfir til Bretlands, þar sem það var tekið upp á 19. öld sem eiginnafnið „Jasmine“, og í Þýskalandi upp úr miðri 20. öld sem „Jasmin“, „Jasmina“, „Jasmine“, „Yasmin“ og „Yasmina“.
Auglýsing
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →